Morgunblaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2019
Félagið Minjar
og saga heldur
aðalfund sinn í
dag, fimmtudag,
kl. 12 í fundarsal
Þjóðminjasafns-
ins við Suður-
götu 41.
Á dagskránni
verða almenn að-
alfundarstörf.
Einnig mun
Steinar J. Lúðvíksson flytja erindi
en hann hefur nýlega sent frá sér
bókina Halaveðrið mikla, sem
fjallar um mannskæðar hamfarir
sem gengu yfir Ísland í febrúar árið
1925. Þá fórust um 80 manns til sjós
og lands. Sérfræðingar í veður-
vísindum, m.a. Trausti Jónsson veð-
urfræðingur, hafa talað um að
óveðrinu sem geisaði á landinu í
síðustu viku megi að nokkru líkja
við veðurskilyrðin sem sköpuðust í
febrúar árið 1925.
Félagsmenn Minja og sögu eru
hvattir til að mæta í dag en einnig
verður hægt að skrá sig í félagið á
fundinum, segir í tilkynningu.
Halaveðrið
rætt í dag
Steinar J.
Lúðvíksson
Náttúrufræðingurinn Hjörleifur
Guttormsson hlaut Minjavernd-
arviðurkenningu Minjastofnunar
Íslands 2019 á ársfundi stofnunar-
innar fyrir skömmu. Viðurkenn-
ingin er veitt einstaklingi, fyrir-
tæki, stofnun, sveitarfélagi eða
öðrum, sem skarað hefur fram úr á
einhvern hátt á sviði minjaverndar
á Íslandi.
Á vef Minjastofnunar kemur
fram að Hjörleifur hlaut viðurkenn-
inguna „fyrir ötult starf í þágu
minjaverndar um áratuga skeið“.
Hjörleifur lærði náttúrufræði í
Þýskalandi og á fjölbreyttan starfs-
feril að baki. Hann var meðal ann-
ars þingmaður og ráðherra, sinnti
landbúnaðarstörfum, skógrækt og
landmælingum. „Hjörleifur hefur
beitt sér ötullega í þágu náttúru-
verndar og sat í Náttúruvernd-
arráði um tíma auk þess sem hann
stofnaði og rak Náttúrugripasafnið
í Neskaupsstað,“ segir enn fremur
á vefnum.
Skrif og skráning vega þungt
Safnastofnun Austurlands, regn-
hlífarsamtök safna á vegum sveit-
arstjórna á Austurlandi, voru stofn-
uð 1972 að frumkvæði Hjörleifs,
sem var stjórnarformaður stofn-
unarinnar fyrstu sex árin. Hann
beitti sér fyrir húsvernd á Austur-
landi, fékk meðal annars Hörð
Ágústsson til að skrá og meta
gömlu húsin á Seyðisfirði, og vann
að friðun Löngubúðar á Djúpavogi.
Hjörleifur hefur skrifað mikið um
fornleifar og örnefni og átt sam-
vinnu um skráningu þeirra við
ýmsa fornleifafræðinga. „Um-
hyggja Hjörleifs og seigla hans við
að skrifa og miðla upplýsingum um
fornleifar á Austurlandi og þáttur
hans í fornleifaskráningu er ein af
meginástæðum þess að hann hlýtur
minjaverndarviðurkenningu Minja-
stofnunar árið 2019,“ segir jafn-
framt um heiðrunina.
Hjörleifur heiðraður fyrir
starf í þágu minjaverndar
Ljósmynd/Minjastofnun Íslands-María Gísladóttir
Viðurkenning Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar
Íslands, og Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur við útnefninguna.
Fékk Minjaverndarviðurkenningu Minjastofnunar 2019
Allt um sjávarútveg
DRAUMAJÓLAGJÖFIN
GLÆSILEG ULLARKÁPA
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
12.900,- 7.900,-
Kjólar & túnikur
Str. 40/42-56/58 Fleiri litir
Jólafín
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarka
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Flott jólaföt, fyrir flottar konur
Ármúla 44, 108 Reykjavík
s. 562 6062
Kjólar, peysur, skór, töskur
Gjöfin hennar
fæst hjá okkur