Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 63
FÉlagið02/03
stEFna FÉlags íslenskra hjúkrunarfræðinga var samþykkt á aðal-
fundi félagsins 18. maí síðastliðinn. Með því að setja fram stefnu
félagsins er skerpt á hlutverki þess. Sett er fram sýn félagsins, gildi
þess og markmið, aðgerðir og leiðir til að ná settum markmiðum.
Unnið hefur verið að gerð stefnunnar í nokkurn tíma. Til loka-
vinnslunnar var skipaður starfshópur undir forystu dr. Sigrúnar
Gunnarsdóttur. Hópurinn rýndi í innra og ytra umhverfi félagsins og
skilgreindi tilgang þess. Einnig skoðaði hann hvernig best væri að
haga skipulagi og framkvæmd starfseminnar til að félagið næði sem
bestum árangri.
Í stefnunni er sett fram skilgreining á félaginu, gildum þess og sýn.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er skilgreint sem samtök hjúkrunar-
fræðinga sem vinna saman að þróun hjúkrunar, heilbrigðisþjónustu og
heilsueflingar. Félagið er einnig hagsmunasamtök hjúkrunarfræðinga
sem standa vörð um réttindi þeirra, skyldur og kjör. Félagsmenn eru
kjarni starfseminnar og árangur félagsins byggist á virkri þátttöku
þeirra. Það eru því hjúkrunarfræðingar sjálfir sem hafa mest um það
að segja hvort félagið er virkt og á hvern hátt það starfar.
Sýn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er sú að félagið vinni að
árangursríkri og öruggri heilbrigðisþjónustu með þeim leiðum sem
það hefur yfir að ráða. Þar má nefna eflingu hjúkrunar á öllum svið-
um heilbrigðisþjónustunnar og aukinni þátttöku hjúkrunarfræðinga
í þróun og stefnumótun hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustunnar.
Samfélagsleg ábyrgð hjúkrunarfræðinga er því mikil enda ekki hægt
að efla heilbrigðisþjónustuna án þess að hafa á að skipa nægilegan
fjölda vel menntaðra hjúkrunarfræðinga.
Gildi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru ÁBYRGÐ – ÁRÆÐI
– ÁRANGUR. Ábyrgðin felur í sér að félagið nýti þekkingu og færni
hjúkrunarfræðinga með þarfir skjólstæðingsins í fyrirrúmi og í
samræmi við siðareglur félagsins og lög og reglugerðir sem snúa að
heilbrigðisstarfsfólki, sjúklingum og heilbrigðisþjónustunni. Áræði
stendur fyrir framsækið félag sem er í forystu í baráttu fyrir öflugri
heilbrigðisþjónustu, viðunandi kjörum og heilsueflingu íbúanna.
Árangur vísar til þess að félagsmenn nái settum markmiðum um
fagmennsku, kjör og samfélagslegt hlutverk. Starfsemi félagsins
byggist á og endurspeglast í gildum þess. Því er mikilvægt að hver og
einn félagsmaður geri þau að sínum.