Litli Bergþór - dec 2018, Qupperneq 26
26 Litli-Bergþór
Sveitarstjórn samþykkti deiliskipulagsbreytingu,
vegna hótelbyggingar og baðlóns á Efri-
Reykjum, á fundi sínum 31. október.
Kynnt hefur verið endurskoðað deiliskipulag
fyrir Reykholt sem gerir m.a. ráð fyrir
íbúðargötu sunnan við Kistuholt, Brekkuholti
þar sem gert er ráð fyrir 11 lóðum með 23-31
íbúðum og byggð sunnan við þjóðveginn, vestan
Bjarnabúðar, Tungurima og Borgarrima, þar
sem gert er ráð fyrir 46 lóðum með 94-143 íbúð-
um. Skipulagstillagan er í kynningarferli.
Opnun facebook síðu Bláskógabyggðar. Á
200. fundi byggða ráðs 1. nóvember opnaði for-
maður byggðaráðs, Valgerður Sævarsdóttir nýja
facebooksíðu Bláskógabyggðar, en henni er ætlað
að koma á framfæri upplýsingum og tilkynningum
til íbúa sveitarfélagsins og annarra.
Viðgerð á steindum gluggum Gerðar Helga-
dóttur í Skálholtskirkju er nú lokið. Síðustu
gluggarnir voru settir aftur á sinn stað í
lok nóvember. Það voru starfsmenn þýska
fyrirtækisins Oidtmann í Þýskalandi sem sáu
um verkið, en það verkstæði smíðaði upphaflega
glugga Gerðar. Einnig
gerðu Þjóðverjarnir
við altarisverk Nínu
Tryggvadóttur, en það
skemmdist nokkuð í
Suðurlandsskjálfunum
í upphafi aldarinnar.
Verkið var hreinsað
og mosaikflísarnar
slípaðar upp. Þann
16. desember var
haldið upp á lok
viðgerða á þessum
þjóðargersemum, með
messu og samkomu í
kirkjunni.
Tónleikar. Þann 1. desember var 100 ára
fullveldis á Íslandi m.a. minnst með tón-
leikum í Skálholti. Þar tóku þátt Skálholtskór-
inn, Kirkjukór Stóra-Núps og Ólafsvallakirkju,
Karlakór Selfoss auk kóra úr Rangárvallasýslu,
ein söngvara og hljóðfæraleikara. Var það
skemmti leg samkoma og vel mætt.
Jólamarkaður. Kvenfélag Biskupstungna
hélt upp á fullveldisdaginn 1. desember með
sínum árlega jólamarkaði. Var markaðurinn
mjög fjölbreyttur í þetta sinn og mikið af
fallegu handverki. Veglegt kaffihlaðborð Kven-
félagsins var á sínum stað sem og tombólan
og piparkökuhúsakeppnin. Voru það skóla-
bræðurnir Gunnar Tómasson, Magnús Haf-
steinsson og Skírnir Eiríksson, sem reyndust eiga
flottasta piparkökuhúsið í þetta sinn.
Styrkir: Á jólamarkaðinum afhenti formaður
Kvenfélagsins, Agnes Geirdal, formlega 20
standborð með dúkum til afnota í Aratungu, að
verðmæti kr 543.000.
Kvenfélagið styrkti líka fleira á árinu. M.a. gaf
félagið: ¼ hluta kostnaðar eða kr 225.000 til
smíði nýrrar harmóníkuhurðar milli salanna í
Aratungu, kr 250.157 til kaupa á 5 spjaldtölvum
fyrir unglingastigið í Bláskógaskóla, kr 100.000
til kaupa á nýju hlaupabretti í þreksalinn í
íþróttahúsinu og 20.000 til viðhalds ljósakeðju
á Iðubrú. Kr. 200.000 runnu í Sjóðinn góða
og 200.000 til annarra samfélagslegra verkefna.
Einnig má telja 29.500 kr í ritunarsjóð SSK
og 25.000 til kaupa á lífsmarkamæli fyrir
HSu á Selfossi, í félagi við önnur kvenfélög í
uppsveitunum.. Samtals gaf Kvenfélagið því um
1,6 milljónir til samfélagsins á árinu.
Bragi Þorsteinsson á Vatnsleysu lést
á Sjúkrahúsinu á Selfossi 12. september.
Útför hans var gerð frá Skálholts -
dómkirkju 22. september.
Vigdís Kristjánsdóttir, Ásakoti lést
á heimili sínu 28. október.
Útför hennar fór fram í kyrrþey
frá Bræðratungukirkju 3. nóvember.
Andlát
Fyrirhugað hótel við Efri Reyki.