Gríma - 01.11.1929, Blaðsíða 35
FRÁ ODDI STERKA
15
til íslands og hafði lítið yfirlæti. Eitt sinn hafði
hann komið á bæ einn á Ströndum; var bóndi eigi
heima og bað Sturla húsfreyju gistingar, en nefndi
sig ekki. Þar voru smíðuð keröld og tók hann gyrði
°g gjörð, en smíðaði síðan stafina og lét þá liggja
eftir, er hann fór um morguninn. Þegar bóndi kom
heim, sýndi húsfreyja honum smíðina, en hann bar
saman, og var allt til hæfis. Þá mælti hann: »Þar
hefur þú hýstan Smíða-Sturlu og engan annan«.
Sonur Sturlu hét Bjarni; hann var mikill maður
og knár og gerðist sveinn ólafs biskups Hjaltasonar
á Hólum. Bjarni komst í óvild við biskup og lýsti
sjálfur yfir því við hann, að hann væri í þingum við
húsfrú biskups, Sigríði Sigurðardóttur. Flýði Bjarni
síðan af landi burt og er mælt að hann hafi komizt
á Brimarhólm, en konungur hafi leyst hann þaðan
og gefið upp sakir, vegna karlmennsku hans, en
tekið hann síðan í lífvörð sinn. Þar var hann nokk-
urn tíma, en kom síðan til íslands aftur. Var hann
lögréttumaður í Skagafirði lengi; hann bjó á ós-
landi í óslandshlíð og lifði fram um 1600.
Bjarni fékk Ingibjargar, dóttur Páls sýslumanns
Grímssonar á Möðruvöllum. Þeirra son var Oddur
hinn sterki á Melum í Svarfaðardal, er Melamenn
eru frá komnir. Bjarni var í kynni við Guðbrand
biskup og fór Oddur sonur hans heim að Hólum og
dvaldi þar lengi á uppvaxtarárum sínum, þar til er
hann fluttist norður að Melum. Oddur var snemma
afarmenni til burða. Þegar hann fór frá Hólum og
norður um vortíma, er mælt að hann hafi verið
átján vetra að aldri. Bar hann þá allar eigur sínar
á baki sér; var það fimmtíu fiska kista ein, með
nokkru af fötum í. Gott var veður og hláka, og