Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 24
FÉlagið06/09
Nei takk við kjarasamningum
Lög voru sett á verkfall Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og BHM
hinn 3. júní og stóð verkfall hjúkrunarfræðinga því í 18 daga. Í
lögunum var sett bann á verkfall Fíh auk þess sem kveðið var á um
að kjör hjúkrunarfræðinga yrðu ákveðin með gerðardómi sem myndi
úrskurða um laun þeirra og lengd kjarasamnings. Fíh mótmælti
setningu laganna þar sem félagið taldi ekki fullreynt að hægt væri að
binda enda á kjaradeiluna með samningum. Fáir fundir hefðu verið
haldnir og lítil breyting hefði orðið á afstöðu viðsemjenda meðan
á þeim stóð. Skoðaður var möguleiki á að fá lögunum hnekkt fyrir
dómstólum en eftir að BHM tapaði
sambærilegu máli fyrir héraðsdómi
og hæstarétti ákvað stjórn félags-
ins að fara ekki með málið fyrir
dómstóla.
Samninganefnd Fíh ákvað eftir
að lög voru sett á verkfall félagsins
að samþykkja fyrirliggjandi tilboð
ríkisins og leyfa hjúkrunarfræðing-
um sjálfum að ákveða hvort það
tilboð sem lá fyrir væri nægjanlegt.
Atkvæðagreiðslan fór fram í byrjun júlí og var niðurstaða hennar mjög
afgerandi. Um 89% starfandi hjúkrunarfræðinga hjá ríkinu tóku þátt í
atkvæðagreiðslunni og 88,7% þeirra sögðu nei við kjarasamningnum.
Laun hækki um 25% á samningstímanum
Gerðardómur tók því til starfa samkvæmt lögunum sem sett voru
á verkfallið. Hann skipuðu Garðar Garðarsson, Stefán Svavarsson
og Ásta Dís Ólafsdóttir. Samninganefnd Fíh fundaði reglulega með
gerðardómi ásamt SNR og var það stefna félagsins að vinna með
dómnum til að tryggja sem besta niðurstöðu fyrir hjúkrunarfræðinga.
Lögð voru fram fyrir dóminn ýmis töluleg gögn til að styðja við
málflutning samninganefndarinnar um að hækka þyrfti laun
hjúkrunarfræðinga meira en kjarasamningurinn sem var felldur
kvað á um. Gerð var dómsátt fyrir dómnum við SNR meðan á vinnu
gerðardómsins stóð. Dómsáttin innihélt breytingar á orlofs- og
desemberuppbót, nýtt ákvæði í 11. kafla kjarasamningsins sem
Um 89% starfandi
hjúkrunarfræðinga
hjá ríkinu tóku þátt í
atkvæðagreiðslunni og
88,7% þeirra sögðu nei
við kjarasamningnum.