Litli Bergþór - des. 2018, Síða 23
Litli-Bergþór 23
Íslands styrkti efniskaup að hluta. Brúin mun
auðvelda göngu- og hjólreiðafólki að komast á
milli Hvítárness og Árbúða á sumrin, en á veturna
verður hún tekin upp.
Merkingar reiðleiða á Biskupstungnaafrétti. Í
samvinnu við Landssamband hestamanna, hafa
heimamenn í Biskupstungum unnið í haust að því
þarfa verkefni að kortleggja og merkja reiðleiðir
á Biskupstungnaafrétti, til að stýra þar umferð
og vernda með því viðkvæm gróðursvæði. Voru
settir upp 15 vegprestar og eru á þeim 42 vegvísar.
Sá syðsti er við Gullfoss og svo rekja þeir sig
norður allan afrétt inn á Hveravelli. Við helstu
áningarstaði hafa svo verið sett upp fræðslu- og
upplýsingaskilti, þ. við Fremstaver, Árbúðir,
Svartárbotna, og í Sóleyjardal fyrir þá sem fara
um Þjófadali. Á skiltunum er kort af nærliggjandi
svæði, örnefni, stutt ágrip af sögu viðkomandi
svæðis og upplýsingar um það hvernig ferðast á
um hálendið. Skiltin eru bæði á ensku og íslensku.
Á hverjum vegpresti eru hlaupandi númer 801.01
til 15. Þau eru hnitsett í kortasjá LH, og þar með
tengd neyðarlínunni. Þetta eykur því til muna
öryggi vegfarenda. Vinna við verkefnið er unnin
í sjálfboðavinnu. Eini kostnaður við verkefnið er
framleiðsla skiltanna, sem var greiddur af LH.
Á Skálholtshátíð 22. júlí vígði frú Agnes M.
Sigurðardóttir, biskup Íslands, sr. Kristján
Björnsson, til embættis vígslubiskups í Skálholti,
í stað Kristjáns Vals Ingólfssonar, sem lét af
störfum, ári síðar en aldur hans leyfir.
Prestar og biskupar gengu hempuklæddir og
skrýddir úr skóla til kirkju með öðrum vígslu-
vottum og gestum. Eftir messuna bauð biskup
Íslands uppá kaffi í Skálholtsskóla.
Í tengslum við Skálholtshátíð undirritaði biskup
Íslands samning við Skógræktarfélag Íslands
um að félagið fái afnot af 230 ha úr landi Skálholts
til 90 ára. Er ætlunin að rækta þar yndisskóg
með göngustígum, sem yrði hluti af framlagi
kirkjunnar til kolefnisjöfnunar.
Gjaldtaka í Skálholti. 1. september var byrjað að
taka gjald af ferðaþjónustufyrirtækjum sem koma
með farþega í rútum í Skálholt. Er gjaldið kr 3.000
fyrir stórar rútur og 1.500 fyrir minni rútur, en það
veitir aðgang að safnahúsi og kjallara kirkjunnar
auk salerna. Er fyrirtækjunum sendur reikningur
eftir á fyrir þessari þjónustu.
Nýr sveitarstjóri.
Þann 10. júlí sam þykkti
sveitar stjórn ein róma að
ráða Ástu Stefáns dóttur,
fyrrum bæjarstjóra Ár-
borgar, sem sveitar stj óra
Blá skógabyggðar. Ásta
er lög fræðingur að mennt
og var hún ein af 24 um-
sækjendum um embættið,
en Hagvangur sá um
ráðningarferlið. Hún tók
við starfinu þ. 16. ágúst.
Ásta var síðan í liði bæjar- og sveitarstjóra í
Útsvari 2. nóvember. Andstæðingur þeirra var lið
Norðurþings. Lið Ástu sigraði ekki.
Á Spóastöðum er verið að byggja fjós sem er um
1550 fermetrar að stærð og með 140 legubásum
fyrir mjólkurkýr. Í því er einnig gert ráð fyrir stíu
Brúin við Árbúðir.
Ásta Stefánsdóttir.
Kristján Björnsson nývígður (mynd pms). Þorfinnur í nýja fjósinu (mynd Ólafur Sæmundsson).