Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 18

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 18
MANNAUÐUR VIRK UPPSPRETTA ÁRANGURS VIRK ER METNAÐARFULLUR VINNUSTAÐUR ÞAR SEM LÖGÐ ER ÁHERSLA Á JÁKVÆÐAN STARFSANDA SEM EINKENNIST AF STERKRI LIÐSHEILD. VIRK KAPPKOSTAR AÐ SKAPA JÁKVÆÐA MENNINGU MEÐ TRAUSTU STARFSFÓLKI. GILDI VIRK ERU FAGMENNSKA, VIRÐING OG METNAÐUR. STARFSFÓLK, RÁÐGJAFAR OG SAMSTARFSFÓLK ER HVATT TIL AÐ HAFA GILDIN AÐ LEIÐARLJÓSI Í STÖRFUM SÍNUM. AUÐUR ÞÓRHALLSDÓTTIR sviðsstjóri mannauðs og gæða hjá VIRK H já VIRK Starfsendurhæfingarsjóði starfa 32 starfsmaður í 29 stöðu- gildum, 27 konur og 5 karlar. Menntunarstig er hátt en 23 starfsmenn eru með háskólapróf og stór hópur þeirra er einnig með framhaldsgráðu á háskólastigi. Mikil áhersla er lögð á að ráða hæft og áhugasamt fólk í samræmi við gildandi lög, reglur og kröfur. Þegar nýir starfmenn hefja störf hjá VIRK skila þeir inn leyfisbréfi eða prófskírteini til staðfestingar á menntun sinni. Einnig skila þeir inn sakavottorði og eru þessi gögn vistuð rafrænt ásamt ferilskrá þeirra. Móttaka nýrra starfsmanna er markviss og í boði eru samkeppnishæf starfskjör sem taka mið af verkefnum starfsfólks sem og þróun á vinnumarkaði. Starfslýsingar eru til fyrir öll störf hjá VIRK en þar koma fram meginþættir starfs, umfang, ábyrgðarhlutverk og einnig er tilgreint hvaða menntunar- og hæfnikröfur eru gerðar til hvers starfs. Við leggjum áherslu á öflugt upplýsingaflæði og skýrar boðleiðir og vikulega er fundur með framkvæmdastjóra og einnig fundar hvert svið saman vikulega. Starfsfólk VIRK heldur einnig reglulega fundi með tengiliðum ráðgjafa, heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, Vinnu- málastofnun, TR, lífeyrissjóðum, félagsþjón- ustu og geðdeildum svo eitthvað sé nefnt. Einnig eru haldnir upplýsingafundir með stéttarfélögum einu sinni á ári þar sem farið er yfir ávinning af starfi VIRK og rýnt í tölur þess stéttarfélags sem fundað er með. Frammistöðusamtöl eru haldin á hverju ári þar sem farið er yfir starfsánægju, starfsanda, líðan starfsfólks, samskipti, upplýsingaflæði, almenna frammistöðu sem og óskir starfsfólks um þróunarþarfir og viðbrögð við þeim. Það er síðan sameiginleg ábyrgð starfsfólks og stjórnenda að viðhalda faglegri þekkingu og efla hæfni í starfi með því að fjárfesta í fræðslu og þjálfun. Árið 2016 hófst með metnaðarfullri liðs- heildarþjálfun sem allir starfmenn VIRK taka þátt í. Byrjað var á kröftugu erindi um hvað einkennir góða liðsheild, hvers vegna hún er svo eftirsóknarverð og hvað þarf til að vera í framúrskarandi liði og viðhalda því. Því næst fór starfsfólk í persónuleikapróf þar sem styrkleikar hvers og eins voru kortlagðir og farið yfir hvernig hver og einn getur aukið framlag sitt til liðsheildarinnar. Í framhaldi munu svo fara fram leiðtogavinnustofur með stjórnendum og vinnustofur með starfsfólki þar sem áherslur framúrskarandi liðs eru þjálfaðar. Það er mjög mikilvægt að hver og einn starfs- maður sé þátttakandi í þróun og vegferð VIRK. Að starfsmenn hafi kjark og styrk og upplifi traust og virðingu alls samstarfsfólks. Við vitum að á því veltur árangur VIRK til samfélagsins alls og þannig horfum við björtum augum til framtíðar! Það er mjög mikilvægt að hver og einn starfsmaður sé þátttakandi í þróun og vegferð VIRK. Að starfsmenn hafi kjark og styrk og upplifi traust og virðingu alls samstarfsfólks.“ 18 virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.