Morgunblaðið - 02.11.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfirði
Loksins virðist hilla undir
lausn á bílastæðamálum við Kirkju-
fell. Nýtt plan vestan við núverandi
bílastæði var tilbúið og malbikað
síðla sumars en tenging þess við
þjóðveginn beint inn á blindhæð
reyndist hættuspil svo Vegagerðin
lagðist undir feld og nú fyrir
skömmu kom lausnin. Að taka niður
hæðina var dagskipunin og viti
menn, stórvirkar vinnuvélar eru
teknar til við það verk. Það verður
svo seinni tíma vandamál hvernig
snjóalög leggjast. Kannski er bara
hætt að snjóa.
Forseti Íslands Guðni Th. Jó-
hannesson og eiginkona hans Eliza
Reid komu í opinbera heimsókn til
Grundarfjarðar sl. fimmtudag.
Heimsóttu þau allar helstu stofn-
anir bæjarins og auk þess skoðuðu
þau Hátæknifrystihús Grun hf. og
nýjan bát Fisk Seafood/Soffaníasar
Cecilssonar hf. Farsæl þar sem þau
fóru alla leið niður í vélarúm.
Um miðjan dag sátu þau ör-
ráðstefnuna „Sjávarútvegurinn í
samtímanum“ í Sögumiðstöð þar
sem forsvarsmenn fiskvinnslunnar á
staðnum ásamt formanni stjórnar
Svæðisgarðsins og verkefnisstjóra
fóru yfir möguleika fiskvinnslufyrir-
tækja á Snæfellsnesi í samtíð og
framtíð með samvinnu fyrirtækj-
anna og ferðaþjónustunnar að
leiðarljósi.
Að lokum var boðið til kaffi-
samsætis í Sögumiðstöð þar sem
forsetahjónunum voru færðar gjafir
til minningar um heimsóknina þar
sem í merktum taupoka frá Kven-
félaginu Gleym mér ei mátti finna
verk eftir grundfirska listamenn.
Framkvæmdir við lengingu
Norðurgarðs í Grundarfirði eru
komnar á fullt skrið en fyrir
skömmu var undirritaður verk-
samningur við Borgarverk ehf. sem
átti lægsta tilboð af fimm sem bár-
ust í útboði í september sl., um 247
milljónir kr. eða 0,6% yfir kostn-
aðaráætlun verksins.
Verkið felst m.a. í að byggður
verður 90 m langur brimvarnar-
garður, en lengingin er í heild 130
metrar. Reknar verða niður 122
stálþilsplötur ásamt fleiri verkþátt-
um. Vegagerðin hannaði lengingu
hafnargarðsins og sá um útboðs-
gerð, en Efla verkfræðistofa gerði
útboðsgögn fyrir rekstur stálþilsins.
Vegagerðin aðstoðar Grundarfjarð-
arhöfn við verkeftirlit. Byggingu
garðsins skal lokið eigi síðar en 15.
janúar 2020, en verkinu á að fullu að
vera lokið 1. júní 2020.
Lokaáfangi við lengingu garðs-
ins verður svo að steypa þekju,
leggja lagnir og setja upp lýsingu á
lengdum garði og verður það boðið
út og unnið síðla á næsta ári. Stálið
er komið á hafnarbakkann var skip-
að upp í vikunni og senn hefjast
grjótflutningar Borgarverks um
Grundargötuna niður á höfn en efn-
ið er sótt í land Grafar rétt austan
við bæinn.
Klifurhús hefur bæst í afþrey-
ingarmöguleika Grundarfjarðar.
Það er Skátahöfðinginn Marta
Magnúsdóttir sem komið hefur
þessum frábæra möguleika á fót, en
auk þess er í Klifurhúsinu að finna
golfhermi fyrir þá sem æfa vilja
sveifluna. Forsetahjónin kynntu sér
aðstöðuna hjá Mörtu þegar þau
voru í heimsókn á fimmtudag en
ekki fer sögum af klifri þeirra.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður Verktakar að störfum í blindhæðinni ofan við bílaplan sem gert var við rætur Kirkjufells.
Blindhæð tekin niður vegna
bílaplans við Kirkjufell
yrði sem sett voru fyrir úthlutun
fjárins hefðu ekki verið uppfyllt og
var 10 milljóna króna styrkurinn
formlega felldur niður sem og fyrsti
hluti styrksins til byggingar kirkj-
unnar.
Sóknarnefndin sætti sig ekki við
það og hafa deilur hennar við þjóð-
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Deilur sóknarnefndar og bygging-
arnefndar Stórólfshvolssóknar og
þjóðkirkjunnar um útgreiðslu
styrkja til byggingar nýrrar kirkju
á Hvolsvelli eru ekki enn útkljáðar.
Nú hefur sóknar- og byggingar-
nefndin stefnt biskupi Íslands, fyrir
hönd kirkjunnar, öðru sinni til að fá
hnekkt úrskurðum kirkjunnar í
málinu.
Sóknarnefnd Stórólfshvolssóknar
hefur í nokkur ár undirbúið bygg-
ingu nýrrar kirkju á Hvolsvelli.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra
tók frá lóð á besta stað, við þjóð-
veginn í gegnum þorpið, og byrjað
var að teikna.
Felldu styrkina niður
Sóknarnefndin fékk 4,5 milljóna
króna styrk frá þjóðkirkjunni fyrir
átta árum og loforð um 10 milljónir
til viðbótar úr jöfnunarsjóði til
undirbúningsvinnu. Þá lofaði kirkj-
an samtals 80 milljónum kr. fram-
lagi til byggingar kirkjunnar sem
átti að rísa á árunum 2012 til 2015.
Þjóðkirkjan greiddi ekki styrkina
út og þegar gengið var eftir undir-
búningsframlaginu var sagt að skil-
kirkjuna síðan verið fyrir úrskurð-
ar- og áfrýjunarnefndum, sitt á
hvað, og fyrir dómstólum.
Biskupi stefnt á ný
Málið stendur þannig núna, eftir
því sem næst verður komist, að
Þjóðkirkjunni ber ekki að greiða út
10 milljóna króna undirbúnings-
styrkinn, samkvæmt úrskurði áfrýj-
unarnefndar þjóðkirkjunnar frá því
í ágúst í sumar, þar sem öllum
kröfum Stórólfshvolssóknar var
hafnað.
Sóknar- og byggingarnefndin
sætti sig ekki við þau málalok enda
telja þær að miklir ágallar séu á
málsmeðferð áfrýjunarnefndarinnar
og hafa stefnt biskupi fyrir héraðs-
dóm til ógildingar úrskurðarins. Því
er meðal annars haldið fram að
ekki hafi verið rétt staðið að mál-
skoti til áfrýjunarnefndar og það
hafi að auki verið gert of seint. Þá
er því haldið fram að tveir nefndar-
menn hafi verið vanhæfir til að taka
þátt í meðferð málsins og borið að
víkja sæti vegna afskipta af málinu
á fyrri stigum þess.
Málið var þingfest 24. október sl.
Undirbúningur að byggingu
kirkjunnar liggur niðri meðan á
málaferlum stendur.
Deilur um Hvolsvallarkirkju
enn á ný fyrir dómstóla
Sóknarnefnd fær ekki styrki sem Þjóðkirkjan hafði lofað
Hvolsvöllur Gamla kirkjan, Stórólfs-
hvolskirkja, er í útjaðri þorpsins.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Fyrirhugaðar breytingar á lögum
um verslun með áfengi og tóbak, sem
fela í sér að ÁTVR beri að hafa sam-
ráð við sveitarstjórnir um val á stað-
setningum vín-
búða, boða
afturhvarf til póli-
tískra og gamalla
tíma. Þetta kem-
ur fram í umsögn
ÁTVR um fyrir-
hugað frumvarp
sem lagt er fram
af þingmönnun-
um Bryndísi Har-
aldsdóttur, Ólafi
Þór Gunnarssyni
og Willum Þór Þórssyni.
„ÁTVR leggst gegn breytingunni
af þremur meginástæðum; í fyrsta
lagi telur fyrirtækið breytinguna
óþarfa, í öðru lagi telur fyrirtækið
tillöguna, ef hún næði fram að ganga,
vera afturhvarf til pólitískra afskipta
og gamalla tíma og loks telur fyrir-
tækið tillöguna geta falið í sér
ákveðna lagalega áhættu, ef horft er
til nútíma viðskiptahátta og þróunar
samkeppnisréttar og reglna um
opinber innkaup,“ segir í umsögn-
inni sem undirrituð er af Ívari J.
Arndal, forstjóra ÁTVR.
Þar er ennfremur rakið að við-
komandi sveitarstjórn geti sett fram
sín sjónarmið varðandi staðsetningu
verslunar, enda þurfi ÁTVR að
sækja um leyfi til rekstrar hjá sveit-
arfélaginu. ÁTVR hafi átt í góðum
samskiptum við sveitarstjórnir og
erfitt sé að sjá „að lögbinding ein-
hvers óljóss samráðsferlis, með enn
óljósari niðurstöðu, þjóni einhverj-
um tilgangi og gæti beinlínis verið
skaðleg hagsmunum ÁTVR,“ segir
ennfremur.
Þá er rakið að ÁTVR leigi á flest-
um stöðum húsnæði undir vínbúðir. Í
samráði við Ríkiskaup sé auglýst eft-
ir tilboðum í að leigja fyrirtækinu
hentugt húsnæði á skilgreindu versl-
unarsvæði samkvæmt deiliskipulagi.
Leiguverð vegi vitaskuld þungt.
„Ef sveitarstjórnir gætu þrengt
möguleika fyrirtækisins á því að
leita hagstæðustu lausna, að öllu
öðru gættu, væri vissulega stigið
skref aftur á bak,“ segir í umsögn-
inni. „Meðan nánari útfærslur liggja
ekki fyrir verður ekki annað séð en
að pólitísk inngrip í staðsetningu
vínbúða, á hvaða stigi málsins sem
þau ættu sér stað, gætu skapað rík-
inu bótaskyldu.“
ÁTVR vill ekki
pólitísk afskipti
Á móti samráði við sveitarstjórnir
Ívar J.
Arndal