Gríma - 01.11.1929, Side 76

Gríma - 01.11.1929, Side 76
56 LOÐINKINNA TRÖLLKONA ast, að hann muni gefa hverjum þeim manni dóttur sína, sem færi sér hana heila á hófi. Verður það þegar hljóðbært um allar næstu sveitir. Þótti mörg- um þar til mikils að vinna, og fjölgaði brátt leitar- mönnunum. Þetta spyrst og á heimili foreldra Þor- geirs. Fer þá Þorgeir eftir ráði Helgu til prests, og býður honum að leita dóttur hans, ef hann vilji unna sér ráðahags við hana, sem hann hafi heitið hverj- um sem fyndi hana. En prestur biður hann að gabba sig ekki; sé sér annað í hug en að svíkja þann mann sem fyndi hana. Við það fer Þorgeir heim og segir Helgu orð föður hennar. Fer svo Þorgeir með hana heim til föður hennar. Má nærri geta hve feginn hann varð komu hennar, og svo móðir hennar og allt heimafólk. Er nú Helga föstnuð Þorgeiri, með fús- um vilja hennar. Síðan býr Þorgeir sig af stað með marga hesta og við annan mann til þess að sækja fjármuni tröllanna í hellinn. Fundu þeir hellinn í hraunkambi í útjaðri afréttarins, því að Þorgeir hafði sett vel á sig leiðina, þótt dimmt væri um nótt- ina, er þau Helga flýðu til byggða. En er þeir komu inn í hellinn, sáu þeir að eldur logaði á skíðum og tröllkona, stór og illúðleg sat innan við eldinn og steikti kjöt á járnteini. Hún stendur þegar upp, er hún verður vör við mennina, og ræður á Þorgeir af mikilli grimmd. Taka þau fangbrögðum, en það finnur Þorgeir, að hann hafði ekki hálft afl við tröll- ið, og lætur berast undan víða um hellinn. En svo er hann mjúkur, að skessan kemur honum eigi af fótunum. Þó mæðist Þorgeir brátt og sér sitt ó- vænna, ef þau eigi lengi þessi fangbrögð. Heitir hann þá á kraft krossins, til þess að yfirstíga tröll þetta. Þá er sem flagðkonan missi allan mátt, og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.