Fréttablaðið - 26.09.2015, Síða 4
MADONNA ÍTALÍU VIKULEGA 16. JAN. – 27. FEB.
Eitt vinsælasta skíðasvæði
Íslendinga er aftur komið í
sölu. Flogið vikulega frá 16.
jan. – 27 feb. með Icelandair.
Farastjóri, Níels Hafsteinsson
á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli á
tímabilinu 16.–23. janúar.
99.900 KR.
VERÐ FRÁ
HÓPAR? SENDU FYRIRSPURN Á HOPAR@UU.IS
Tölur vikunnar 21.9.2015 - 27.9.2015
2.300
milljarða króna
sekt á VW yfir höfði sér frá
Umhverfiseftirliti Banda
ríkjanna (EPA)
520
milljarðar króna
yrði lágmarkskostnaður
vegna hópmálsóknar bíla
eigenda í Bandaríkjunum
940
milljarða króna
hefur Volkswagen lagt til
hliðar til að mæta kostnaði
vegna málsins
Þýskaland Nýr forstjóri hefur
tekið við stýrinu hjá þýska bílafram-
leiðandanum Volkswagen eftir að
dísilsvindlmálið kom upp. Þrátt fyrir
nýjan forstjóra má búast við áfram-
haldandi erfiðleikum og fleiri mál-
sóknum. Óvíst er hvort fyrirtækið
nái að endurheimta traust viðskipta-
vina sinna sem tekið hefur áratugi að
byggja upp.
Nýi forstjórinn heitir Matthias
Müller og tekur hann við af Martin
Winterkorn. Müller er fyrrverandi
forstjóri Porsche, sem er í eigu
Volkswagen. Síðasta vika hefur verið
stormasöm fyrir fyrirtækið eftir að
í ljós kom að það hefði komið fyrir
svindlhugbúnaði í 11 milljónum bíla
víðsvegar um heiminn þannig að bíl-
arnir virðast losa minna af mengandi
lofttegundum en þeir gera í raun.
Ráðning nýs forstjóra er einungis
fyrsta skrefið í að endurvekja traust
viðskiptavina til fyrirtækisins. Verk-
efnið verður miklu víðtækara. Enn er
óljóst hversu margir bílar í Evrópu eru
með hugbúnaðinn. „Allt í einu ógnar
Volkswagen þýska hagkerfinu meira
heldur en gríska skuldakreppan,“
sagði Carsten Brzeski, aðalhagfræð-
ingur ING bankans, í samtali við Reu-
ters. Bílaiðnaðurinn hefur gríðarleg
áhrif á hagkerfið í landinu. Þýska-
land flutti út bíla og bílahluta fyrir
jafnvirði 29 þúsund milljarða króna
á síðasta ári. Það nemur fimmtungi
af heildarútflutningi landsins.
Umhverfiseftirlit Bandaríkjanna
(EPA) gæti sektað VW um allt að 18
milljörðum dollara einungis vegna
482 þúsund bifreiða í Bandaríkj-
unum. Þar að auki hafa eigendur og
leigjendur bílanna hafið hópmál-
sókn. Á síðasta ári þegar slík hóp-
málsókn átti sér stað þurftu Hyundai
og Kia að greiða 300 milljónir dollara
(39 milljarða króna) fyrir að ofmeta
sparneytni bíla sinna. Þeir greiddu
hverjum eiganda að meðaltali 353
dollara (45 þúsund krónur) í skaða-
bætur. Ef bandarískir bílaeigendur
fengju sömu meðferð myndu tæp-
lega fjórir milljarðar dollara bætast
við kostnað VW. Eftir standa að
minnsta kosti 10,5 milljónir bíla
víðsvegar um heiminn og óvíst er
hversu háar sektir hvert land mun
leggja á bílaframleiðandann. Frakk-
land hefur nú þegar hafið rann-
Nýr forstjóri en
áframhaldandi
erfiðleikar hjá
Volkswagen
Ef í ljós kemur að svindlhugbúnaður hafi verið
í Volkswagen-bílum sem fluttir voru inn til Íslands,
þá er tollstjóra heimilt að endurheimta vanreiknuð
gjöld allt að sex ár aftur í tímann. Nýr forstjóri
Volkswagen í Þýskalandi var kynntur til leiks í gær.
Yfirvöld ríkja í Evrópu eru byrjuð eða búa sig undir
að rannsaka útblásturshneykslið sem uppgötvast
hefur í Bandaríkjunum.
30
milljónir
hafa verið greiddar þingmönnum
í dagpeninga á ferðalögum á
þessu kjörtímabili.
33 milljörðum
króna vörðu einstaklingar til heil-
brigðismála á síðasta ári.
50
einstaklingar
sóttu um hæli á
Íslandi í síðasta
mánuði.
250 milljarða
fjárfesting er áætluð í
fjórum stóriðjuverk-
efnum fram til ársins
2018.
113.000 manns
heimsóttu gesta-
stofur orkufyrir-
tækjanna árið 2014.
14,8
ár
er meðalaldur ökutækja
sem er fargað á Íslandi.
12 metra
hækkun
varð í Háls-
lóni á aðeins
tveimur vikum í
september.
370.000 krónur
er hámarksgreiðsla
í fæðingarorlofi –
en var yfir 800.000
árið 2008.
25
milljarða evra
lækkun varð
á markaðs-
verðmæti
Volks wagen í
vikunni.
Volkswagen á sér langa sögu og var stofnað árið 1937. Adolf Hitler réð
þá Ferdinand Porsche til að fylgja fordæmi Henry Ford og hanna „bíl
fólksins“ fyrir Þýskaland. Hitler nefndi bílinn fyrst KdF-Wagen, en al-
menningur kallaði bílinn Volkswagen, bókstaflega bíll fólksins. Bílafram-
leiðandinn er sá næststærsti í heiminum í dag, á eftir Toyota. Þrír bílar
VW eru á lista 24/7 Wall St yfir 10 mest seldu bíla allra tíma, það eru
Volkswagen Golf, Volkswagen-bjallan og Volkswagen Passat.
sókn á málinu og í gær tilkynnti
norska efnahagsbrotalögreglan að
hún hygðist rannsaka hvort VW
hefði brotið gegn norskum lögum í
tengslum við útblásturshneykslið.
Ef hugbúnaðurinn reynist vera í ein-
hverjum vélum sem flutt hafa verið
til Íslands, þá er Tollstjóra heimilt að
endurákvarða gjöld allt að sex ár aftur
í tímann. Gjöld af ökutækjum reiknast
eftir útblæstri sem skráður er í öku-
tækjaskrá. Ef útblástur bifreiða hefur
verið ranglega skráður af innflytjanda
hjá Umferðarstofu þá má innheimta
vanreiknuð gjöld.
Markaðsverðmæti dróst saman
um 25 milljarða evra (3.600 milljarða
króna) þegar verð hlutabréfa í fyrir-
tækinu hríðféll í vikunni. Það mældist
lægst á miðvikudagsmorgni, þá hafði
það lækkað um 37% á þremur dögum.
Sérfræðingar hjá Goldman Sachs
telja að skaðinn af hneykslismálinu
gæti falið í sér að eftirlitsaðilar lög-
festi strangari reglur um mengun og
að neytendur forðist dísilbíla. Dísill
hefur alltaf verið talinn umhverfis-
vænni kostur og hefur aflað sér mikilla
vinsælda í Evrópu undanfarin ár. Í dag
eru dísilbílar 53% af bílaflota Evrópu.
Bensín losar 147 grömm af CO2 á
hvern kílómetra, en dísill einungis 132
grömm. Þetta hneykslismál gæti leitt
til viðsnúnings í dísilvæðingu Evrópu.
saeunn@frettabladid.is
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
2 6 . s e p T e m b e r 2 0 1 5 l a u G a r d a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
21. september VW stað-
festir að 11 milljónir bíla út
um allan heim hafi verið
með búnaðinn. Sektin gæti
numið 18 milljörðum doll-
ara. Lögfræðistofa í New
York leggur fram dómsmál
fyrir hönd eigenda og
leigjenda bifreiðanna.
21.- 22.
september
Hlutabréfaverð
hríðfellur og
lækkar um 33% á
tveimur dögum,
nær lágpunkti í
dagsbyrjun 23.
september.
22. september
Frönsk yfirvöld
hefja rannsókn á
því hvort svindl-
hugbúnaður sé
notaður þar í
landi.
106,4
Hlutabréfaverð við lokun
markaða í gær eftir að
það fór að hækka á ný.
162,4
Hlutabréfaverð áður
en hneykslismálið
var upplýst.
102,5
Hlutabréfaverð lækkaði um
37% þegar það var lægst.
Gengi hlutabréfa í Volkswagen lækkar verulega
Næstum áttatíu ára saga
maí 2014 Rannsóknasetur í Vestur-
Virginíuháskóla birtir rannsókn sem
sýnir mun hærri losun frá dísil-
bílum en áður var haldið fram. Tvær
gerðir dísilbíla rannsakaðar, 2012
Jetta og 2013 Passat. Háskólinn
lætur Umhverfisstofnun Kaliforníu
(CARB) og Umhverfiseftirlit Banda-
ríkjanna (EPA) vita.
desember 2014
Volkswagen inn-
kallar um það bil
500
þúsund
bíla til að vinna
úr losunarvand-
anum.
6. maí 2015 CARB ásamt EPA prófar
aftur bílana og sér að innköllunin
hafði einungis tímabundin jákvæð
áhrif. Tæknileg atriði sem Volks-
wagen bendir á geta ekki útskýrt
hærri losunina sem kom fram í
frekari athugunum CARB.
3. september
Á fundi játa
forsvarsmenn
VW að þeir
hafi hannað
og komið fyrir
svindlhug-
búnaðinum.
18. september CARN og
EPA birta opinberlega
niðurstöður sínar og segja
að VW hafi brotið lög.
Umhverfiseftirlit Bandaríkj-
anna tilkynnir að VW verði
sektað vegna 482 þúsund
bifreiða með hugbúnað-
inum í Bandaríkjunum.
23.
september
Forstjóri
VW, martin
Winterkorn,
tilkynnir af-
sögn sína.
25. september
Matthias Müller
skipaður nýr for-
stjóri Volks-
wagen. Hluta-
bréfaverð Volks -
wagen fer hækk-
andi á ný 23.-25.
september.
desember 2014 september 2015maí 2014 maí 2015
✿ Í meira en ár hefur leikið grunur á að ekki væri allt með felldu hjá volkswagen