Litli Bergþór - Dec 2018, Page 30
30 Litli-Bergþór
Kvenfélag Biskupstungna
sendir félögum
sínum og Sunnlendingum
öllum bestu óskir
um gleðileg jól og farsælt
komandi ár.
Þökkum ánægjuleg
samskipti á
liðnum árum.
Mér datt í hug mynd. Henni brá mér fyrir
hugskotssjónir á örskotsstundu. Hún var skotin
örvum, féll í tómið og örvaði ímyndunaraflið.
Taflið var á enda, skák! Og mátunarklefarnir
allir uppteknir. Hélt uppteknum hætti, hætti,
hætti við og hélt áfram. Rokk og rólegan
æsing, engan asa Hláka! Það kann að hlána og
hlýna hjá keisaranum í Kína í sána baði með
búbblum og stífluðum innyflum. Flumsa yfir
nýrri hugdettu, fer ég hálfa leið með hugarburði.
Borin, barnfædd, dáin og grafin.... og gleymd.
Man ekki hvað ég man, en rámar í hitt sem ég
gleymdi og geymdi í óminnisástandi, vakandi,
andandi, sofandi, dreymandi. Set ORA grænar
í draumadósaupptakarann. Saga hugsanir
niður í renninga og við dagrenningu byrja
taugarnar að tengjast uns riðið hefur verið
Hugmynd á flugi
Unnur Malín Sigurðardóttir:
hugrenningatengslanet sem er óumflýjanlegt,
alltumlykjandi og skapar ný viðmið við miðlæga
gagnagrunnhyggni. Hygg að og gæt hugsana
þinna, stöðva slæmar, örva góðar.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
upplýsingar og borðApantanir
í 486 1110 eða 896 6450