Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 27
FÉlagið09/09 talverður fjöldi þeirra upp störfum. Flestar uppsagnirnar voru á Landspítalanum sem er stærsti einstaki vinnustaður hjúkrunar- fræðinga. Í heild sögðu um 300 hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá ríkinu starfi sínu lausu, eða um 14%. Flestar uppsagnirnar munu taka gildi í byrjun október. Um miðjan september hafði meirihluti þeirra dregið uppsagnir sínar til baka. Ljóst er að talsverður fjöldi þeirra sem sagði upp störfum mun ekki draga uppsagnir sínar til baka þar sem viðkomandi hafa farið til annarra starfa. Þessar uppsagnir munu því hafa umtalsverð áhrif á starfsemi Landspítalans þar sem 100 stöðugildi hjúkrunarfræðinga vantaði á Landspítalann áður en til uppsagna kom. Það er ljóst að í nýafstaðinni kjarabaráttu Fíh náðust ekki þau markmið sem lagt var af stað með í upphafi. Samspil aðstæðna og verkfalla annarra stétta höfðu þar mikið að segja. Úrskurður gerðardóms var þó mun betri en samninganefnd þorði að vona. Er það gleðilegt og skref í þá átt að leiðrétta laun hjúkrunarfræðinga komi ekki til þess að allir aðilar vinnumarkaðarins fái sambærilegar hækkanir. Verkfallsaðgerðirnar reyndu mikið á stéttina bæði andlega og faglega. Hins vegar kom í ljós hin gríðarmikla samstaða sem hjúkrunarfræðingar geta sýnt þegar þeir standa frammi fyrir verkefni sem þeir þurfa að leysa í sameiningu. Sú samstaða sem við sýndum í kjarasamningum 2015 er vonandi það sem koma skal í framtíðar- baráttumálum stéttarinnar, hvort sem um ræðir kjaramál eða málefni tengd faglegri þróun hjúkrunar. Kjarasvið félagsins mun nú vinna ötullega að því að ljúka þeim kjarasamningum sem eftir standa. Þegar þeim er lokið hefst vinna við endurgerð stofnanasamninga og frekari eftirfylgd með þeim bókunum sem fylgdu úrskurði gerðardóms. Kjarasvið mun jafnframt vinna áfram að bættum kjörum hjúkrunarfræðinga, auka þekkingu þeirra á réttindum sínum, skyldum og kjaramálum almennt. Gunnar Helgason er sviðsstjóri kjarasviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Ólafur G. Skúlason er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.