Heimsmynd - 01.11.1990, Síða 111
The WorldPaper
LÍFTÆKNI
Miklir peningar, lítil furðuverk
Heilsuiðnaðurinn væntir gjöfulla markaða
Eftir Joe Edelman
í New York, Bandaríkjunum
Nú telja menn sig vera í þann veginn að
lyfta hulunni af þeim leyndardómi sem
varðveitir forrit mannlegra eiginleika.
Markaðsöflin bíða hungruð á jaðri leik-
vallarins með væntingar um stóra hluti
frá hinum litla innra heimi frumunnar.
Innan læknisfræðinnar bjóða afurðir
líftækninnar - mótefni, lyf og hjálpar-
tæki til sjúkdómsgreininga - upp á stór-
kostleg viðskiptatækifæri. í Bandaríkj-
unum einum, stærsta markaði líftækn-
innar hingað til, er áætlað markaðsverð
afurða, sem hlotið hafa opinbert sam-
þykki, metið á 4 milljarða dala.
Alpha interferon, erfðatæknilega
framleiddur hvati fyrir ónæmiskerfið, er
sláandi dæmi um viðskiptalegan árangur
líftækninnar. Gefin var heimild til notk-
unar lyfsins til meðferðar á tiltölulega
sjaldgæfu formi krabbameins á árinu
1986.
Síðan hefur notkun alpha interferons
verið leyfð til 18 mismunandi nota, þar
með talin meðferð við alnæmi. Nú eru
allar horfur á að þessi markaður, sem
árið 1986 var álitinn geta velt í mesta
lagi 50 milljónum dala, geti náð millj-
arðs dala veltu fyrir árið 1995.
Joe Edelman er varaforseti Labé, Simpson &
Company, Inc., rannsóknafyrirtæki í veröbréfageir-
anum fyrir hátækni- og líftæknifyrirtæki.
Líftæknin hefur innleitt nýja tíma í
uppbyggingu lyfja, sem mun hafa djúp-
tækar breytingar í för með sér fyrir
framleiðslu lyfja, tækja til sjúkdóms-
greininga og mótefna. Nærtækustu áhrif
líftækninnar varða framleiðslu sömu
kemískra efna og okkar eigin líkamar
framleiða með náttúrlegum hætti.
Mannlegur vaxtarhormón var fyrsta
líftækniafurðin markaðssett af Genent-
ech, stærsta líftæknifyrirtæki í heimi, og
hefur gert fjölda barna, sem skortir
vaxtarhormón, kleift að vaxa tiltölulega
eðlilega.
í grein, sem birtist í New England
Journal of Medicine nýlega, var lýst nið-
urstöðum rannsókna á notkun tuttugu
og eins eldri manns á vaxtafhormónum.
Árangurinn kom gersamlega á óvart.
Meðferðin minnkaði fitu sjúklinganna
um 14,4 prósent, jók vöðvamassa um
8,8 prósent og bætti þykkt húðarinnar
um 7,1 prósent. Mörgum mannanna
fannst þeir yngjast um tuttugu ár. Rann-
sóknin gefur í skyn að vaxtarhormón
geti snúið aldurshnignun við - markaðs-
möguleikarnir gætu verið ótæmandi.
Líftækninni hefur líka verið beitt við
framleiðslu mjög lofandi afurðar, tPA,
(tissue plasminogén actiVator), efni sem
leysir upp blóðkekki og er mikið notað í
sambandi við hjartaáföll til að leysa upp
kekki sem áfallinu valda. Nýlega kom
hins vegar í ljós, að tPA var mjög
áþekkt miklu ódýrara lyfi, sem framleitt
er án líftæknilegra aðferða. Þetta er ein
hættan sem steðjar að líftæknivörum -
að loknum löngum þróunarferli getur
komið í ljós að varan er alls ekki lengur
ódýrasta og skilvirkasta afurðin á mark-
aðnum.
Erythropoietin (EPO) örvar fram-
leiðslu rauðu blóðkornanna í líkaman-
um og getur ráðið bót á blóðleysi, sem á
sér ýmsar orsakir, þar á meðal nýma-
sjúkdóma, krabbamein og alnæmi. EPO
gæti í framtíðinni náð árlegri sölu upp á
1 milljarð dala.
EPO er líka gott dæmi um hinn gífur-
lega kostnað sem fylgir notkun líftækni-
afurða. Meðferð á sjúklingum með
nýmasjúkdóma í Bandaríkjunum getur
kostað frá 4 þúsund til 8 þúsund dollara
árlega. Með sívaxandi kostnaði við
heilsugæslu í flestum löndum verður háa
verðið á líftæknilyfjum veruleg hindrun í
vegi fyrir almennri notkun þeirra.
Síðasta meiriháttar líftækniafurðin,
sem fram hefur komið, er sjúkdóms-
greinir við lifrarbólgu. Þar eð fólk fram-
leiðir náttúrlega andefni við veirunni,
má nota þennan greini til að bera kennsl
á sýkt blóð. Greinirinn er nú notaður til
að skanna blóð í nær öllum þróuðum
löndum.
Um miðjan næsta áratug ætti veruleg-
ur árangur að hafa náðst í meðferð
krabbameins, smitandi sjúkdóma og
annarra þátta sem ógna lífi og heilsu. Á
næstu öld getum við vænst nýrrar með-
ferðartækni við heilatruflunum eins og
Alzheimer-sjúkdómnum og arfgengum
sjúkdómum eins og cystic fibrosis (alvar-
leg truflun á starfsemi lungna og melt-
ingarfæra). Einhvern tíma kunnum við
að ná svo langt að geta „slökkt“ á slæmu
geni eins og kabbameinsvaldandi geni
og „kveikt“ aftur á góðum genum.
Vonandi verður það vald sem í líf-
tækninni felst alltaf notað til að hafa já-
kvæð áhrif á líf okkar og gert öllum
jafnaðgengilegt.
Fruma, fruma, fruma!
Afurð Markaðsmætti
(í milljónum)
Mannlegt insúlín US$ 1100
Mannlegt vaxtarhormón 400
Álpha interferon 600
Orthoclone OKT-3 60
Lifrarbólgumótefni 300
Örvi (tPA) 400
Erythropoietin (EPO) 850
Lifrarbólgugreinir 400
HEIMILD: JOE EDELMAN
HEIMSMYND 111