Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hag- stofunnar verður 1,7% hagvöxtur á næsta ári. Gangi spáin eftir gætu 1.500 til 2.000 ný störf orðið til í hagkerfinu á árinu 2020. Þetta kemur fram í áætlun Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun, sem hann gerði að beiðni Morgunblaðsins. Karl segir aðspurður að störfum muni fjölga í ár, þrátt fyrir samdrátt í landsframleiðslu. Fyrstu 9 mánuði ársins hafi 201.500 manns verið starfandi, borið saman við 198.500 í fyrra. Það eru 3.000 fleiri starfandi. Á hinn bóginn sé spáð uppsögnum á síðasta fjórðungi í ár. Að óbreyttu sé því útlit fyrir að 1.000 til 1.500 störf verði til í hagkerfinu í ár. Karl áætlar að 1.500 til 2.000 störf verði til í hagkerfinu á næsta ári miðað við að hvert prósent hagvaxt- ar skili 0,5 til 0,6% fjölgun starfa. Hagvöxtur sé þó misjafnlega mannaflsfrekur, eftir því hvaða geirar hagkerfisins eru í vexti. Heldur ekki í við fjölgunina Karl segir að þrátt fyrir þessa fjölgun starfa á næsta ári muni at- vinnuleysi á árinu aukast. Fjölgunin sé enda minni en fyrirsjáanleg fjölg- un fólks á vinnumarkaðsaldri. Að mati Vinnumálastofnunar var 3,5% atvinnuleysi í september. Telur Karl horfur á að það verði nær 4,1% á næsta ári. Þess má geta að aðflutn- ingur og brottflutningur fólks hefur áhrif á hlutfall atvinnulausra. Alls 2.633 erlendir ríkisborgarar voru án atvinnu í lok september sem sam- svaraði um 37% allra atvinnulausra. Gangi spáin eftir munu 33.500 til 34.500 störf hafa orðið til í hagkerfinu árin 2012-2020. Þetta eru háar tölur í sögulegu samhengi. Eins og sjá má á grafi hér er fjölgun starfa 2012-2020 um 50% meiri en þensluárin 2005-2008. Ingólfur Bender, aðalhagfræðing- ur Samtaka iðnaðarins, segir laun- þega í byggingariðnaði, sem starfa við húsbyggingar, hafa verið 3% færri í ágúst en árið áður. „Það er okkar tilfinning að sam- drátturinn muni halda áfram í vetur a.m.k.,“ segir Ingólfur. Samtök iðnaðarins hafi kallað eftir því að hið opinbera auki fram- kvæmdir í niðursveiflunni. Sam- kvæmt þjóðhagsspánni muni fjár- festing hins opinbera dragast saman um 11,5% í ár en aukast um 4,5% og 7,5% næstu tvö ár. „Aukin fjárfest- ing hins opinbera í innviðum vegur á móti hægari vexti í fjármunamyndun einkaaðila og hagkerfisins alls. Það dregur úr niðursveiflunni og byggir í leiðinni upp þennan mikilvæga þátt hagvaxtar framtíðarinnar sem inn- viðir eru,“ segir Ingólfur. Hann minnir svo á að Hagstofan hafi áður spáð 2,6% hagvexti á næsta ári en spái nú 1,7% hagvexti. Það hafi verið mat Samtaka iðn- aðarins undanfarið að forsendur í spám um hagvöxt á næsta ári hafi verið bjartsýnar. Frekari hagstjórn- araðgerða sé þörf ef stuðla eigi að kröftugum bata. Horft er til frekari lækkunar stýrivaxta og aðgerða í opinberum fjármálum sem felist m.a. í að draga úr álögum á íslensk fyrir- tæki. Þannig verði stuðlað að bættri samkeppnishæfni landsins. Ör vöxtur á fyrri hluta árs Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica, segir leiðandi hagvísi fyrirtækisins benda til samdráttar í landsfram- leiðslu á þriðja og fjórða fjórðungi í ár miðað við fjórðunginn á undan. Hins vegar geti orðið einhver vöxtur á þessum fjórðungum frá fyrra ári. „Ástæðan er sú að það var skarpur vöxtur á fyrri hluta þessa árs. Þetta þýðir að jafnvel þótt það verði sam- dráttur frá fjórðungi til fjórðungs þá verði ekki endilega samdráttur frá fyrra ári. Það er hins vegar spurning með fyrsta fjórðung á næsta ári, þá gæti mögulega orðið samdráttur bæði frá fjórðungnum áður og frá fyrra ári,“ segir Yngvi og bendir á að aðflutningur fólks geti haft áhrif á ís- lenskan vinnumarkað á tímabilinu. „Það er útlit fyrir áframhaldandi aðflutning erlendra ríkisborgara á næsta ári. Framundan eru stórfram- kvæmdir á vegum ríkisins, á borð við nýjan Landspítala, sem kalla á tals- vert vinnuafl. Þar kemur erlent vinnuafl að líkindum við sögu.“ Margt getur haft áhrif Taka þurfi tillit til margra þátta við mat á þróun á vinnumarkaði. Ný störf henti atvinnulausum misvel. Til dæmis sé óvíst að fólk sem missti vinnuna við fall WOW air muni fara í störf í byggingariðnaði. Ef áform um ný flugfélög og til dæmis beint flug frá Asíu gangi eftir muni það örva vinnumarkaðinn, ekki síst hjá þeim sem störfuðu í fluginu. Samkvæmt þjóðhagsspánni verð- ur 2,5% kaupmáttaraukning á næsta ári og 2,7% aukning árið 2021. Yngvi telur aðspurður að kaup- máttur geti staðið í stað, eða aukist, hjá þeim sem hafa vinnu. Verðbólgu- horfur séu góðar og lítilsháttar launahækkanir framundan. Spá 1.500 til 2.000 nýjum störfum Morgunblaðið/Hari Byggt á Hlíðarenda Spáð er hagvexti árið 2020 eftir stutta niðursveiflu. Rauntölur Lágspá Háspá VMST 8 6 4 2 0 -2 -4 -6 -8 -10 22.600 Fjölgun starfa 2005 til 2008 33.500-34.500 Áætlun um fjölgun starfandi 2012-2020* *Áætlun Vinnumálastofnunar (VMST) fyrir 2019 og 2020. Miðað er við spá Hagstofunnar um 0,2% samdrátt landsframleiðslu í ár og 1,7% hagvöxt 2020. Heimild: Hagstofan og Vinnumálastofnun. 3.400 4.400 1.500 1.000 2.000 1.500 6.900 1.700 5.900 2.800 5.900 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19* ’20* -600 5.100 8.200 7.700 1.600 -600 0 -11.100 Þús. starfa Lágspá 2012-2020* Háspá 2012-2020*  Vinnumálastofnun áætlar að störfum fjölgi á næsta ári  Það yrði 9. árið í röð sem störfum fjölgar  Verður þó undir fjölgun á vinnumarkaði  SI kölluðu eftir frekari lækkun vaxta og skattalækkunum 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019 skoðið úrvalið á facebook Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu okkar og fengið sent hvert á land sem er. Opið: laugardag frá 10-18 – sunnudag frá 11-17 Vetrarfatnaður á g óðu verði Breytt og bætt búð Allir velkomnir SKÓR, FATNAÐUR, ,LEIKFÖNG, HANDKLÆÐI, YOGA DÝNUR, BAKPOKAR, GÖNGUSTAFIR, ÍSBRODDAR, GLERAUGU, LOPI, PRJÓNAR, NÁLAR, NEON VETTLNINGAR, GUMMITÚTTUR, SUNDGLERAUGU, SPIL, HÁRBURSTI, BENDLABÖND, VETTLINGAR, HÚFUR, GJAFAPOKAR, KORT, NAGLAKLIPPUR, DÚKKUR, TÖSKUR, TÓBAKSKLÚTAR, NÆLONSOKKAR, SKÓHORN, INNLEGG, BOLTAR, SÁPUKÚLUR, HLAUPASOKKAR, GJAFAVARA O.M.FL. á frábæru verði – fyrir alla fjölskylduna Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur hjá Íslandsbanka, segir að ef spá Hagstofunnar um fjárfestingu í íbúðarhúsnæði gangi eftir muni skapast jafnvægi á markaði. Spáin fyrir næstu tvö ár sé í takt við spá Íslandsbanka í þessu efni. Hins vegar sé spá Hagstofunnar til lengri tíma, eða til 2025. „Ef spáin til 2025 gengur eftir væri það heilbrigð þróun. Hún myndi þá endurspegla stöðugleika á framboðshliðinni en það væri nýtt í hagsögunni. Horft til lengri tíma hefur verið mikill óstöðugleiki í framboði íbúðarhúsnæðis. Það hefur enda sveiflast með hagkerf- inu,“ segir Elvar Orri. Fylgir fólksfjölgun Hann bendir á að fólksfjölgun sé lykilstærð hvað snertir eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði. „Samkvæmt þjóðhagsspá Hag- stofunnar mun íbúðafjárfestingin aukast hraðar en fólksfjölgun í landinu á sama tímabili. Á það ber að líta að vísað er í brúttótölur um íbúðafjárfestingu. Það er til dæmis ekki tekið tillit til húsnæðis sem á að rífa,“ segir Elvar Orri og bendir á lýðfræðilegar breytingar. „Við erum sem þjóð að eldast og með hærra hlutfall fólks á efri ár- um. Fleiri búa einir en áður. Fæð- ingartíðnin er að lækka og fjöl- skyldustærðin að minnka. Því þyrfti að byggja fleiri íbúðir jafnvel þótt landsmönnum myndi ekki fjölga,“ segir Elvar Orri. Spurningin á fasteignamarkaði sé hvort byggt sé í samræmi við þörf. Rætt sé um að spurn eftir minnstu íbúðum hafi mögulega verið ofmetin. Stuðlar að jafnara framboði íbúða  Framboðið umfram fólksfjölgun Spá um fjárfestingu í íbúðarhúsnæði 2018-2025* Magnbreyting frá fyrra ári (%) *2023-2025 er framreikningur. Heimild: Hagstofa Ísl. ’18 ’19 ’20 ’21 ’22 ’23 ’24 ’25 16,2% 17% 4,5% 7,8% 5% 3,4% Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar (SAF), segir útlit fyrir frekari uppsagnir í greininni út árið. Hvað gerist eftir áramót velti mikið á framboði á flugi til Íslands. Rætt sé um ný flugfélög, beint flug til As- íu og að Max-þotur komi í notkun. Viðbúið sé að nóvember og des- ember verði nú erfiðir mörgum ferðaþjónustufyrirtækjum. Einhver félög séu búin með lausafé eftir sumarið og fari jafnvel í þrot. Mörg segi upp nokkrum starfsmönnum til að hagræða en lítið beri á því. Minna framboð verði á flugi í vetur, t.d. frá N-Ameríku, en í fyrra. Alls hafi um 2.500 störf tapast í ferðaþjónustu í ár vegna falls WOW air, launahækkana og ann- arra ytri þátta í rekstrinum. Áður hafi verið áætlað að störfum í ferðaþjónustu og tengdum grein- um myndi fækka um 2.500 til 3.500 eftir fall WOW og vegna erfiðara rekstrarumhverfis. Niður- sveiflan sé því hingað til mildari en spáð var en þróun næstu mánaða muni hafa mikið að segja um fram- haldið. Óvissa um næsta ár STÖRF Í FERÐAÞJÓNUSTU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.