Heimsmynd - 01.11.1990, Page 89
g er svo heppin að hafa eignast margar góðar vin-
/J konur, þannig að erfitt er að gera upp á milli þeirra,
en fyrst ég má bara tilnefna eina þá dettur mér í hug
%/ Gyða Jóhannsdóttir, skólastjóri Fósturskóla íslands.
Við kynntumst í Menntaskólanum í Reykjavík, þar sem
við sátum saman. Síðan höfum við alla tíð haldið í vinskap-
inn sem aldrei hefur borið skugga á.
Við vorum reyndar þrjár vinkonur sem brölluðum eitt
og annað á þessum tíma. Við útskrifuðumst 1964 og upp-
lifðum því bítlaæðið algerlega frá upphafi og þótti það ekki
leiðinlegt. Hótel Borg var annað heimili okkar ásamt
Iþöku sem í þá daga var félagsheimili menntskælinga.
Gyða var og er ákaflega mikill fagurkeri og á þessum árum
þurftum við langan tíma til að punta okkur fyrir böllin.
Við vorum með upptúperað hár, hvítt meik og hvítan
varalit - svona í Bardotstíl. Gyða var mjög vandlát á föt og
til dæmis minnir mig að hún hafi tvisvar sent sömu peysuna
með Gullfossi til Kaupmannahafnar til systur sinnar, þar
sem hún var alltaf að skipta um skoðun á lit peysunnar á
meðan Gullfoss sigldi milli landa.
A þessum árum var ekki mikið um verslanir í Reykjavík.
Mér er minnisstætt þegar Gyða fékk fallega hálsfesti í af-
mælisgjöf. Hún hafði miklar áhyggjur af að eiga ekki kjól
sem passaði við festina, svo að hún lét bara sauma kjól við
hæfi.
Tímaskynið hjá Gyðu er stundum heldur hæggengt og
hún vinnur í skorpum.
Ef á að lýsa henni með fáum orðum, finnst mér hún
dæmigert naut og þar sem ég er dæmigerð vog, höfum við
átt afskaplega gott skap saman og getað þolað súrt og sætt
án þess að skugga bæri á vináttuna.
Vinátta, heiðarleiki, hjálpsemi og trygglyndi ásamt léttu
skapi og hæfilegu kæruleysi eru aðalsmerki hennar.
Ef ég hætti ekki þessu lofi um hana, heldur hún kannski
að ég sé gengin af vitinu og gefur vinkonuna upp á bátinn.
„ Tímaskynið hjá Byðu er stundum heldur hæggengt og
hún vinnur í skorpum. “
Sigríður Ragna Sigurðardóttir, fulltrúi barnaefnis ríkissjónvarps, og Gyða
Jóhannsdóttir, skólastjóri Fósturskóla íslands.
HEIMSMYND 89