Morgunblaðið - 02.11.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Nigel Farage, leiðtogi Brexit-flokks-
ins, sagði í gær að hann vildi mynda
bandalag með Íhaldsflokknum í þing-
kosningunum í Bretlandi 12. desem-
ber ef Boris Johnson forsætisráð-
herra félli frá samningnum um
útgöngu landsins úr Evrópusam-
bandinu. Forystumenn Íhaldsflokks-
ins hafa sagt að þeir vilji ekki kosn-
ingabandalag með Brexit-flokknum.
Farage sagði þegar hann hóf kosn-
ingabaráttu Brexit-flokksins að hann
vildi mynda „útgöngubandalag“ með
Íhaldsflokknum á næstu tveimur vik-
um ef Johnson félli frá brexit-samn-
ingnum sem forsætisráðherrann náði
við leiðtoga ESB áður en boðað var til
kosninganna. Johnson ákvað að slá
umræðu þingsins um samninginn á
frest eftir að neðri deild þess hafnaði
tillögu hans um að þingið afgreiddi
frumvarpið á þremur dögum til að
tryggja að Bretland gæti gengið úr
ESB 31. október. Þráteflið á þinginu í
brexit-deilunni varð til þess að ESB-
ríkin samþykktu beiðni þingsins um
að fresta útgöngunni í allt að þrjá
mánuði, eða til 31. janúar.
Óttast að atkvæði
brexit-sinna dreifist
Farage sagði að ef Johnson sam-
þykkti bandalagið myndi Brexit-
flokkurinn aðeins bjóða fram í um 150
kjördæmum þar sem Verkamanna-
flokkurinn hefði verið með mikið fylgi
og sigurlíkur Íhaldsflokksins væru
minnstar. Ef forsætisráðherrann
hafnaði tilboðinu myndi Brexit-flokk-
urinn bjóða fram í öllum kjördæm-
unum í Englandi, Skotlandi og Wales.
Farage sagði að flokkarnir tveir
hefðu ekki hafið viðræður um málið
en nokkrir embættismenn stjórnar
Íhaldsflokksins væru hlynntir slíku
bandalagi.
Fréttaskýrandi dagblaðsins The
Telegraph sagði að forystumenn
Íhaldsflokksins hefðu ítrekað hafnað
þeim möguleika að mynda kosninga-
bandalag með flokki Farage og ólík-
legt væri að Johnson félli frá samn-
ingnum. Farage er mjög umdeildur
stjórnmálamaður og hugsanlegt er að
bandalag með honum fæli kjósendur
á miðjunni frá því að kjósa Íhalds-
flokkinn, að mati fréttaskýranda
AFP. Sumir breskir íhaldsmenn ótt-
ast hins vegar að ef flokkur Farage
býður fram í öllum kjördæmunum
geti það orðið til þess að atkvæði
brexit-sinna skiptist á flokkana tvo og
komið í veg fyrir að Íhaldsflokkurinn
fái meirihluta á þinginu, að sögn
BBC.
Farage gagnrýndi útgöngusamn-
inginn og sagði að forsætisráð-
herrann hefði átt að standa við loforð
sitt um að Bretland gengi úr Evrópu-
sambandinu 31. október. Samningur-
inn væri ekki í samræmi við vilja
bresku þjóðarinnar í atkvæðagreiðsl-
unni í júní 2016 þegar útgangan var
samþykkt. Hann hvatti Johnson til að
hefja viðræður við ESB um fríversl-
unarsamning sem yrði líkur við-
skiptasamningi sambandsins við
Kanada frá árinu 2017. Ef samkomu-
lag næðist ekki í viðræðunum fyrir 1.
júlí á næsta ári ætti Bretland að
ganga úr ESB án samnings, þannig
að reglur Alþjóðaviðskiptastofnunar-
innar giltu um viðskipti milli Bret-
lands og ESB-ríkja. „Ég tel að það
væri fullkomlega skynsamlegt,“ sagði
Farage. „Það væri hið eina sanna
brexit.“
Farage gagnrýndi einnig Verka-
mannaflokkinn fyrir „fullkomin og al-
ger svik við brexit“ og sagði að flokk-
ur sinn myndi leggja áherslu á að ná
sætum af Verkamannaflokknum í
kjördæmum þar sem margir kjósend-
ur hans greiddu atkvæði með út-
göngu úr ESB. Flest þessara kjör-
dæma eru í miðhéruðum og
norðurhluta Englands.
Sagður torvelda samning
við Bandaríkin
Nigel Farage ræddi við Donald
Trump í útvarpsþætti í fyrrakvöld og
bandaríski forsetinn ráðlagði honum
að taka höndum saman við Boris
Johnson í kosningabaráttunni því að
bandalag þeirra yrði „óstöðvanlegt
afl“. Trump hvatti einnig Johnson til
að falla frá brexit-samningnum og
sagði að „ákveðnir þættir“ hans yrðu
til þess að Bandaríkin gætu ekki gert
viðskiptasamning við Bretland. Um-
mælin voru óljós og virtust vera við-
vörun til Johnsons um að viðræðurn-
ar um viðskiptasamning yrðu flóknar
og Bretar myndu þurfa að fallast á til-
slakanir, að sögn fréttaskýranda The
Financial Times. Talsmaður breska
forsætisráðuneytisins áréttaði að
brexit-samningurinn við ESB gerði
Bretlandi kleift að gera fríverslunar-
samninga við önnur ríki.
Trump gagnrýndi einnig Jeremy
Corbyn, leiðtoga Verkamannaflokks-
ins, og sagði að hann yrði „mjög
slæmur fyrir landið“ kæmist hann til
valda í kosningunum. Corbyn sagði á
Twitter að Trump væri „að reyna að
hafa afskipti af kosningum í Bretlandi
til að hjálpa vini sínum Boris Johnson
að ná kjöri“.
Talið er ólíklegt að forystumenn
Íhaldsflokksins telji afskipti forsetans
vera gagnleg fyrir flokkinn því að
Trump er mjög óvinsæll í Bretlandi,
að sögn The Financial Times. Sam-
kvæmt könnun YouGov hafa tveir
þriðju Breta neikvæð viðhorf til
Trumps.
Vill bandalag ef Boris Johnson
fellur frá brexit-samningnum
Talið er ólíklegt að forsætisráðherra Bretlands gangi að skilyrði Nigels Farage
Vill „útgöngubandalag“ Nigel Farage (t.v.) segir Brexit-flokkinn vilja bandalag með Íhaldsflokknum í kosning-
unum 12. desember ef Boris Johnson forsætisráðherra (t.h.) fellur frá brexit-samningnum við Evrópusambandið.
AFP
11 prósentustiga munur
» Meðalfylgi Íhaldsflokksins í
síðustu könnunum er 36,1% og
fylgi Verkamannaflokksins
24,9% að því er fram kemur á
vefnum BritainElects.
» Meðalfylgi Frjálslyndra
demókrata, er 17,8% og
Brexit-flokksins 11,2%.
Franska götulistafyrirtækið La Machine sýnir svonefndan Calais-dreka á
götu í borginni Calais í norðanverðu Frakklandi. Drekinn er tíu metra hár,
gerður úr stáli og útskornum viði. Hann reis úr sjónum og fer um götur
borgarinnar á þriggja daga sýningu sem hófst í gær. Drekinn verður áfram
til sýnis í borginni og búist er við að hann dragi að sér marga ferðamenn.
AFP
Dreki rís úr sæ í Calais
Mannréttindasamtök á Spáni hafa
mótmælt dómi dómstóls í Barcelona
sem sýknaði fimm karlmenn af
ákæru um að hafa nauðgað 14 ára
stúlku til skiptis á þeirri forsendu
að hún hefði verið meðvitundarlaus
og þeir hefðu því ekki þurft að
beita ofbeldi. Mennirnir voru
dæmdir í 10-12 ára fangelsi fyrir
kynferðislega misbeitingu en hefðu
þeir verið fundnir sekir um nauðg-
un hefðu þeir fengið 15-20 ára
fangelsisdóm. Skv. spænskum lög-
um þarf gerandi að beita ofbeldi
eða nauðung til að hægt sé að skil-
greina verknaðinn sem nauðgun.
14 ÁRA STÚLKU NAUÐGAÐ
Sýknaðir af nauðgun