Litli Bergþór - Dec 2018, Page 40

Litli Bergþór - Dec 2018, Page 40
40 Litli-Bergþór voru kannski í fyrsta sinni fjarri foreldrum sínum og ekki mikið fyrir sveitalífið. Ég vil sérstaklega taka fram að aldrei kom fyrir neitt slys meðan ég var í Bræðratungu enda reyndi Valgerður mamma þín að brýna fyrir okkur að fara okkur ekki að voða. Það var ekki að ástæðulausu því hætturnar voru margar. Þú spyrð að því hvað unga kynslóðin geti lært af þessu. Eins og við höfum talað um þá voru starfshættir og lífsviðhorf fólks allt öðruvís en nú er og eru þó ekki nema rúm 60 ár síðan. Skólatíminn var miðaður við það að krakkarnir gætu tekið þátt í sveitastörfunum og þjóðfélagið ræktaði þetta hjá fólki; að það ætti að vinna. Nú er það orðið svo að það er nánast lögbrot að láta barn vinna áður en það verður 17 ára gamalt. Það er verið að færa fólk svo langt frá lífsbaráttunni og því hvaða ábyrgð hver og einn hefur á sjálfum sér og öðrum. Mér finnst það ekki rétt og mér finnst að börn og unglingar eigi að taka meiri þátt í atvinnulífinu. Þau kynnast þá líka fleiru en bara þröngri fjölskyldu sinni. Ég held að það sé partur af því sem þroskar fólk að kynnast lífinu á sem fjölbreyttastan hátt. Svo lærir það að taka ábyrgð á lífi sínu og gjörðum og í því er fólginn mesti lærdómurinn hvað sem allri skólaspeki líður. Nokkur orð um viðmælandann Magnús Gunnarsson. Það var með nokkurri eftirvæntingu að ég sem barn að aldri átti von á sumbörnum frá Reykjavík heim til okkar í Bræðratungu. Það var ef til vill vegna þess að ég átti enga leikfélaga í Tunguhverfinu og svo fluttu sumarbörnin með sér ferskan andblæ. Yfirleitt voru 4 – 5 sumarbörn hjá foreldrum mínum enda gátu ekki fleiri verið vegna plássleysis, bæði við matarborðið og annars staðar. Einu sinni taldi ég 12 – 13 við matarboðið og hefur það verið mikið verk fyrir móður mína að elda ofaní mannskapinn og koma öllum fyrir. Magnús Gunnarsson, sem hér segir frá þessum eftirminnilegu árum, var ekki skyldur foreldrum mínum né tengdur. Vinkona móðir hans hafði verið á Torfastöðum og kom þessu í kring. Það er skemmst frá því að segja að Maggi vann brátt hug og hjörtu allra vegna glaðlyndis síns og dugnaðar. Hann var í mörg sumur hjá foreldrum mínum. Fljótlega kom frændi hans Kristján Jóhannsson til okkar og kom sér jafn vel og frændi hans þótt þeir væru ekki beinlínis líkir. Síðan var Lína systir Magga tvö sumur í Ásakoti og nokkur sumur í Bræðratungu og Kristín systir þeirra var eitt sumar hjá Svenna og Siggu, en þá var ég farinn að heiman. Magnús fór í Verslunarskólann og Háskóla Íslands. Gladdist ég mjög yfir því hvað hann var vinsæll, bæði af kennurum og félögum og kom mér það reyndar ekki á óvart. Eftir nám var hann eftirsóttur til þess að veita félögum og samtökum forystu og var t.d. framkvæmdstjóri Vinnuveitendasambandsins um skeið og einnig SÍF, Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda. Síðastliðin 20 ár hefur hann rekið eigið fyrirtæki sem fæst við ráðgjöf og fjárhagsleg málefni. Hann er kvæntur Gunnhildi Gunnarsdóttur og eiga þau tvö börn. Frásögn hans af sveitalífinu í Tunguhverfinu fyrir 60 árum er mjög upplýsandi fyrir þennan tíma og mér þykir vænt um að Litli-Bergþór skuli óska eftir að fá hana til birtingar. Páll Skúlason frá Bræðratungu. Ketilbjörn ehf. Vinnuvélaverktaki Syðri – Reykjum Grímur Þór - Sími 892 3444 Gleðileg jól

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.