Litli Bergþór - des. 2018, Síða 51

Litli Bergþór - des. 2018, Síða 51
Litli-Bergþór 51 leikfimi af miklum móð og æfum snilli okkar í boccia. Að því loknu fáum við okkur smá sundsprett og látum síðan fara vel um okkur í heita pottinum þar sem landsins gagn og nauðsynjar eru krufin til mergjar og væri betur ef ríkisstjórnin hefði nú smá samráð við svona skynsamt fólk. Alla fimmtudaga hittumst við kl. 14:00 í Aratungu og eigum góða stund saman við alls konar spil, prjónaskap, boccia, spjall og fleira, eftir því hvað hver kýs. Þessir fundir voru fluttir úr Bergholtinu í byrjun nóvember yfir í Aratungu, þar sem við lánuðum leikskólanum Bergholt tímabundið. Við verðum líkast til í Aratungu a.m.k. fram að áramótum, jafnvel lengur, en það fer eftir því hversu hratt og vel gengur að setja í stand viðbótina við Bergholtsaðstöðuna. Sveitarfélagið bauð okkur í ferð að skoða virkjunina á Brú einn fimmtudaginn í nóvem- ber til að bæta okkur upp að Aratunga var upptekin á okkar tíma. Var það fróðlegt og skemmtilegt að sjá og var okkur boðið að þiggja kaffi á Hótel Geysi á eftir. Að venju er það þannig að fyrsta fimmtudag í mánuði eru „fínni“ fundir, sem merkir að þá fáum við einhverja til að tala yfir hausamótunum fína kaffið en hitt sem er mjög fínt líka kostar 500 krónur. Það er Brynja Eyþórsdóttir sem hefur séð um kaffið hjá okkur það sem af er vetrar. Við höfum verið í lauslegu samstarfi við síðuna 60+ um að koma upplýsingum á framfæri til þeirra sem eru með Fésbókina og vonumst við til að það samstarf eflist frekar en hitt. Þá viljum við að venju bjóða alla 60 ára og eldri velkomna í félagið. Við hlökkum til að fá ykkur og sjá ykkur. Fyrir hönd og eftir leiðsögn, ritara Félags eldri borgara í Biskupstungum. Svava Theodórsdóttir. Gleðileg jól og farsælt komandi ár Eru „febbarar“ á hrakhólum í þessari sveit? á okkur um hin ýmsu málefni. Þegar því er lokið eru kaffiveitingar sem slá hverri meðal fermingarveislu við í fínheitum enda kostar það meira en kaffið hina fimmtudagana. Þessu er þó öllu stillt í hóf, 1000 krónur kostar Við listaverk Dagnýjar Guðmundsdóttur í Safamýri. Hlustað á fyrirlestur í Bergholti.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.