Morgunblaðið - 19.12.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 298. tölublað 107. árgangur
BINDUR MIKLAR
VONIR VIÐ
JAPANSMARKAÐ
FRÁSAGNIR
AF SUMAR-
DVÖL Í SVEIT
ÆVISTARFIÐ
DRIFIÐ AF ANDRÍKI
OG HUGSJÓN
DAGLEGT LÍF 12 AF LISTUM 82-83ARI EDWALD 30-32
Bjúgnakrækir kemur í kvöld
5 dagartil jóla
jolamjolk.is
Ekkert banaslys hefur orðið á sjó
meðal lögskráðra íslenskra sjó-
manna það sem af er árinu. Það gæti
því orðið sjötta árið og það þriðja í
röð, sem ekkert slíkt slys verður í
flotanum. Árið 2008 var fyrsta árið
án banaslyss á lögskráðum sjómönn-
um og árin 2011, 2014, 2017 og 2018
fylgdu í kjölfarið.
Góður árangur í baráttu fyrir
auknu öryggi og fækkun banaslysa
á sjó hefur víða vakið athygli. Marg-
ir samverkandi þættir eru að baki,
að mati Jóns Arilíusar, rannsóknar-
stjóra hjá RNS. »52
Árið enn án bana-
slyss í flotanum
Óveðrið sem geisaði á landinu öllu í síðustu viku setti strik í
reikninginn hjá starfsfólki Íslandspósts sem hefur í nógu að
snúast í desembermánuði.
„Það varð til þess að við urðum svolítið eftir á en við erum
búin að ná því upp núna og gengur alveg ljómandi vel þrátt
fyrir mikið magn í pípunum,“ segir Halla Garðarsdóttir, for-
stöðumaður póstmiðstöðvar Íslandspósts. Guðrún Birta Pét-
ursdóttir (t.v.) og Sara Dís Rúnarsdóttir (t.h.) höfðu því í nógu
að snúast þegar ljósmyndari leit við í gær.
Morgunblaðið/Eggert
Komust fljótt aftur á beinu brautina eftir óveðrið
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Breytt nálgun dómaranefndar gæti
haft áhrif á málsmeðferðina fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu. Yfir-
deild dómstólsins tekur Landsrétt-
armálið fyrir í febrúar.
Eiríkur Elís Þorláksson, forseti
lagadeildar Háskólans í Reykjavík,
er þessarar skoðunar. Máli sínu til
stuðnings bendir hann á að nefnd
sem fjallar um hæfi dómara hafi áður
notað reiknilíkan. Með því hafi um-
sækjendur fengið tiltekin stig byggð
á starfsreynslu án þess að fram færi
efnislegt mat á þekkingu og getu
umsækjenda.
Vægast sagt gagnrýniverð
„Sú aðferð, sem notuð var í vinnu
dómnefndar til að fjalla um hæfi
dómara í Landsrétt þegar sá dóm-
stóll var settur á fót, var vægast sagt
gagnrýniverð. Má segja að umsögn
dómnefndarinnar hafi gert það að
verkum að ferlið gat aldrei gengið
upp í tilviki skipanar dómara við
Landsrétt. Ráðherra var settur í
mjög erfiða stöðu eftir að umsögnin
lá fyrir þar sem gert var upp á milli
umsækjenda með stigakerfi þar sem
skeikaði oft brotabroti,“ segir Eirík-
ur Elís. Nefndin breyti eðlilega um
aðferðafræði telji hún að sú fyrri
gangi ekki upp eins og virðist vera.
Umboðsmaður Alþingis rannsak-
ar nú stigagjöfina en honum bárust
kvartanir frá umsækjendum um
stöðu dómara, þó ekki við Landsrétt.
Sigríður Á. Andersen sagði af sér
sem dómsmálaráðherra í mars eftir
að dómur féll gegn ríkinu hjá neðri
deild Mannréttindadómstól Evrópu í
landsréttarmálinu. Ekki hefði verið
farið að reglum við skipan dómara.
Dómsmál í nýju ljósi
Ný nálgun dómefndar gæti haft áhrif á landsréttarmálið
Forseti lagadeildar HR segir mikla ágalla á dómaravalinu
MHringekja hjá dómaranefnd … »10