Litli Bergþór - dec 2018, Qupperneq 30

Litli Bergþór - dec 2018, Qupperneq 30
30 Litli-Bergþór Kvenfélag Biskupstungna sendir félögum sínum og Sunnlendingum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum ánægjuleg samskipti á liðnum árum. Mér datt í hug mynd. Henni brá mér fyrir hugskotssjónir á örskotsstundu. Hún var skotin örvum, féll í tómið og örvaði ímyndunaraflið. Taflið var á enda, skák! Og mátunarklefarnir allir uppteknir. Hélt uppteknum hætti, hætti, hætti við og hélt áfram. Rokk og rólegan æsing, engan asa Hláka! Það kann að hlána og hlýna hjá keisaranum í Kína í sána baði með búbblum og stífluðum innyflum. Flumsa yfir nýrri hugdettu, fer ég hálfa leið með hugarburði. Borin, barnfædd, dáin og grafin.... og gleymd. Man ekki hvað ég man, en rámar í hitt sem ég gleymdi og geymdi í óminnisástandi, vakandi, andandi, sofandi, dreymandi. Set ORA grænar í draumadósaupptakarann. Saga hugsanir niður í renninga og við dagrenningu byrja taugarnar að tengjast uns riðið hefur verið Hugmynd á flugi Unnur Malín Sigurðardóttir: hugrenningatengslanet sem er óumflýjanlegt, alltumlykjandi og skapar ný viðmið við miðlæga gagnagrunnhyggni. Hygg að og gæt hugsana þinna, stöðva slæmar, örva góðar. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. upplýsingar og borðApantanir í 486 1110 eða 896 6450

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.