Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
Audi Q5 TFSI e er knúinn rafmótor sem dregur allt að 40 km. skv. WLTP.
Þú getur farið flestra þinna ferða í borginni eingöngu knúinn rafmagni.
Vertu velkomin/nn í reynsluakstur.
Tilkomumikið útlit, framsækin tækni og kraftur.
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is / 590 5000
Q5 TFSI e með kynningarpakka
verð 9.990.000 kr.
Skoðaðu sýningarsalinn okkar á netinu á www.hekla.is/audisalur
Nýr & rafmagnaður
Audi Q5 TFSI e.
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Veitingastaðnum Icelandic Fish &
Chips við Tryggvagötu var lokað í
byrjun mánaðar. Tilkynnt var um
lokunina með stuttri orðsendingu á
Facebook-síðu staðarins og þar með
lauk þrettán ára rekstrarsögu í mið-
borg Reykjavíkur. Staðurinn naut
frá upphafi vinsælda en sérstaða
hans fólst í heilsusamlegu hráefni;
fiskur var til að mynda steiktur í
speltdeigi og reiddur fram með sér-
gerðum skyrsósum sem gerðar voru
á staðnum.
Ekkert svigrúm til hækkana
Stofnandinn og einn eigenda,
Erna Guðrún Kaaber, hefur ákveðið
að snúa sér að öðru. Hún segir að
rekstrarumhverfi veitingastaða sé
erfitt um þessar mundir. „Við höfum
verið með sama verð á matseðlinum
síðan 2015. Það hefur ekki verið
neitt svigrúm til hækkana,“ segir
Erna.
„Við erum búin að vera að horfa á
versnandi afkomu í einhverja mán-
uði. Sumarið var ansi lélegt, mun
verra en við áttum von á. Það hefur
nú oft verið þannig að sumarmán-
uðirnir hafa verið drýgri en hinir þó
það hafi breyst mikið á undan-
förnum árum með vetrarferða-
mennskunni.“
„Það hefur allt hækkað“
Að mati Ernu er helsti vandinn
við að reka veitingastað í dag hækk-
un opinberra gjalda síðustu ár.
„Opinberar álögur hafa aukist
gríðarlega á liðnum árum og manni
finnst eins og við séum bara að fylla
á þá sjóði sem tæmdust 2008.
Hækkun á framlagi atvinnurekenda
í lífeyrissjóði er komin upp úr öllu
valdi og á sama tíma er ótrúlegt að
tryggingagjald skuli ekki hafa lækk-
að. Svo er það atvinnutrygginga-
gjald, ábyrgðarsjóður launa, mót-
framlag atvinnurekenda og
hækkanir greiðslna í stéttarfélög.
Það hefur allt hækkað. Á sama tíma
og álögur hafa hækkað á atvinnu-
rekandann hefur dregið úr því sem
kemur í launaumslag fólks. Niður-
staðan er því að við höfum þurft að
notast við færra starfsfólk en þegar
ég var að byrja með staðinn. Maður
getur ekki sagt að þetta sérstaka
fyrirkomulag ýti undir atvinnu-
rekstur.“
Alið á vantrausti og misklíð
Hún segir að ekki hafi verið gam-
an að reka fyrirtæki á liðnum mán-
uðum. „Það hefur verið leiðinda-
andrúmsloft í samfélaginu. Þessi nýi
tónn í verkalýðsforystunni elur á
vantrausti og misklíð. Það er ekki
gaman að starfa í þeim anda. Á köfl-
um finnst mér eins og það fólk viti
ekki um hvað það er tala. Þetta er í
það minnsta ekki fólk sem þekkir til
rekstrar.“
Of mikið af veitingastöðum
Ýmislegt annað spilar inn í að
sögn veitingamannsins. Til að
mynda sé of mikið framboð á veit-
ingastöðum í Reykjavík. Hún kveðst
raunar furða sig á áætlunum um
opnun nýrra mathalla og veitinga-
staða í tómu húsnæði í borginni.
„Ég skil ekki hvaða vegferð það er,“
segir Erna.
Betri ferðamenn í dag
Hún segir að góður straumur við-
skiptavina hafi verið á staðnum allt
fram á síðasta dag. „Bretar voru
þakklátustu kúnnarnir. Við fengum
líka stóra hópa af Frökkum. Sam-
setning viðskiptavinanna hefur
breyst. Bandaríkjamenn hafa komið
og farið en nú eru fleiri Kínverjar en
áður. Eftir þær aðlaganir sem við
höfum þurft að ganga í gegnum í
ferðamannabransanum finnst mér
eins og ég kannist betur við þann
hóp sem hingað kemur í dag. Þetta
er betur menntað fólk og tekju-
hærra. Það kemur líka fram við
starfsfólk af meiri virðingu,“ segir
Erna Guðrún Kaaber.
Opinberar álögur aukist mikið
Vinsælum veitingastað í miðborginni lokað eftir þrettán ár í rekstri Eigandinn segir rekstur erf-
iðan þegar opinber gjöld hafa hækkað upp úr öllu valdi Skynjar leiðindaandrúmsloft í samfélaginu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Búið spil Erna Guðrún Kaaber stofnaði Icelandic Fish & Chips árið 2006. Staðnum var lokað í byrjun mánaðar og hún ætlar að setjast á skólabekk.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu hefur mikil hreyf-
ing verið á veitingamarkaði síð-
asta árið. Í ágúst greindi blaðið frá
því að síðasta árið hefðu samtals
um 40 staðir hætt eða hafið starf-
semi í Reykjavík.
Á þessu ári hefur mörgum
þekktum veitingastöðum verið
lokað. Af þeim má nefna Essensia,
Nonnabita, Aalto bistro, Boston,
Ostabúðina, Skelfiskmarkaðinn,
Mikkeller & friends, Systur og fyrr-
verandi Michelin-staðinn Dill sem
reyndar verður opnaður á ný í
Kjörgarði.
Þá hefur verið talsverð hreyfing
á plássunum í mathöllunum við
Hlemm og á Granda, veitingastaðir
hafa hætt en nýir komið í staðinn.
Skellt í lás á þekktum stöðum
MIKIL HREYFING Á VEITINGAMARKAÐI Í REYKJAVÍK
Morgunblaðið/Hari
Farinn Nonnabita hefur verið lokað.