Litli Bergþór - des. 2018, Blaðsíða 53

Litli Bergþór - des. 2018, Blaðsíða 53
Litli-Bergþór 53 fermdur í Hruna vorið 1877 og fær þennan vitnisburð:6 „les dável, kann ágætlega, skilur ágætlega, siðferði ágætt“. Árið 1880 er Lárus enn á Kotlaugum, þá 18 ára vinnumaður, en fyrir 1890 er hann kominn að Tungufelli og er þar vinnumaður til 1897.7 Þá urðu ábúendaskipti þar og Lárus fluttist norður að Eiðsstöðum í 6 Prestþjónustubók Hrunakirkju. Tekið er fram að ekkert fermingarbarnanna sé „sveitarbarn“, þ.e. á framfærslu hreppsins. 7 Í skrá um örnefni í Tungufellslandi eftir Guðmund Jónsson á Kópsvatni (1930 – 1989) er tvívegis vitnað til Lárusar um tóftir beitarhúsa frá Tungufelli. Annað þeirra hefði verið í svonefndri Gulltorfu, frá 18. öld að talið var, en hitt (Dalhúsið) hafði verið flutt „vegna aðfennis áður en Lárus kom að Tungufelli fyrir 1880“. Hann er reyndar skráður á Kotlaugum í manntalinu 1880 en hefur líklega komið að Tungufelli skömmu síðar. Húnaþingi. Þar var hann skráður vinnumaður í manntali árið 1901, sagður „fjármaður og sláttumaður“. Fjármennskan, helsta vetrarstarf margra vinnumanna, var talsvert ábyrgðarstarf. Það fólst einkum í vetrarfóðrun sauðfjárins sem víðast hvar var undirstaða afkomunnar hjá bændafólki. Vandinn var sá að fóðra nægilega vel með hóflegri heygjöf, nýta vetrarbeitina eins og mögulegt var til að spara hey. Nú er komið að tilefni þessara skrifa. Þegar Lárus var í Tungufelli hélt hann í fimm vetur, 1889/90 til 1893/94, skýrslu um fóðrun fjár í tveimur beitarhúsum á Tungufellsdal, Dalhúsi og Skógarkoti. Lárus sá um gegningar í þeim báðum og skráði nákvæmlega hvaða daga var gefið og hversu mikið af heyi í hvert skipti. Í lok hvers vetrar reiknaði hann út hve mikið hafði verið gefið yfir veturinn og hvað það var mikið á hverja kind. Þetta skrifaði Lárus skilmerkilega í litla vasabók sem enn er til. Bókina hefur hann líklega skilið eftir í Tungufelli þegar hann fór þaðan árið 1897, svo mikið er víst, og hún varðveittist í ætt húsbændanna sem þá tóku þar við. Í Dalhúsinu voru 60-70 ær á þessum árum og svipaður fjöldi sauða í Skógarkoti. Vetrarbeitin var að sjálfsögðu nýtt eins og hægt var, einkum fyrir sauðina sem þurftu þess vegna mun minna heyfóður en ærnar. Ágætt beitarland var á Dalnum, þar með víði- og birkikjarr í grennd við bæði fjárhúsin. Dagsgjöf á hvort hús reiknaði Lárus í „kýrlaupum“ sem tóku sem svaraði málsgjöf af heyi handa kú. Eftir veturinn umreiknaði hann heyið í hestburði eða pund á hverja kind. Taflan hér á eftir sýnir helstu þætti í gjafatöflum Lárusar. Hér er reiknað með 5 kg af heyi í hverjum kýrlaup en Lárus reiknaði að jafnaði með 10 pundum. Ekki var gefið daglega svo að gjafadagar eru mun færri en dagarnir í tímabilinu frá því fyrst er gefið þangað til gjöf er alveg hætt. ær sauðir ær sauðir ær sauðir ær Fjöldi fjár 62 61 70 70 68 67 64 Fyrst gefið 20. des 20. des 8. jan 23. jan 30. nóv 4. des 29. nóv Síðast gefið 16. apr 7. apr 15. apr 29. mar 2. maí 14. apr 3. maí Gjafadagar 114 91 73 34 127 86 103 Gefið, kýrlaupar 763 511 536 278 928 525 747 Gefið alls, kg 3815 2555 2680 1390 4640 2625 3735 Gefið, kg/kind 62 42 38 20 68 39 58 1889/90 1891/92 1892/931890/91 sauðir ær sauðir 66 63 66 13. des 7. des 13. des 9. apr 21. apr 1. apr 45 101 54 300 761 401 1500 3805 2005 23 60 30 1893/94 Kýrlaupar og hestburðir.... dásamlegir tímar Forsíða vasabókar Lárusar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.