Heimsmynd - 01.11.1990, Page 92
„RAX er mjög djarfur en lítillátur. Myndir hans hafa
verið birtar í þekktustu blöðum heims en það skiptir
hann ekki öllu. “
Árni Johnsen blaðamaður og Ragnar Axelsson Ijósmyndari.
ið RAX kynntumst á Morgunblaðinu, hann ljós-
myndari og ég sem blaðamaður. Honum verður
ekki lýst í fáum orðum. Við höfum unnið mikið
saman og farið í ýmsa leiðangra tengda vinnunni,
til dæmis til Grænlands, Indónesíu, Færeyja og víðar er-
lendis en þó mest innan lands.
Hann er mjög listrænn ljósmyndari og kappsfullur, vill
framkvæma þær hugmyndir sem hann fær og er tilbúinn til
að leggja mikið á sig til að það takist.
Sumir myndu segja að hann væri nokkuð sérvitur. Hann
getur bitið í sig eitthvað sem hann ætlar að gera og þá snýst
allt í kringum það eitt. Ef það koma tillögur um eitthvað
annað, getur hann haft allt á hornum sér.
Eitt sinn vorum við með Land- og Holtamönnum í smöl-
un og við vissum sem var að reka þurfti féð yfir Rangá.
Við biðum eftir því að geta tekið mynd af rekstrinum yfir
ána en bíllinn, sem við vorum á, var að verða bensínlaus.
Þrátt fyrir að RAX væri því mjög mótfallinn ákvað ég að
fara á næsta bæ og ná í bensín. Pað var alveg upp á það
knappasta en gekk samt. Þegar við komum aftur var féð
farið að nálgast vaðið svo við þurftum að haska okkur.
Þótt við slyppum þarna fyrir horn hafði RAX allt á horn-
um sér og röflaði og röflaði, meira að segja þótt ég lánaði
honum skóna mína til að vaða út í Rangá og ég klæddi
hann að auki í þá. En hann tók frábæra mynd af Kristni í
Skarði að sundríða Rangá með rollu í togi.
Það sem mér líkar einna best í fari hans er hve hispurs-
laus hann er. Auk þess er hann duglegur og gamansamur
og því gaman að vera með honum. Hann er fljótur að
svara fyrir sig. Ég hef gaman af sams konar stfl, léttum
skotum og eins og hjá mörgum vinnufélögum mínum er
það eiginlega orðið sjálfvirkt að svara fyrir sig og grípa
tækifærin til að gera létt gaman úr hlutunum. Ef maður
skýtur einhverju á RAX getur hann svarað fyrir sig um hæl
og sagt við þann sem maður er að tala við: Þú áttar þig
náttúrlega á því að það er ekki bara hlægilegt að hlusta á
hann.
Þegar við erum saman, til dæmis á ferðalögum, tölum
við um allt milli himins og jarðar og það sem upp á kemur.
Þannig held ég að það sé hjá þeim sem þekkjast vel og þar
sem vinátta hefur skapast, að þeir geta talað um hvað sem
er. Það er ekkert endilega nauðsynlegt að tala. Það geta
verið eðlilegar þagnir sem kalla ekki á neitt tal.
Við hittumst ekki mikið utan vinnutíma, en það má
segja að vinnutími okkar, eins og hjá öðrum blaðamönn-
um, sé endalaus.
RAX er að mínu mati mjög snjall ljósmyndari. Hann er
listamaður af guðs náð.
RAX er mjög djarfur en lítillátur. Myndir hans hafa ver-
ið birtar í þekktustu blöðum heims en það skiptir hann
ekki öllu. Fyrir honum er aðalatriðið að taka góða mynd
og gildir þá einu hvort hann gefur myndina einhverjum
áhugasömum einstaklingi eða fær hana birta í víðlesnasta
blaði heims.
92 HEIMSMYND