Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 39
VIÐTAL
það verið greitt fyrir mig. Ég hafði leitað eftir
aðstoð hjá Kennarasambandinu þegar ég
missti kennslustarf í byggingagreinum í
framhaldsskólum sem ég hafði sinnt í átta
og hálft ár en komst að því að réttindi mín
þar þurrkuðust út alveg þegar ég missti
kennsluna og atvinnuleysisbætur. Það kom
mér á óvart. Þegar ég kom í samstarfið við
VIRK átti ég því engin réttindi hjá stéttar-
félagi en ég var ekki látinn gjalda þess, þvert
á móti var mér tekið eins og ég hefði full
réttindi. Fólk sem lendir í þessari stöðu á
athvarf hjá VIRK samkvæmt minni reynslu.
Annað vil ég að komi sérstaklega fram. Hjá
VIRK er starfsfólk sérhæft í að hjálpa fólki til
þess að finna hæfileika og styrkleika og þar
fær maður mikla hvatningu.“
Sótti um allt mögulegt
Hvað gerðir þú til þess að fá vinnu?
„Ég sótti um allt sem ég mögulega gat hugsað
mér að ég gæti unnið við. Það gerði ég frá
fyrsta degi sem ég missti vinnuna en ég fékk
höfnun ofan á höfnun. Komst í fjögur viðtöl
en þau skiluðu engu. Það er mjög erfitt fyrir
fólk sem er að nálgast sextugsaldurinn að fá
vinnu. Ég fékk hvað eftir annað þau svör að
verið væri að leita að yngra fólki en ég var.
Þetta var erfitt en ég gerði mér fljótt grein
fyrir því hve þýðingarmikið það væri að
vera virkur í svona aðstöðu. Ég vann í
því. Ég hafði verið sjálfboðaliði hjá Rauða
krossinum áður en ég missti vinnuna, nú
hellti ég mér út í það starf. Ég var skipaður
þar í stjórn og endaði sem formaður í þrjú
ár þegar Álftanesdeildin var sameinuð
Garðbæjardeildinni. Þetta hjálpaði mikið
en höfnunin sem ég upplifði við atvinnu-
missinn var samt þungbær.
Ráðgjafi VIRK blés mér hins vegar baráttu-
vilja í brjóst, hann sagði mér að ég myndi fá
vinnu, þetta væri bara spursmál um vikur
eða fáeina mánuði. Hann sagði: „Þú ert svo
jákvæður og virkur að ég trúi ekki öðru en
þú fáir fljótlega starf.“ Þessi ummæli byggði
ráðgjafinn á niðurstöðum úr greiningunni
á styrkleikum mínum. Hann hjálpaði
mér líka að móta rétt viðhorf og stefnu í
atvinnuviðtölum. Það er lykilatriði. Maður
þarf að sannfæra atvinnurekandann um að
maður sé einmitt rétti maðurinn. Þeir ráða
þann sem er mest sannfærandi.“
Og fékkstu vinnu?
„Já, það var loks hringt í Vinnumálastofnun
frá fyrirtæki sem vantaði mann sem hafði
reynslu í öryggismálum. Mér var boðið í
viðtal, sem var skemmtileg tilbreyting frá
því að vera alltaf að sækja um sjálfur. Í
öryggismálum var ég á heimavelli, ég hafði
kennt það fag í skólanum árum saman.
Ég var orðinn umsjónarmaður skólans í
öryggismálum þegar mér var sagt upp.“
Hvernig var andleg líðan þín þegar þú
fórst að vinna?
„Þá kom í ljós að ég þurfti aðstoð við að
komast aftur í gang eftir að hafa verið frá
vinnu í eitt og hálft ár. En fyrirtækið hjálpaði
mér í gegnum það ferli.
Ég vil geta þess að í þessum hremmingum
öllum hef ég haft mikinn stuðning af trúnni.
Ég er trúaður maður og var búinn að syngja í
kirkjukór í þrjátíu ár, þar hafði ýmislegt síast
inn sem kom að gagni þegar á móti blés.
Trú, von og kærleikur hafa verið ráðandi afl
í öllu þessu ferli. Ég glataði aldrei voninni og
mér var mikill styrkur í að lesa í hinni góðu
bók Biblíunni. Staða mín var heldur ekki
slæm að mörgu leyti. Efnahagsmálin voru
til dæmis í lagi, en þetta sá ég ekki fyrr en
ráðgjafi VIRK benti mér á það í greiningunni.
Nú er ég búinn að vera í vinnu í tæp tvö ár
og allt hefur gengið vel.“
Hvaða úrræði finnst þér þú hafa haft mest
gagn af frá VIRK?
„Að finna í hverju ég væri sterkastur og
beita þeirri vitneskju. Það var líka fróðlegt
og hollt að gera sér grein fyrir veikleikum
sínum og hafa fengið stuðning frá ráðgjafa
VIRK til að vinna í veikleikunum svo þeir
væru ekki að þvælast fyrir mér.
Satt að segja þá fór það illa með mig andlega
að ég var hvattur til af Kennarasambandinu
og samkennurum að fara í mál við vinnu-
stað minn vegna uppsagnarinnar, sem
sögð var vegna samdráttar, en tapaði því
máli hundrað prósent. Í ljós kom eftir á að
lögfræðingurinn hefði mátt segja sér það
sjálfur fyrirfram, vegna þeirra upplýsinga
sem fyrir lágu, að ég gæti aldrei unnið
þetta mál. Þetta var eitt áfallið í viðbót við
uppsögnina, skilnaðinn og þá breytingu
sem hann hafði í för með sér. Ekki aðeins
hvað húsnæði snertir heldur ekki síður
þann einmanaleika sem fylgdi í kjölfarið.“
Heimsóknarvinur hjá Rauða
krossinum
Hvað gerðir þú til að vinna gegn
einsemdinni?
„Ég gerðist heimsóknarvinur hjá Rauða
krossinum. Ég fór í heimsókn á þjónustu-
miðstöð fyrir aldraða einu sinni í viku, á
þriðjudögum eftir hádegi og hlakkaði til
hverrar heimsóknar. Fólkið þar var bæði
frótt og skemmtilegt.“
Hvernig er staðan hjá þér núna?
„Ég er kominn í þessa fínu vinnu. Ég hét því
þegar ég fór að vinna sem sölumaður með
öryggisvörur að ég skyldi gera allt sem ég
gæti til þess að fyrirtækið myndi ekki sjá eftir
því að hafa ráðið mig. Það hefur gengið eftir
hingað til sem betur fer.
Auk þess er einkalífið í miklum blóma. Ég
hitti dásamlega konu fyrir einu og hálfu ári
svo ég er ekki lengur einmana. Ég á tvær
dætur sem ég hef haft gott og stöðugt
samband við í gegnum allt þetta, það hefur
hjálpað mikið. Ég einangraðist því aldrei
þótt ég byggi einn. Og húsnæðismálin eru
komin í lag. Það gekk þó ekki þrautalaust.
Ég átti fyrir útborgun en af því að ég hafði
ekki fasta vinnu fékk ég ekki greiðslumat.
Ég þurfti því um tíma að skrá lögheimili
mitt hjá aldraðri móður minni. En þegar
ég var kominn með fasta vinnu fékk ég
greiðslumat og hef nú keypt mér íbúð sem
ég er að gera upp.
Samstarfið við VIRK hefur verið ómetanlegt,
VIRK er að vinna ótrúlega gott starf. Það
var á mörkum þess að ég þætti tækur í
samstarf því staða mín var ekki eins slæm
og margra annarra. En það var mín gæfa að
ég var tekinn inn í þá endurhæfingu sem
þetta samstarf hefur skilað mér og komið
mér á þann stað sem ég er nú. Ráðgjafinn
minn var ótrúlega vel að sér, lausnamiðaður
og flinkur að finna út með mér hvar mín
tækifæri lægju. Samstarf okkar reyndist
mér á við bestu sálfræðiaðstoð. Eitt var
mér kennt af ráðgjafanum sem verður mér
veganesti: „Hafðu ekki of miklar áhyggjur,
þær eru bara til að gera hlutina verri.“ Ef
eitthvað er að plaga fólk þá á það ekki að
láta áhyggjurnar halda fyrir sér vöku heldur
gera eitthvað í sínum málum.
Ég leyfi mér að bæta hér að lokum við
tilvitnun í Biblíuna: „Lítið til fugla himinsins.
Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður
og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér
ekki miklu fremri þeim? (Matt. 6, 20.). Ég
hef margt að þakka fyrir um þessar mundir,
ég á mér ýmsa drauma og fæ að vakna
frískur til starfa dag hvern. Eins og ráðgjafi
VIRK sagði: „Það kemur nýr dagur og ný
tækifæri.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
MAGNÚS HALLDÓRSSON framhaldsskólakennari, smiður og iðnfræðingur
39virk.is