Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 56
FÉlagið04/06
hlutfall og samsetning fagfólks skuli vera. Gera á þá kröfu að æðstu
stjórnendur hafi fagþekkingu, kunnáttu og reynslu af málaflokknum.
Framlag hjúkrunarfræðinga til eflingar öldrunarhjúkrunar
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) ákvað að setja fram stefnu
félagsins í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu aldraðra. Fagsviði félagsins
og fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga var falið að vinna verkið í
byrjun árs 2014.
Fagsvið Fíh og fagdeilda öldrunarhjúkrunarfræðinga unnu úttekt
á stöðu öldrunarhjúkrunar hér á landi með það að markmiði að koma
með tillögur um hvernig megi efla hjúkrun og heilbrigðisþjónustu
aldraðra. Sviðstjóri fagsviðs félagsins og stjórn fagdeildar öldrunar-
hjúkrunarfræðinga mynduðu stýrihóp til að halda utan um og vinna
verkefnið. Ráðgjafahópur var myndaður sem í sátu hjúkrunar-
fræðingar með mikla þekkingu og reynslu af hjúkrun og heilbrigðis-
þjónustu aldraðra, auk þess sem fram fór víðtæk upplýsingaöflun
og heimildaleit um öldrunarhjúkrun bæði hér á landi og erlendis.
Afrakstur þeirrar vinnu var birtur í skýrslunni Hjúkrunarþjónusta
eldri borgara. Horft til framtíðar, sem gefin var út í maí 2015. Þar
var sett fram stefna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í hjúkrun og
heilbrigðisþjónustu aldraðra til 2020.
Hjúkrunarþing félagsins, sem haldið var í október 2014, var helg-
að öldrunarhjúkrun. Yfirskrift þingsins var Er pláss fyrir tengdó heima
hjá þér? Efling öldrunarhjúkrunar – þarfir næstu kynslóða. Á þinginu
var fjallað um sérhæfða hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða sem búa í
heimahúsum, á hjúkrunarheimilum eða liggja á sjúkrahúsum, þróun
öldrunarhjúkrunar og mikilvægi sérfræðiþekkingar í öldrunarhjúkrun.
Unnið var í hópum þar sem rædd voru menntunarmál öldrunar-
hjúkrunarfræðinga, hlutverk og ábyrgð þeirra, tækifæri og nýsköpun
innan öldrunarhjúkrunar og gæði þjónustunnar. Niðurstöður þingsins
voru síðan notaðar í tillögur stýrihópsins. Helstu niðurstöður hópanna
má sjá í fylgiriti A í skýrslunni.
Á fundi með Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra, 4. mars
2015, var vinna hópsins kynnt. Heilbrigðisráðherra kallaði eftir
tillögum hópsins og voru helstu tillögur hans kynntar í heilbrigðis-
ráðuneytinu á fundi með starfsmönnum ráðuneytisins, Heiði Margréti
Björnsdóttur, Bryndísi Þorvaldsdóttur og Elísu Hrund Gunnarsdóttur,