Litli Bergþór - Dec 2018, Page 24
þar sem smákálfar upp að 2 mánaða aldri verða
aldir, þar til þeir verða fluttir yfir í „gamla“ fjósið,
þar sem kálfa og geldneytauppeldið verður. Gert
er ráð fyrir að mjólkurkýrnar verði færðar í nýja
fjósið fyrir jól en þegar þetta er ritað er ekki ljóst
hvort það tekst. Tveir róbótar af gerðinni Lely A5,
eru komnir í hús. Þegar starfsemin á neðri hæðinni
verður komin í gagnið verður hafist handa við að
innrétta skrifstofu og kaffistofu á efri hæðinni.
Eins og nærri má geta er hér um að ræða
hátæknifjós með allan besta aðbúnað fyrir kýr
og menn, velferðarstíu, rafmagnsbursta og
sköfuróbót.
Bygging nýs leikskóla hafin. Eins og lesendum
Litla-Bergþórs er kunnugt, hefur Leikskólinn
Álfaborg í Reykholti verið á hrakhólum
með húsnæði síðan mygla greindist í gamla
barnaskólahúsinu, þar sem leikskólinn var til
húsa í mörg ár. Var þá rýmt til fyrir starfsemina í
vesturálmu grunnskólans, en nú hillir loks undir
betra ástand í húsnæðismálum skólans.
Í september hófst uppsteypa nýrrar byggingar fyrir
leikskólann Álfaborg, á lóð milli grunnskólans og
sundlaugar. Húsið verður 540 fm, þrjár deildir
og rúmar 60 börn. Stefnt er að því að skólahúsið
verði tekið í notkun 1. ágúst 2019. Það eru VA-
arkitektar sem hanna húsið, en Verkís sér um
verkfræðihlið hönnunarinnar. Ari Oddsson ehf
sér um uppbyggingu fyrsta áfanga, þ.e. sökkul,
uppsteypu, einangrun, klæðningu, glugga, hurðir
og frágang á þaki.
Annar áfangi, þ.e.innanhúsfrágangur og lóð
leikskólans, var boðinn út í haust og eru viðræður
í gangi við lægstbjóðanda, HK verktaka.
Bergholt. Vegna fjölgunar leikskólabarna og
tilheyrandi þrengsla í bráðabirgðahúsnæði
leikskólans í grunnskólanum, var eldri deild
Leikskólans Álfaborgar flutt yfir í Bergholt í
haust. Eldri borgarar, sem jafnan hafa aðstöðu
þar, hafa því tímabundið flutt sig um set yfir í
Aratungu og jafnvel víðar, til að liðka um fyrir
leikskólastarfseminni þar til nýi leikskólinn
verður tekinn í notkun.
Ekki varð af því að Sveitahátíðin Tvær úr
Tungunum væri haldin í ágúst þetta árið, eins og
verið hefur mörg undanfarin ár. Var viss þreyta
hlaupin í mannskapinn sem haldið hefur utan um
hátíðina frá upphafi og aðrir ekki tilkippilegir til
aðstoðar. Verður áframhaldið skoðað að ári.
Sindri bakari er nú hættur starfsemi á Flúðum.
Sveitungar geta samt nálgast bakarísgóðgæti í
Bjarnabúð frá Guðna bakara á Selfossi.
Borað var eftir heitu vatni í Höfða í sumar og
fengust ca 3-4 sekúndulítrar af 43 gráða heitu
vatni á rúmlega 400 metra dýpi.
Ný vefsíða um Laugarás. Þann 29. september, í
tilefni af því að þá var öld liðin frá fæðingu Skúla
Magnússonar í Hveratúni, var opnuð forsýning á
vefnum laugaras.is, þar sem fjallað er um sögu
Þorpsins í skóginum í máli og myndum. Þann
11. nóvember, þegar öld var liðin frá því að
heimstyrjöldinni fyrri lauk, voru opnaðir fleiri
þættir og síðan enn fleiri þann 1. desember, þegar
öld var liðin frá því Ísland varð frjálst og fullvalda
ríki. Hvað gerist þann 30. desember?
Páll M. Skúlason vinnur að þessu verki og Guðný
Þórfríður Magnúsdóttir frá Hveratúni er honum
til aðstoðar við veftæknilega þætti. Vinnan við
þennan vef nýtur stuðnings frá Uppbyggingarsjóði
Suðurlands.
Slow food. Í september fékk Dóra Svavarsdóttir
frá Drumboddsstöðum, sem situr í stjórn Slow
food á Íslandi, þær Sigríði í Arnarholti og Jórunni
systur sína með sér á Slow food matvælasýningu
í Torino á Ítalíu. Er ráðstefna þessi haldin á
tveggja ára fresti. Kjörorð samtakanna er "Food
for change". Viðtöl birtust við þær í Landanum að
því tilefni.
Það sem felst í kjörorðunum er að láta matar-
innkaupin gera það besta fyrir jörðina okkar
Höfði.