Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016 Fyrstu búvörusamningarnir voru gerðir 1985 til að ákvarða rekstr- arskilyrði ákveðinna búgreina, sérstaklega mjólkurframleiðslu og sauðfjárræktar. Árin þar á undan hafði umframframleiðsla í mjólk- urframleiðslu numið allt að 10–13% og bændur höfðu ekki fengið greitt fullt verð fyrir framleiðslu innan búmarks í nokkurn tíma. Því var ljóst að fyrri lög áttu ekki lengur við og grípa þyrfti inn í svo ekki færi illa. Í samningunum árið 1985 var ákveðið að ríkissjóður ábyrgðist fullt grunn- verð til bænda fyrir ákveðið magn mjólkur og hófst þannig markviss aðlögun framleiðslunnar að innan- landsneyslu. Jafnframt var kveðið á um að aðstoða bændur við að leita nýrra búgreina og hvetja þannig til framþróunar og fjölbreytileika innan landbúnaðarins. Árið 1992 voru teknar upp beingreiðslur á mjólk og gert heimilt að eiga viðskipti með greiðslumark. Fjöldi samninga hafa verið gerðir síðan þá en óhætt er að segja að þeir samningar sem nú eru til afgreiðslu á þingi fela í sér þær mestu breytingar sem gerðar hafa verið innan greinarinnar síðan fyrstu búvörusamningarnir voru samþykktir. Nautgriparækt á tímamótum Á þessum tímamótum stendur nautgriparæktin frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Markaður hér á landi fyrir nautgripaafurðir hefur stækkað hratt undanfarin ár og allt lítur út fyrir að sú þróun haldi áfram. Á gildistíma núverandi samnings hefur til dæmis sala mjólkurafurða á fitugrunni aukist um þriðjung, úr 100,8 milljónum lítra í 133,7 milljónir lítra. Í nýjum búvörusamningum fel- ast mestu breytingar á starfsum- hverfi kúabænda sem hafa verið gerðar í þrjá áratugi. Ber þar hæst sú stefnumótun er snýr að því að greiðslumarkið fjari út á samnings- tímanum, bæði sem viðmiðun fyrir beingreiðslur og kvóti sem tryggir forgang að innanlandsmarkaði. Í samningnum eru þó öflugir varnagl- ar, fari svo að mál þróist á annan veg en stefnt er að, en samningana ber að endurskoða árið 2019 og aftur 2023. Ákvörðun um afnám kvóta árið 2021 var frestað um sinn en almenn atkvæðagreiðsla um málið verður haldin meðal kúabænda árið 2019, samhliða fyrstu endurskoðun samningsins. Fjölbreyttara stuðningsform Breytingar verða á stuðningsformi ríkisins og mun það byggjast á fleiri viðmiðum en áður. Fjárhagsrammi samningsins helst svipaður frá því sem nú er og stuðningurinn er að stærstum hluta greiddur út á framleiðslu afurða, eins og lagt var upp með í ályktun aðalfundar LK 2015 vegna búvörusamninga. Vægi greiðslna út á framleidda mjólk og gripagreiðslna eykst en á móti eru greiðslur sem fylgja greiðslumarki þrepaðar niður. Einnig verður mögulegt að fá stuðning við fjárfestingar, en þörfin á fjárfestingarstuðningi er allnokkur, sérstaklega með nýjum kröfum um aðbúnað nautgripa. Hagsmunir tryggðir óháð búsetu LK lagði mikla áherslu á að samstarf við úrvinnslu og markaðssetningu í mjólkuriðnaði væri áfram heimilt. Það er frumskilyrði þess að aðstaða bænda gagnvart markaði sé jöfn, óháð búsetu. Þannig fær mjólkur- framleiðsla hér á landi áfram þrifist til framtíðar. Einnig er mikilvægt að staða smærri vinnsluaðila í mjólkuriðnaði og aðgengi þeirra að hráefni er áfram tryggt, sem eykur fjölbreytni og vöruúrval fyrir neytendur. Mikilvægt er að þróa fyrir- komulag á verðlagningu mjólkur að breyttum tímum. Þrátt fyrir að eldra fyrirkomulag hafi skilað bændum og neytendum miklum ávinningi var mjög óheppilegt er verðlagningin var í óvissu langtím- um saman. Mikilvægt er að slík staða skapist ekki aftur. Ný tækifæri í nautakjötsframleiðslu Í samningnum er tekinn upp stuðn- ingur við nauta kjötsframleiðslu og rekstur einangrunarstöðvar fyrir holdagripi. LK fagnar þeim áfanga sérstaklega. Íslendingar flytja inn stóran hluta þess nautakjöts sem við neytum og þar eru mikil sóknar- færi fyrir íslenska bændur. Til að fullnægja innlendum markaði fyrir nautgripakjöt, þyrfti framleiðslan að aukast að lágmarki um fjórðung. Aukum verðmætasköpun í landbúnaði Með þessum breytingum eru að opnast ný tækifæri til að auka verð- mætasköpun í íslenskum landbún- aði. Það er og verður áfram megin- verkefni íslenskra nautgripabænda að sjá neytendum á Íslandi fyrir gæðaafurðum á hagstæðu verði. Gildistími Gert er ráð fyrir að samningarn- ir taki allir gildi í ársbyrjun 2017 og gildi út árið 2026. Að mati Landssambands kúabænda er afar mikilvægt að náðst hafi samning- ur um starfsskilyrði greinarinnar til næstu 10 ára. Framleiðsluferill nautgriparæktarinnar er langur og því skiptir miklu máli að starfs- skilyrði séu tryggð og greinin hafi möguleika á að horfa til langs tíma. Endurskoðunarákvæðin eru fyrir hendi ef eitthvað bregður út af eða nýjar aðstæður verða uppi. Markmið samningsins Markmið nýs samnings er að efla íslenska nautgriparækt, skapa greininni sem fjölbreyttust sóknar- færi og undirbúa hana undir áskor- anir næstu ára. Samningnum er auk þess ætlað að hvetja til þróunar og nýsköpunar með heilnæmi og gæði afurða, velferð dýra og samfélags- lega ábyrgð að leiðarljósi. • Að almenn starfsskilyrði í fram- leiðslu og vinnslu nautgripa- afurða og stuðningur ríkisins við greinina stuðli að áframhaldandi hagræðingu, bættri samkeppn- ishæfni og lægra vöruverði. • Að auðvelda nýliðun, þannig að nauðsynleg kynslóðaskipti geti orðið í hópi framleiðenda og tryggja að stuðningur ríkisins nýtist sem best starfandi bænd- um. • Að stuðla að fjölbreyttu framboði gæðaafurða á sanngjörnu verði fyrir innanlandsmarkað. • Að gætt sé sjónarmiða um dýra- velferð og heilnæmi afurða. • Að greinin fái svigrúm til að búa sig undir aukna erlenda samkeppni og skapa aðstæður til að nýta sóknarfæri á erlendum mörkuðum. • Að greinin geti endurnýjað fram- leiðsluaðstöðu í samræmi við auknar kröfur um aðbúnað og velferð gripa. Með nýjum samningi opnast fyrir ný tækfæri og nýjar lausnir fyrir kúabændur. Markmiðið er að auka verðmætasköpun í landbúnaði og nýta sem best tækifærin sem felast í sveitum landsins í þágu bænda, neyt- enda og samfélagsins alls. Í umræðunni Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri LK margret@naut.is Gróa Margrét Lárusdóttir og Sigurður Ólafsson, bændur á Brúsastöðum í Vatnsdal, bregða á leik í fjósinu. Mynd / HKr. Búvörusamningar og nautgriparæktin: Fjölbreyttari stuðningur skapar sóknarfæri fyrir kúabændur Nautgriparæktin stendur frammi fyrir miklum áskorunum á næstu árum. Mynd / Jón Eiríksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.