Morgunblaðið - 02.11.2019, Page 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2019
Við erum öll einstök
Valur eignast systkini bbbnn
Texti Helga Sigfúsdóttir.
Myndir Jóhanna Þorleifsdóttir.
Sæmundur, 2019, 22 bls.
Valur er fimm ára strákur sem hefur lengi
langað í lítið systkini og loksins rætist draum-
urinn. Þegar hann hittir litla bróður í fyrsta
skipti tekur hann hins vegar eftir svolitlu
skrýtnu. Litli bróðir er með dálítið öðruvísi
vör. Með aðstoð for-
eldra sinna lærir Valur
hvers vegna bróðir hans
lítur svona út.
Höfundur bókar-
innar, Helga Sigfúsdótt-
ir, er móðir fimm ára
drengs með skarð í vör
og góm. Bókin er svar
hennar til yngri fjöl-
skyldumeðlima og allra
þeirra sem hafa spurn-
ingar um hvað felst í því að vera með skarð í
vör. Jóhanna Þorleifsdóttir myndskreytir
söguna og færist það vel úr hendi. Teikning-
arnar eru einfaldar í takt við söguþráðinn.
Valur eignast systkini er kærkomin viðbót í
hóp þeirra bóka þar sem farið er yfir þær
breytingar sem fylgja því að eignast lítið
systkini. Tilfinningum á borð við reiði,
hræðslu, forvitni og ást eru gerð góð skil.
Tilgangur bókarinnar er fallegur og skilar sér
vel til lesenda. Bókin er ætluð allra yngstu
lesendum til 12 ára. Boðskapur sögunnar
kemst vel til skila og hentar fullkomlega þeim
lesendum sem þurfa að fræðast um skarð í
vör en er engu að síður kærkomin fræðsla til
annarra með þeim mikilvægu skilaboðum að
öll erum við einstök á okkar hátt. Það er hins
vegar spurning hvort bókin nái til jafns breiðs
lesendahóps og henni er ætlað.
Yngsta kynslóðin kynnist
Vigdísi á dásamlegan hátt
Vigdís: Bókin um fyrsta konuforsetann
bbbbn
Texti og myndir Rán Flygenring.
Angústúra 2019, 38 bls.
Fyrir hvert selt eintak af bókinni Vigdís:
Bókin um fyrsta konuforsetann verður gróð-
ursett tré í samstarfi við Yrkjusjóð Vigdísar
og Skógræktarfélag Íslands. Ef þetta fær
ekki hina fullorðnu til að kaupa bókina fyrir
yngstu kynslóðina þá veit ég ekki hvað. Eða
jú, bókin fjallar um Vigdísi Finnbogadóttur,
fyrstu konuna sem varð forseti. Í öllum heim-
inum.
Rán Flygenring skrifar og teiknar. Frá-
sögnin hefst á því að upprennandi rithöfundur
(Rán á sínum yngri árum?) bankar upp á hjá
frú Vigdísi Finnbogadóttur og býður sér í
kaffi því hún ætlar að skrifa bók um fyrstu
konuna í heiminum sem kosin var forseti. Í
heimsókninni verður stúlkan margs vísari um
frumkvöðulinn Vigdísi
og forsetahlutverkið.
Hún rekst líka á alvöru
sverð frá Finnlandi, lær-
ir hrafl í frönsku og
kemst að því að einu
sinni bjuggu kindur í
Reykjavík.
Rán er afar vandvirk í
frásögn sinni og henni
tekst nánast að koma
hverju einasta smáatriði í ferli Vigdísar fyrir í
bókinni, meira að segja lopakjóllinn, lopapeys-
an og jafnvel blómvöndurinn eru á sínum stað
þegar Vigdís er hyllt á svölunum á heimili
sínu daginn sem hún er kjörin forseti.
Titill bókarinnar er svo einlægur og fallega
barnslegur: Fyrsti konuforsetinn. Fyrstu sex
ár ævi minnar var Vigdís forseti og ég hefði
svo sannarlega viljað að þessi bók hefði verið
komin til sögunnar á þeim tíma. Ekki það að
doðrantur Páls Valssonar, sem Rán styðst
einmitt við, var afar fróðleg lesning í forseta-
kúrs í Háskóla Íslands sem ég tók hjá Guðna
Th. Jóhannessyni (sem var þó ekki orðinn for-
seti þá) um árið.
Vigdís: Bókin um fyrsta konuforsetann er
uppfull af fróðleik um kjarnakonuna Vigdísi
sem hefur kennt íslensku þjóðinni svo ótal
margt. Arfleifð hennar mun svo sannarlega
skila sér til komandi kynslóða með þessari
framúrskarandi frásögn. Rán hefur fyrir
löngu sýnt að hún er einn fremsti teiknari
landsins en hér sýnir hún að hún er líka góð
sagnakona.
Rótlaus moldvarpa, syngjandi
mýs og fótboltaóðir broddgeltir
Róta rótlausa bbbmn
Texti og myndir Ólöf Vala Ingvarsdóttir.
Sæmundur, 2019, 22 bls.
Róta rótlausa er þriðja barnabók Ólafar Völu
Ingvarsdóttur. Frú Rótalín moldvarpa lifir
áhyggjulausu lífi í holu sinni í Rósahéraði.
Lífið gengur sinn vanagang og hún gerir viku-
þrifin á heimilinu líkt og sannur áhrifavaldur í
nútímasamfélagi. En þegar hún eignast ná-
granna, smjattandi kanínufjölskyldu, breytist
allt. Gulrætur, sem Rótalín hefur aldrei gefist
kostur á að smakka, eru uppáhalds matur
kanínufjölskyldunnar og afbrýðisemin kemur
róti á líf frú Rótalín. Hún grípur því til þess
ráðs að pakka niður föggum sínum og flytja
með sér á stórri (á moldvörpumælikvarða)
trékerru í leit að nýjum heimkynnum.
Svo fer að hún finnur nýja holu en þá taka
bara við ný vandamál svo hún flytur aftur.
Rótleysið verður algjört og hún er búin að
týna hamingjunni. Að lokum rennur það upp
fyrir henni að grasið er ef til vill ekki grænna
hinu megin og því er endanlega svarað þegar
hún flytur aftur í gömlu holuna og nágrann-
arnir í kanínufjölskyldunni fagna henni. Ver-
aldarflakkið borgaði sig kannski eftir allt
saman en það
skilar frú Rótalín
góðum vinum, allt
frá fótboltaóðum
broddgöltum til
syngjandi músa.
Það er ekki
annað hægt en að
lýsa nánast öllum söguþræðinum, frásögnin
er svo lifandi og skemmtileg og er það ekki
síst að þakka myndskreytingunum, sem eru í
höndum sagnakonunnar, sex barna móður.
Það fer ekki milli mála að hún hefur gert sitt
allra besta til að skapa skapandi og frjótt um-
hverfi fyrir börn sín.
Róta rótlausa sem þurfti bara gulrætur eft-
ir allt saman er litrík og lifandi barnabók fyrir
börn á öllum aldri. Texti á hverri síðu er í
lengri kantinum fyrir þau allra yngstu, en á
sama tíma er svo margt myndrænt að gerast
á hverri opnu að það ætti að halda litlum aug-
um áhugasömum.
Verðugur arftaki Stafakarlanna
Stórhættulega stafrófið bbbbb
Texti Ævar Þór Benediktsson.
Myndir Bergrún Íris Sævarsdóttir.
Mál og menning, 2019, 42 bls.
Stórhættulega stafrófið er í einu orði sagt
stórkostleg. Enda kannski ekki við öðru að
búast þegar Ævar Þór Benediktsson og
Bergrún Íris Sævarsdóttir sameina krafta
sína.
Aðalsöguhetjan Fjóla á í stökustu vandræð-
um með stafina og hreinlega hræðist þá. Dag
einn þegar henni leiðist í sumarfríinu ákveður
hún að halda tombólu. Þegar hún gengur í
hús og safnar dóti á tombóluna áttar hún sig á
því að hún er stödd í forvitnilegri götu þar
sem húsin minna á bókstafi.
Þegar líða fer á frásögnina fer ekki á milli
mála að Fjóla er stödd í Stafrófsstræti, þar
sem íbúarnir eru hver öðrum skrýtnari. Af-
skaplega almennilegur aðalsmaður með af-
skrúfað höfuð, græn geimvera með gervigubb
og innipúki sem hlær illkvittnislega og gefur
innyfli á tombóluna eru meðal furðuvera sem
Fjóla rekst á og þær eru hver annarri
skemmtilegri.
Lestur bókarinnar er ein stór skemmtun
frá upphafi til enda og það er óhætt að segja
að það var kominn tími á nýja bók þar sem
töfraheimar stafrófsins eru kynntir fyrir byrj-
endum í lestri. Stafakarlarnir eftir Bergljótu
Arnalds, sem nutu mikilla vinsælda á sínum
tíma, eru orðnir rúmlega tuttugu ára gamlir
og stafrófskver Bergrúnar og Ævars er kær-
komin viðbót í
bókaflokkinn sem
hentar yngstu les-
endunum.
Bókin er líka
stórsniðug til að
kynna stafina fyrir
allra yngstu les-
endunum. Sonur minn, þriggja ára, tók ást-
fóstri við Stórhættulega stafrófið frá fyrstu
mínútu. Ég rogaðist heim með ágætan stafla
af barna- og unglingabókum (kannski ekki al-
veg jafn stóran og má sjá hér að ofan) en
skrímslið, vampíran, draugurinn og Ævar vís-
indamaður á kápu bókarinnar vöktu strax
mikla lukku.
Sá stutti er einnig hugfanginn af söguþræð-
inum og má þar einna helst nefna ískyggilegu
konuna með ísinn og nornina með barnanefin
og næturgagnið sem segist ekki vera nirfill
sem eru í miklu uppáhaldi. Það verður þó að
viðurkennast að það er ákveðinn tungubrjótur
fyrir foreldrana að lesa bókina og góð æfing í
að tala skýrt og gott mál. Niðurstaðan er því
sú að allir græða. Háttatíminn verði líka til-
hlökkunarefni og nú þarf ekki að svæfa gutt-
ann lengur þar sem bókin er í lengri kant-
inum fyrir þau allra yngstu og hann er ýmist
sofnaður í k-inu, r-inu eða einstaka sinnum æ-
inu.
Stórhættulega stafrófið sýnir og sannar að
stafirnir eru miklu meira en bara strik á blaði
en það er engin ástæða til að hræðast þá, síð-
ur en svo. Bergrún og Ævar hugsa líka fyrir
öllu, aftast í bókinni er að finna orðalista yfir
allar teikningarnar í bókinni og þá má ekki
gleyma því að litli bróðir Fjólu sýnir stórleik í
Stórhættulega stafrófinu.
Stórhættulegir stafir
sem segja stór-
skemmtilegar sögur
Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar barnabækur
Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is
Teikning/Bergrún Íris
Skemmtun Nornin
með barnanefin og
næturgagnið sem
segist ekki vera
nirfill er ein teikn-
inga Bergrúnar
Írisar Sævarsdóttur
í Stórhættulega
stafrófinu.
Hvað knýr konu áframþegar tilgangur lífsinsreynist falskur? Ogkannski verra, hvað ef
tilganginum er náð?
Ólíkt gildismat hjónanna Guð-
bjargar og Ástþórs er rauði þráð-
urinn í bókinni Raunverulegt líf
Guðbjargar Tómasdóttur. Bókin
geymir endurminningar Guðbjarg-
ar, frá þeim tíma er hún var hálf-
atvinnulaust ljóðskáld og glímdi við
efasemdir um sumar, en þó ekki
allar, þær ákvarðanir sem höfðu
leitt hana á þann
stað.
Þegar sögusvið
bókar er jafn-
nærri manni og
hér er ekki ann-
að hægt en að
reyna að sjá
sjálfan sig í
hverri persónu.
Það er auðvelt að setja sig í spor
Guðbjargar og reyndar einnig eig-
inmannsins, sem heldur framhjá
með nemanda sínum, Matthildi, að
því er virðist bara því hann getur
það.
Hann er eitthvað svo aumkunar-
verður, og háskólaneminn dular-
fullur, að það er ekki annað hægt
en að samsama sig þeim báðum og
vona að framhjáhaldið gangi sem
allra best, þótt það sé reyndar
nokkuð sem ég á alveg ógert.
Auðvitað gengur það ekki eftir.
Matthildur hverfur úr sögunni og
lesandinn er skilinn eftir ráðþrota
með spurningar um hana og hvarf-
ið, sem aldrei fást nein svör við.
Þetta gremst þeim sem eru vanir
alvitrum sögumanni, en við hin lær-
um að lifa með þessu. Verra er að
sitja eftir með spurningar um Guð-
björgu sjálfa, sem tekst á við áföll
með undraverðum hætti án þess að
hún sjái ástæðu til að rekja það
ferli í endurminningunum.
Raunverulegt líf Guðbjargar
Tómasdóttur er fyrsta skáldsaga
höfundar. Það væri ofsögum sagt
að segja að textinn bæri þess
merki, en hann líður þó stundum
fyrir einhæfar lýsingar (ég missti
tölu á hve margar aðgerðir sögu-
persóna voru tilgerðarlausar) og
furðulegar líkingar. Hvað þýðir það
annars að fjarlægjast raunveruleik-
ann eins og veglaust haf? Fjarlæg-
ist einhver veglaust haf, eða fjar-
lægist veglaust haf raunveru-
leikann?
Þrátt fyrir það flæðir textinn og
höfundi tekst oft að koma tilfinn-
ingum sögupersóna og vandræða-
legum orðaskiptum þeirra að án
þess að þurfa að eyða í það orðum
sögumanns. Fyrir vikið er bókin
hraðlesin, dálítið eins og veglaust
haf. Frumraun í lagi!
Ólíkt gildismat rauði þráðurinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frumraun Raunverulegt líf Guðbjargar Tómasdóttur er fyrsta skáldsaga
Þórarins Þrándarsonar og segir frá ólíku gildismati hjóna.
Skáldsaga
Raunverulegt líf Guðbjargar
Tómasdóttur bbbbn
Eftir Þórarin Örn Þrándarson.
Bókabeitan gefur út. 217 bls. innb.
ALEXANDER GUNNAR
KRISTJÁNSSON
BÆKUR