Ársrit um starfsendurhæfingu - 2016, Blaðsíða 47
VIÐTAL
Ég fékk þarna inn fullorðinn og sjálfstæðan
einstakling sem smám saman þróaðist upp
í að hafa fulla starfsgetu. Að vísu tók það
nokkurn tíma fyrir hann að venjast því að
falla inn í vinnuskipulagið hjá okkur. En
þetta kom allt og gekk ágætlega.“
Hvað var viðkomandi einstaklingur
látinn gera?
„Hann fékk sömu verkefni og aðrir, var í
afgreiðslu og áfyllingu frammi í versluninni
og ekkert komið öðruvísi fram við hann
aðra. Maður hafði þó kannski bak við eyrað
að þarna var um að ræða einstakling sem
ekki hafði verið á vinnumarkaði í nokkuð
langan tíma.“
Reglulegt samband við
ráðgjafa VIRK
Hvernig líkaði samstarfsfólkinu þetta?
„Það tók þessu mjög vel. Það gerði sér
líklega varla grein fyrir að þetta væri sérstakt
verkefni. Fyrst var því sagt að viðkomandi
einstaklingur væri í vinnuprófun og svo að
hann væri ráðinn í hlutastarf. Svo þegar leið
að sumri var tilkynnt að einstaklingurinn
yrði fastur sumarstarfsmaður.“
Varstu í samstarfi við ráðgjafa VIRK
meðan á þessu ferli stóð?
„Já við vorum í reglulegu sambandi
meðan á þessu ferli stóð og við funduðum,
ráðgjafinn, einstaklingurinn og ég, saman
í lok prófunartímabilsins. Þar var farið yfir
málin og ekki minnist ég þess að neitt
sérstakt vandamál hafi komið upp, þetta
var ósköp líkt og gerist í venjubundnum
starfsmannaviðtölum. Í lok þessa tímabils
var einstaklingurinn, að ég held, útskrifaður
frá VIRK og markmiðinu sem sagt náð.“
Hvað með laun viðkomandi einstaklings?
„Hann fékk ekki laun fyrstu vikurnar frá
fyrirtækinu, meðan hann var í vinnu-
prófuninni. En þegar hann var ráðinn í
hlutastarfið fór hann að fá laun frá okkur á
sama hátt og aðrir starfsmenn.“
Bókhneigður tungumálamaður
Bókaverslun er nokkuð sérhæfður
vettvangur, hentaði þetta starf
einstaklingnum vel?
„Já, hann hefur ýmis áhugamál sem tengd
eru bókum og er mikill tungumálamaður
þannig að þarna var kominn einstaklingur
sem hentaði vel að hafa í starfi hér, einkum
yfir sumartímann þegar ferðamanna-
straumurinn er hér talsvert mikill.“
Býstu við að þessi einstaklingur komi í
fullt starf hjá ykkur þarna hjá Pennanum
í sumar?
„Já, ég býst við því. Þeir sem hafa verið hér
í starfi meðfram námi hafa gjarnan komið í
fast sumarstarf og líklega gegnir sama máli
með viðkomandi einstakling. Þetta hefur
allt gengið vel og skilað góðum árangri.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Starfsmaðurinn
fékk, eftir vinnu-
prófunina, fastar vaktir
hjá okkur og vann sem
starfsmaður í fullri vinnu
hjá okkur í fyrrasumar og
er enn hlutastarfsmaður
hjá okkur meðfram námi
sem hann stundar.“
Ég fékk þarna inn fullorðinn og sjálfstæðan
einstakling sem smám saman þróaðist upp í
að hafa fulla starfsgetu. Að vísu tók það nokkurn
tíma fyrir hann að venjast því að falla inn í vinnu-
skipulagið hjá okkur. En þetta kom allt og gekk
ágætlega.“
STEINGRÍMUR R. GUÐMUNDSSON verslunarstjóri
47virk.is