Morgunblaðið - 02.11.2019, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
Íslendingar eru eina Norður-landaþjóðin sem tekur þátt íÓlympíumóti 16 ára og yngrisem fram fer í Corum í Tyrk-
landi þessa dagana. Alls hófu 48
sveitir keppni og A-Evrópuþjóðir
setja sterkan svip á mótið. Lið
Aserbaídsjan og Kasakstan voru í
efsta sæti eftir fimmtu umferð sem
fram fór í gær, bæði með 9 stig. Ís-
lenska sveitin sem er skipuð Vigni
Vatnari Stefánssyni, Stephani
Briem, Oliver Aroni Mai, Benedikt
Briem og Batel Goitom hefur hlotið
5 stig og 10 ½ vinning eftir 3:1-sigur
á Makedóníu í gær og sigur yfir Taí-
landi í 4. umferð. Sveitin var í 26.
sæti og teflir við Kanada í dag.
Þessi mót eru góður skóli fyrir
okkar yngstu skákmenn og Tyrkir
sem hafa haldið þau undanfarin ár
gera það vel. Vopnaskak Tyrkja
undanfarið hefur sennilega átt þátt í
því að nær allar V-Evrópuþjóðirnar
sitja heima en þegar friðvænlegar
horfði ákvað SÍ að sniðganga ekki
mótið. Samt er loft lævi blandið; Ísr-
aelsmenn mættu til að tefla við Írak
í fyrstu umferð en þeir síðarnefndu
létu ekki sjá sig.
Vignir Vatnar, Stephan Briem og
Batel Goitom voru með á ólympíu-
mótinu í fyrra og eru þau öll reynsl-
unni ríkari. Vignir hefur hlotið 4
vinninga af 5 mögulegum, Stephan
Briem 3½ vinning og bróðir hans
Benedikt hefur einnig staðið sig vel.
Hann tefldi skínandi vel í gær:
Ol 16 og yngri; 5. umferð:
Kristijan Velkovskí – Benedikt
Briem
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. exd5
Dxd5 5. Rgf3 cxd4 6. Bc4 Dd8 7. 0-0
Rc6 8. Rb3 a6 9. Rbxd4 Rxd4 10.
Rxd4 Dc7 11. Bb3 Bd6 12. h3 Re7!?
Athyglisverð leikáætlun sem
Benedikt hefur lengi lumað á. Yfir-
leitt er riddaranum valinn staður á
f6.
13. He1 0-0 14. Be3 Rg6 15. De2
Bh2+ 16. Kh1 Bf4 17. Had1 b5 18.
Bxf4 Rxf4 19. De5 Dxe5 20. Hxe5
Bb7 21. f3 Hfd8 22. c3 Hd6 23. Hee1
Had8 24. a3 h5!
Svarta staðan er heldur betri því
erfitt er að eiga við riddarann á f4 og
peðameirihlutinn á kóngsvæng er
ógnandi.
25. h4 Rg6!
Vinnur peðið.
26. Bc2 Rxh4 27. Kh2 g6 28. Kg3
Rf5+ 29. Bxf5 gxf5 30. Hc1 Kg7 31.
Hh1 Kg6 32. Hce1 He8 33. f4 f6 34.
Hhf1 Be4!
Hægt og bítandi hefur svartur náð
að bæta stöðu sína.
35. Hd1 Hed8 36. Hde1 e5 37. Rb3
Hd3+ 38. Kh2 H8d5 39. Hf2 h4 40.
Hee2
Nú er allt til reiðu fyrir lokaatlög-
una.
40. … h3! 41. gxh3 Hd1 42. Rd2
Hh1+ 43. Kg3 Hd3+ 44. Rf3 Bxf3
45. Hxh3 Hxh3+
– og hvítur gafst upp. Gott hand-
bragð hjá þessum unga manni.
Úkraínumenn og Rússar efstir
á EM í Batumi
Íslenska landsliðið sem lýkur í
dag keppni á EM landsliða Í Batumi
í Georgíu og er skipað þeim Hannesi
Hlífari Stefánssyni, Guðmundi
Kjartanssyni, Braga Þorfinnssyni,
Helga Áss Grétarssyni og Degi
Ragnarssyni hefur aldrei náð sér á
strik hvað sem veldur og tap í gær
fyrir Hvíta Rússlandi, 1½ :2½, gerði
endanlega út um vonir manna að við-
unandi sæti næðist.
Hægt er að lesa ýmislegt úr úr
frammistöðu einstakra liðsmanna,
t.d. hefur enginn hefur teflt af ör-
yggi sem er nauðsynlegt í flokka-
keppnum. Guðmundur Kjartansson
er sá eini sem hefur bætt ætlaðan
árangur sinn. Það er alveg magnað
að liðsmenn hafa aðeins unnið eina
skák með hvítu en tapað sjö sinn-
um.
Fyrir lokaumferðina eru Úkraínu-
menn og Rússar efstir með 13 stig
en Englendingar voru í 3. sæti með
12 stig. Íslendingar sátu í 35. sæti af
40 þátttökuþjóðum með 6 stig.
Íslenska liðið
stendur sig vel á
ÓL 16 ára og yngri
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
30. september sí-
ðatliðinn birtist
greinarkorn eftir mig
í Morgunblaðinu. Þar
var spurt hvort
framkvæmdum við
meðferðarkjarna
(MFK) LSH hefði
seinkað um ár á
fyrsta ári fram-
kvæmdanna.
Ástæðan spurning-
arinnar var að í út-
boðsgögnum vegna jarðvinnu-
framkvæmda við MFK sem
hófust vorið 2018 og nú eru í
gangi er skýrt tekið fram að
hluta af útgreftrinum fyrir MFK
skuli lokið 1. júní 2019 þannig að
verktakinn sem steypa á upp
bygginguna geti hafið fram-
kvæmdir 1. júlí 2019.
Þessu marki er enn ekki náð,
né uppsteypan hafin.
Í fyrri viku birtust tvær fréttir
um málið, ein í Morgunblaðinu
12. október og önnur í Frétta-
blaðinu 16. október, sem varpa
nokkru ljósi á málið. Í Morg-
unblaðsfréttinni segir fram-
kvæmdastjóri NLHS að upp-
steypa húss fyrir MFK muni
hefjast 1. apríl 2020, þ.e. níu
mánuðum seinna en skilyrt var í
fyrrnefndum útboðsgögnum. Í
Fréttablaðinu, sem byggir á upp-
lýsingum frá byggingarstjórn nýs
Landspítala, er staðhæft að jarð-
vinna sé á eftir áætlun en sagt að
það komi ekki að sök. Enn frem-
ur er þar bent á að: „Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
sagði á þingi í fyrra að nýjar
byggingar Landspítala við Hring-
braut kosti samtals rúma 54,5
milljarða króna. Áætluð verklok
2024.“
Nú er vissulega komin frekari
hreyfing á málið því með bréfi
dagsettu 15. október 2019 og
meðfylgjandi forvalsgögnum er
lysthafendum boðið til forvals á
uppsteypu MFK. Gögnunum skal
skilað inn til opnunar fyrir 16.
desember 2019. Niðurstaða for-
vals verður kynnt 6.
janúar 2020.
Meðal margra upp-
lýsinga í gögnunum
skal uppsteypu MFK
lokið 2022, en fram-
kvæmdum við MFK,
sem jú er kjarni hins
nýja sjúkrahúss, skal
lokið 2025, þ.e. einu
ári á eftir miðað við
upprunalega áætlun.
Eins og fyrr var
nefnt í grein
Morgunblaðsins 12.
október er áætlað að uppsteypan
hefjist 1. apríl 2020.
Það er nánast föst regla að
seinki byggingarframkvæmdum
aukist kostnaður við framkvæmd-
ina. Fróðlegt verður því að sjá
hvað 54,5 milljarðarnir sem ráð-
herra upplýsti á Alþingi hafa
vaxið næst þegar málið verður
nefnt þar.
Ekki verður síður áhugavert að
fylgjast með hvernig tímamörk
þau sem að ofan greinir standast.
Við, tilvonandi notendur nýja
spítalans, vonum það besta og að
Elli kerling verði ekki búin að
koma okkur á bæði hné áður en
hann tekur til starfa. Nóg er
þörfin ef marka má umsagnir
starfsfólks í hjúkrunargeiranum.
Það hlýtur að undra hvernig
núverandi staða er komin upp.
Nú þykir hæfilegt að senda fram
forvalsgögn 15. október 2019, fyr-
ir framkvæmd sem á að hefjast í
apríl. 2020. Var enginn sem gerði
sér grein fyrir því í lok 2018 að
gögn til að hefja steypuvinnu í
MFK á miðju ári 2019 voru
hvergi nærri tilbúin?
Árs seinkun á bygg-
ingu nýs Landspítala
Eftir Sigfús
Thorarensen
» Áhugavert verður að
fylgjast með hvernig
þau tímamörk sem
nefnd eru í greininni
standast.
Sigfús
Thorarensen
Höfundur er verkfræðingur og hefur
starfað sem verktaki í yfir 40 ár.
sigfusthor@outlook.com
Eyjólfur Jónsson fæddist 31.
október 1869 á Kóngsparti í
Sandvík í Norðfjarðarhreppi.
Foreldrar hans voru hjónin Jón
Þorvaldsson og Gróa Eyjólfs-
dóttir. Eldri bróðir Eyjólfs var
Stefán Th. Jónsson, kaupmaður
og útgerðarmaður á Seyðisfirði.
Eyjólfur nam klæðskeraiðn í
Stafangri í Noregi og síðan ljós-
myndun í Kaupmannahöfn.
Hann stofnaði ljósmyndastofu á
Seyðisfirði 1893 og rak þar
klæðskeraverkstæði að auki.
Ljósmyndir Eyjólfs sýna líf
fólks á Seyðisfirði og í nær-
sveitum á uppgangstímanum
um aldamótin 1900. Hluti ljós-
myndasafns hans er varðveittur
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
og á Þjóðminjasafninu en hluti
þess brann og miklu var auk
þess fargað.
Eyjólfur sat í bæjarstjórn
1901-1937. Þegar Íslandsbanki
var stofnaður 1904 varð hann
útibússtjóri á Seyðisfirði. Hann
var skipaður sænskur vararæð-
ismaður fyrir Austurland árið
1921. Eyjólfur hlaut fálkaorð-
una og einnig hina sænsku
Nordstjärnorðu.
Fyrri eiginkona Eyjólfs var
Guðný Sigmundsdóttir, þau
áttu eina dóttur, og seinni kona
Eyjólfs var Sigríður Jensdóttir
ljósmyndari og þau áttu fimm
börn.
Eyjólfur lést 29.6. 1944.
Merkir Íslendingar
Eyjólfur
Jónsson
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fimmtudaginn 28. nóvember
Við komum víða við í ár, heimsækjum
fjölda fólks og verðummeð fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Morgunblaðsins kemur út
Jólablað
Morgunblaðið/Heimasíða
Þungt hugsi. Ísland vann Taíland í 4. umferð Ólympíumóts 16 ára og yngri.
Alexander Oliver Mai, Stephan Briem og Vignir Vatnar við taflið í Tyrklandi.
Vantar þig pípara?
FINNA.is