Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 22
FÉlagið04/09 sem samið var um umtalsverðar launahækkanir, en þó ekki jafn háar og upphaflegar kröfur hljóðuðu upp á. Samfara þessum samningum voru sett inn ákveðin viðmið varðandi forsendur samninganna. Viðmiðin voru meðal annars þau að ef launaþróun annarra stétta, þar á meðal opinberra starfsmanna, yrði meiri en það sem samið var um á almennum markaði myndi það leiða til uppsagnar samninganna í byrjun árs 2016. Stöðugur launamunur á bilinu 14-25% Samningar á almennum markaði og forsenduákvæðið hafði umtalsverð áhrif á kjarasamningsviðræður hjúkrunar- fræðinga. Samningar félagsins við alla helstu viðsemjendur voru lausir á þessu ári. Árið 2014 voru gerðir stöðugleika- samningar sem getið var um hér að framan og gáfu hjúkrunarfræðingum launahækkun upp á 2,8%. Samanburður félagsins á launum hjúkrunarfræðinga við aðrar sambærilegar stéttir sýndi umtalsverðan launamun á milli hjúkrunar- fræðinga og annarra stétta með sambærilega menntun og ábyrgð sem starfa hjá hinu opinbera. Launamunurinn er á bilinu 14-25% og hefur haldist stöðugur síðastliðin ár þrátt fyrir tilraunir félagsins í nokkrum kjarasamningum til að minnka þennan mun. Samanburðurinn hefur einnig leitt í ljós að hefðbundnar karlastéttir sem vinna einungis dagvinnu og vinna á stofnunum sem tilheyra öðrum ráðuneytum en heilbrigðisráðuneytinu eru að meðaltali með hærri heildarlaun en hjúkrunarfræðingar. Þeir eru að stórum hluta vaktavinnustétt og sækja allt að þriðjungi launa sinna í gegnum óþægindaálag vegna vinnu á kvöldin, nóttunni, helgar og á stórhátíðardögum. Hinar hefðbundnu karlastéttir sem vinna dagvinnu virðast hins vegar sækja sama hluta af launum sínum í föstum yfirvinnugreiðslum. Samanburðurinn hefur einnig leitt í ljós að hefðbundnar karlastéttir sem vinna einungis dagvinnu og vinna á stofnunum sem tilheyra öðrum ráðuneytum en heil- brigðisráðuneytinu eru að meðaltali með hærri heildarlaun en hjúkrunarfræðingar.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.