Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016 Fréttir Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins: Karvel í leyfi og Vignir tekur við Stjórn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) hefur samþykkt að veita Karvel L. Karvelssyni, fram- kvæmdastjóra RML, launalaust leyfi til eins árs. Vignir Sigurðsson, fjármála- stjóri RML, mun taka við stöðu Karvels á meðan. Að sögn Karvels mun hann taka sumarfrí mestan part septem- bermánaðar og fara að svo búnu í leyfi frá 1. október næstkomandi. Vignir mun taka við fram- kvæmdastjórastöðunni frá 1. september. Karvel segir að ástæða þess að hann er á leið í leyfi sé sú að hann er að fara að koma af stað verslun í félagi við annan mann á Akranesi. Ekki ráðið í stað Vignis Hann segir að ekki sé áformað að ráða nýjan fjármálastjóra í stað Vignis, heldur verði verkefni færð til. Karvel hefur gegnt starfi fram- kvæmdastjóra RML frá stofnun árið 2013. RML er einkahlutafélag í eigu Bændasamtaka Íslands og eru starfsmenn um 50. /smh Karvel L. Karvelsson. Sveitasæla í Reiðhöll- inni Svaðastöðum Landbúnaðarsýningin og bænda- hátíðin Sveitasæla verður haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók í Skagafirði nú á laugardag, 13. ágúst, og er hún opin frá kl. 11 til 17.30. Kvöldvaka hefst á sama stað kl. 19.30. Steinunn Gunnlaugsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sveitasælunnar, segir að margt verði að venju að sjá og skoða, enda sýnendur fjölmargir. „Við leggjum áherslu á að þetta er fjölskylduskemmtun þar sem land- búnaður af öllu tagi er í öndvegi,“ segir hún. Búgreinasamtökin taka þátt í hátíðinni en að þessu sinni verður sauðfjárræktin í forgrunni og verður eitt og annað henni tengt sem gestir geta forvitnast um. Vélasalar munu sýna nýjustu tæki og tól, dýragarður verður á svæðinu, handverksmarkaður, matvælafram- leiðslu verður gert hátt undir höfði og Latabæjarfólk verður á svæð- inu. Sameinað hestamannafélag, Skagfirðingur, efnir til hestamóts utandyra á laugardag. Á sunnudag, 14. ágúst, verða bú hér og hvar í Skagafirði opin gestum og gangandi, þar má nefna að glænýtt fjós að Kúskerpi og Vöglum verður opið en að auki geta þeir sem leið eiga um Skagaförð litið við á sauð- fjárbúinu Ökrum, ferðaþjónustubæn- um Kringlumýri eða á loðdýrabúinu Skörðugili.“ Matarhátíð alþýðunnar haldin í sjötta sinn: Breiðfylking íslensks land- búnaðar kemur nú að hátíðinni Matarhátíð alþýðunnar verður haldin næstkomandi laugardag, 13. ágúst. Margir þekkja þessa hátíð sem Reykjavík Bacon Festival, en það hefur verið heiti hennar í þessi fimm skipti sem hún hefur verið haldin. Að sögn Árna Georgssonar, eins af stofnendum Reykjavík Bacon Festival, hefur hátíðin þó alltaf haft þá yfirskrift að vera matarhátíð alþýðunnar. Nú hafi orðið þær eðlis- breytingar á henni að breiðfylking íslensks landbúnaðar mun koma að hátíðinni – og því hafi þótt viðeig- andi að gefa hátíðinni annað nafn sem myndi betur hæfa. Hann segir að stofnendur séu þó trúir uppruna sínum og auðvitað sé hátíðin einnig beikonhátíð. „Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt og alltaf fleiri og fleiri veitingastað- ir og framleiðendur sem taka þátt. Aðsókn hefur líka vaxið jafnt og þétt; í byrjun mættu um 250 manns á fyrstu hátíðina – sem var í raun viðburður sem var skipulagður með tveggja tíma fyrirvara. Í fyrra og árið 2014 komu um 50 þúsund manns, árið þar á undan um 20–25 þúsund og árið 2012 um 10–12 þúsund,“ segir Árni. Óvænt lítil uppákoma orðin að stórviðburði „Upphaf hátíðarinnar má rekja til þess að nokkrir Bandaríkjamenn sem tengjast okkur stofnendum voru á leið til landsins árið 2011 og við vildum koma þeim á óvart. Við vissum að þeir stæðu fyrir stærstu beikonhátíð veraldar svo okkur þótti sniðugt að bjóða þeim á litla beikon- hátíð á Íslandi, sem hefur nú heldur betur stækkað. Hópurinn sem stend- ur á bak við hátíðina samanstendur af nokkrum félögum sem störfuðu saman á siglinga- og útivistarnám- skeiði hjá Íþrótta- og tómstundaráði upp úr aldamótum. En svo eru menn einnig tengdir á ýmsan annan hátt. Í hópnum eru bræður, æskufélagar og æfingafélagar, svo eitthvað sé nefnt. Við gleymum aldrei leiknum, því þetta verður að vera skemmtilegt. Í því sambandi höfum við reynt að glæða hátíðirnar lífi og gleði. Svo má ekki gleyma því að ágóði af hátíðinni rennur til góðgerðarmála. Við höfum gefið Hjartadeild LSH hjartasírita, höfum styrkt félögin Umhyggju og Hjólakraft og munum afhenda Æfingastöðinni tæki nú á fimmtudaginn fyrir ágóða hátíðarinnar frá því í fyrra. Æfingastöðin er miðstöð þjónustu og þekkingar í hæfingu og endurhæfingu fyrir börn og ungt fólk með frávik í hreyfingum og þroska,“ segir Árni. Styrkir bönd landsbyggðar og borgar Sem fyrr er hátíðin haldin á Skólavörðustíg og nágrenni og segir Árni að um 14 veitingastaðir muni taka þátt og bjóða upp á innblásna rétti. Hann segir að hátíðin tengi landsbyggðina og borgina sterkari böndum. /smh Í fyrra sóttu um 50 þúsund manns hátíðina. Mynd / Siggi Anton Tveir uppboðsmarkaðir eftir á árinu fyrir greiðslumark með mjólk: Tækifæri til að gera tilboð er núna – segir Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda „Ég geri lítið annað þessa dagana en svara símtölum frá bændum sem eru að velta fyrir sér hvað skuli gera, ég upplifi mig bara sem fjármálaráðgjafa,“ segir Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, en Matvælastofnun, Mast, hefur auglýst uppboðsmarkað fyrir greiðslumark í mjólk þann 1. september næstkomandi og skulu tilboð hafa borist þangað eigi síðar en 25. ágúst næstkomandi. Matvælastofnun vekur athygli á því að einungis er hægt að selja greiðslumark á septembermarkaðnum sem ekki hefur verið framleitt upp í á árinu. Eins er bent á að síðasti uppboðsmarkaður með greiðslumark í mjólk verður 1. nóvember næstkomandi og þurfa tilboð vegna hans að hafa borist í síðasta lagi 26. október. Viðskipti á þeim markaði gilda fyrir greiðslumark árið 2017. „Það var uppi nokkur óvissa með nóvembermarkaðinn, þ. e. hvort af honum gæti orðið, því hann gildir fyrir næsta ár og þá mun að öllum líkindum hafa tekið gildi nýr búvörusamningur. Nú er búið að skera úr um að sá markaður verður haldinn þannig að bændur geta hvort heldur sem er selt á þeim markaði eða keypt,“ segir Arnar. Innlausnarskylda tekur við Eftir áramót tekur við innlausnarskylda af hálfu ríkisins, sem mun innleysa greiðslumark á sama verði og fékkst á kvótamarkaði áður. „Það breytist því í rauninni lítið, en gott fyrir bændur að hafa í huga að þessir tveir gluggar eru nú opnir, kvótamarkaðirnir í september og nóvember, og um að gera fyrir þá sem ætla sér að eiga viðskipti á þessum tveimur mörkuðum að hafa það í huga,“ segir Arnar. Einkum á það við um þá sem ætla sér að hætta í greininni og vilja selja sitt greiðslumark, en jafnframt fyrir þá sem hyggjast bæta við sig greiðslumarki. „Tækifæri til að gera tilboð er þá núna á þessum tveimur síðustu kvótamörkuðum ársins,“ segir hann. Bændur eru að sögn Arnars mikið að velta vöngum þessa dagana, en aðstæður eru misjafnar eins og gengur og ekki allir á sömu leiðinni. /MÞÞ Arnar Árnason, formaður Landssam- bands kúabænda. Krakkarnir sýna þaulþjálfaða kálfa. Undanfarin 25 ár hefur Jónatan Hermannsson, tilraunastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands á Korpu, staðið að saman- burðartilraunum á byggyrkjum frá nágrannalöndum Íslands. Tilgangurinn er að athuga hvernig þau standa sig í íslenskum aðstæð- um í sambanburði við íslensk yrki. „Við höfum gert tilraunir af þessu tagi á hverju ári og borið saman erlend byggyrki og okkar eigin kynbótalínur. Í sumar gerðum við þessar tilraun- ir eins og venjulega. Reitirnir eru að þessu sinni 108 á hverjum stað. Meðal íslensku kynbótalínanna í til- raununum eru nú tvær sem komnar eru langleiðina í það að verða ný skrásett yrki,“ segir Jónatan. Að sögn Jónatans eru sams konar tilraunir gerðar á fjórum stöð- um á landinu eins og venja hefur verið; á Korpu, á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, á Vindheimum í Skagafirði og Möðruvöllum í Hörgárdal. Um tilraunina á Korpu segir hann: „Sáð var í þessa tilraun 26. apríl eða á góðum tíma miðað við það sem við eigum að venjast hér. Áburður var mjög í hófi eða 60 kg af köfnun- arefni á hektara – enda land frjósamt þar sem tilraunin stendur. Kornið lítur prýðilega út, sprettan er mjög góð, heilbrigði með því besta, blaðsjúkdómar sjást varla, illgresi í lágmarki. Þó var engum varnarefnum beitt,“ segir Jónatan. Hann segir kornið þó furðu seint til þroska á Korpu þetta árið, í ljósi þess að hiti í Reykjavík hefur verið 1,4 stig yfir meðallagi áranna 1961–90 allan líftíma kornsins og úrkoma ekki verið til trafala – einungis 80 prósent af meðalúrkomu. Því sér hann ekki fram á að korn verði skorið á Korpu fyrr en í fyrsta lagi eftir fimm vikur. Í hinum til- raunareitunum fyrir norðan og austan sé kornið komið talsvert lengra í þroska. /smh Samanburðartilraun á byggyrkjum á Korpu 2016. Bygginu var sáð 26. apríl, en myndin er tekin undir morgunsól 6. ágúst. Mynd / Jónatan Hermannsson Korntilraunir á Korpu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.