Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016
Sauðfjárræktin og haustverkin
– Nokkur umhugsunaratriði fyrir haustið
Nýverið fann forysta BÍ það út að
óheppilegt væri að ég leiðbeindi
bændum um búfjárrækt sem
ég hef oft fengist við á rúmlega
40 ára starfsferli í tengslum við
BÍ. Ég verð því að biðja lesend-
ur að hafa þetta bann forystu-
mannanna í huga þegar þið lesið
þennan pistil.
Áhugi minn á búfjárræktinni
hefur hins vegar ekki minnkað neitt
við þessa ákvörðun þeirra. Ég hef
enn sama áhuga á að reyna að miðla
nýjum og gömlum hlutum til bænda
sem ég ætla að séu umhugsunar-
verðir fyrir þá og jafnvel geti bætt
búrekstur einhverra.
Hugleiðingar mínar að þessu
sinni eru til komnar vegna verkefnis
sem ég hef verið að undirbúa störf
við sem snýr að hagrænu vægi eig-
inleika í sauðfjár- og nautgriparækt
hér á landi. Til að takast á við slíkt
verkefni er nauðsynlegt að byrja á
að mynda sér heildarsýn um fram-
kvæmd ræktunarstarfsins, sem að
ég tel mig eitthvað þekkja til eftir
rúmlega 40 ára starf við það. Um
leið verður að reyna að horfa á fram-
kvæmd eins og hún hefur verið og er
með gagnrýnum augum. Mögulega
er það erfiðara fyrir mig þar sem ég
hef staðið að því að koma flestum
þessum þáttum í framkvæmd. Engu
að síður vil ég reyna.
Í sauðfjárræktinni í dag er þetta í
raun ekki mjög flókið þar sem rækt-
unarmarkmið endurspeglast í kyn-
bótaeinkunn sem þið notið á þann
hátt að lögð er þriðjungs áhersla á
kjötgæði, frjósemi og mjólkurlagni.
Kjötgæðin eru í þessu byggða upp
með því að leggja að jöfnu kynbóta-
mat fyrir gerð og fitu úr kjötmatinu.
Árangur ræktunarstarfsins ræðst
m.a. af því hversu vel bændum tekst
að vinna úrval ásetningsgripanna á
þessum grunni. Þetta er sú vinna
sem nú er framundan hjá sauðfjár-
bændum og því mjög gott að velta
örfáum atriðum fyrir sér.
Á undanförnum tveim áratug-
um hafa bændur unnið verulega
árangursríkt ræktunarstarf í sauð-
fjárræktinni. Staðfestingu þess er
hvað auðveldast að finna í frábæru
lokaverkefni Jóns Hjalta Eiríkssonar
frá LBHÍ nýverið. Hugleiðingar
mínar snúa m.a. að því að sjálfar
ræktunaráherslurnar þurfi ef til vill
að endurskoða til að gera starfið
enn markvissara. Ef við minnkum
áherslur á einn þátt þá skapast um
leið möguleikar á að auka áherslurn-
ar fyrir hina þættina svo fremi að
ekki komi til nýir þættir í ræktunar-
markmiðin m.a. nýir eiginleikar að
velja fyrir. Rýnum nú aðeins nánar í
þessa þætti og gerum það skipulega.
Nýir eiginleikar með kynbótamat
Byrjum fyrst á nýjum þáttum í rækt-
unarstarfinu. Þetta er mál sem alltaf
á og verður að vera til umræðu og
endurskoðunar hjá bændum. Ég held
hins vegar að þarna gerist ekkert
alveg á næstu tveim þrem árum og
vil aðeins rökstyðja það. Til að geta
haft með eiginleika í úrvali er skil-
yrði að við getum skilgreint hann
glöggt og höfum mælingar fyrir
hann. Fyrsta stigi er að skilgreina
og afla grunnþekkingar með að skrá
eiginleikann. Þetta útilokar sjálfsagt
næstu fimm til tíu árin fjölmarga
eiginleika sem forvitnilegt kann að
vera að huga að kynbótum á. Getum
nefnt burðarerfiðleika, spenastöðu-
og spenalengd hjá ám, júgurbólgu
og þannig má áfram telja. Ekki vil
ég fara mörgum orðum um 40 ára
baráttu mína fyrir að fá bændur til
að skrá eiginleika í sambandi við
ull. Mín skoðun er að bændur hafi
rækilega svarað áhuga sínum um þá
eiginleika í ræktunarstarfinu með
athafnaleysi sínu við skráningu
ullareiginleika.
Miklar þungaupplýsingar er að
finna í skráðum gögnum. Því miður
hefur mjög dregið úr skráningum á
þunga á fullorðnu fé. Þar verður að
gera mikið átak til aukinna mælinga
og skráninga á allra næstu árum.
Þennan eiginleika er nauðsynlegt
sem fyrst að geta tekið með í rækt-
unarstarfið. Þessi eiginleiki snýr
mikið bæði að almennri hagkvæmni
framleiðslunnar og sömuleiðis
umhverfis- og loftslagsmálum,
sem framtíðin mun krefjast að horft
verði til í ræktunarstarfinu. Eigum
við að búa við minni eða stærri ær
á komandi árum?
Þungi gripanna
Magn þungaupplýsinga fyrir lömb
er gríðarlegt. Samt er sá eiginleiki
ekki með í ræktunaráherslum okkar
sem mældar eru með kynbótamati.
Ég vil meina að þar sé ekki stór skaði
skeður og vil rökstyðja það. Fyrst má
nefna að ræktunaráherslur fyrir þann
eiginleika verður að marka með hlið-
sjón af þunga og stærð fullorðinna
gripa. Þrátt fyrir ósköp af rannsókn-
um okkar á ýmsum þungatölum
höfum við enga minnstu hugmynd
um þetta samband.
Þunga lambanna að hausti notum
við til að meta mjólkurlagni ánna
en það er annar þáttur sem vikið
verður að síðar. Haustþungi lamba-
nna er hins vegar samsettur bæði af
beinum vaxtaráhrifum hjá lambinu
og móðureiginleikur ærinnar sem
fóstrar lambið. Veruleg erfðaáhrif eru
fyrir báða þessa eiginleika auk þess
sem vitað er að á milli þeirra er meiri
eða minni erfðafylgni. Fyrir meira
en þrem áratugum mat ég þessa
erfðafylgni nokkuð neikvæða. Ég
tel mig nokkuð vissan um að þá var
eitthvað vit í þessum niðurstöðum.
Á þeim tíma var einfaldlega mögu-
legt að sjá þetta hjá afkvæmahóp-
um nokkurra þekktra sæðingahrúta.
Þetta tel ég mig ekki hafa geta greint
eins glöggt á síðari árum Samt finnur
Eyþór Einarsson þetta samband enn
neikvætt en hans rannsóknir eru mér
vitanlega einu rannsóknir hér á landi
á þessu á allra síðustu árum. Ég er
raunar orðinn þeirrar skoðunar að
þetta samband komi menn ekki til
að meta af nokkru öryggi á næstu
árum. Líkön sem fram hafa verið
sett um slíkt mat eru einfaldlega það
flókin og með ýmsar óraunhæfar
forsendur gagnvart þeim fjölmörgu
samböndum sem þar koma til. Ég tel
raunar að á næstu árum verði þróuð
ný og raunhæfari líkön til að meta
erfðaþætti gagnvart þunga gripa í
vexti. Ég held að við séum engu að
fórna með að þar skapist raunhæfari
grunn en við höfum með núverandi
þekkingu okkar.
Haustþungi lamba hefur ætíð
verið með ákveðinn úrvalsþunga
sem hefur skapað ákveðnar en lík-
lega fremur takmarkaðar framfarir
fyrir eiginleikann. Hjá nágrönnum
okkar Norðmönnum hefur þetta
verið eiginleiki með miklar áherslur
í ræktunarstarfinu. Þeir hafa reikn-
að sér gríðarmiklar erfðaframfarir
vegna eiginleikans. Veikleikinn er
aðeins að framfarirnar hafa komið
minna fram beint í framleiðslunni en
fyrir aðra eiginleika í ræktunarstarf-
inu. Í slíku ræktunarstarfi eru menn
líklega að vaða reyk að hluta sem ég
vonast til að geta skýrt í fréttum af
norsku sauðfjárræktarstarfi sem von-
andi fæst birt í næsta Bændablaði.
Það sem ég mundi ráðleggja
fjárbændun að gera gagnvart þess-
um eiginleika er eftirfarandi. Nú
er hlutur lamba undan veturgömlu
hrútunum sívaxandi með hverju
árinu hjá flestum. Setjið ekki á
ásetningshrúta undan veturgömlum
hrútum nema þeir séu að skila vel
yfir meðalfallþunga sem þið eigið
auðvelt með að meta útfrá niðurstöð-
um í Fjárvís. Takmarkið líka frekar
gimbraásetning undan veturgömlu
hrútunum sem skila fallþunga undir
meðaltali búsins. Með þessum regl-
um held ég að þið náið í flestum til-
vikum fram nægum úrvalsþrýstingi
á þunga lambanna í hlutfalli við aðra
eiginleika.
Skrokkgæði
Þá skulum við snúa okkur að eig-
inleikunum sem eru í heildarkyn-
bótaeinkunnum sem þið hafið til að
framkvæma valið eftir. Lítum fyrst
á kjötgæðaeinkunn. Mikil fita hefur
verið fjarlægð af íslenska fénu með
skipulegri ræktun á innan við tveim-
ur áratugum. Ég sagði ykkur fyrir
mörgum árum og allar rannsóknir
og athuganir síðustu ára styðja það
að allar þessar framfarir hafa orðið í
gegnum skipulegt val sæðingahrúta
um árabil. Flest bendir til að stofninn
hafi náð því fituleysi sem æskilegt
er. Það þýðir að miklu fituleysi er
ekki lengur gefið full vægi í kynbóta-
matinu. Fyrir bændur breytir þetta
ef til vill ekki öllu því að eins og
áður segir úrvalið hefur allt verið á
sæðingahrútunum. Þetta þýðir hins
vegar að ekki þarf eins og áður að
horfa til fitunnar við val stöðvarhrút-
anna og þann valþrýsting sem þar var
er því mögulegt að færa með auknu
vægi á aðra eiginleika við val þeirra
hrúta. Í almenna ræktunarstarfinu
þarf fyrst og fremst að standa vörð
um að fituhnallar komist ekki að
nýju inn í stofninn. Það tryggið þið
með ómmælingu og skoðun á kyn-
bótamati fyrir eiginleikann við val á
öllum ásetningshrútum.
Fyrir gerð í kjötmati hafa verið
meiri erfðaframfarir í stofninum á
síðustu tveim áratugum en fyrir aðra
eiginleika. Þar hafa ræktunaráherslur
ykkar bænda í heild tvímælalaust
verið mestar. Ekkert bendir til
annars en þar séu allir möguleikar
samt enn til umtalsverðra framfara.
Ræktunarstarfið þar er í góðum far-
vegi og framhald framfara verður
öðru fremur eins og verið hefur
tryggt með áframhaldi ómmælinga
á mögulegum ásetningslömbum og
notkun á niðurstöðunum úr kjöt-
matinu. Það eina sem nauðsynlegt
er að koma til framkvæmda er að
nýta einnig tölur úr ómmæling-
um við útreikning kynbótamats-
ins fyrir gerð og fitu. Þær bæta þá
útreikninga með að bestu lömbin,
ásetningslömbin, fara að telja með
mælingum í kynbótamatinu en þau
hafa til þessa staðið utan þess. Það
sem skorti voru erfðastuðlar en þeir
komu með áðurnefndu verkefni
Jóns Hjalta þannig að nú er aðeins
að framkvæma hlutina.
Frjósemi ánna
Gagnvart frjósemi ánna eru mörg
atriði sem áhugavert er að ræða.
Hins vegar hef ég oft rætt marga
hluti þess þannig að ég vil aðeins
nefna örfá önnur atriði. Í fyrsta lagi
held ég ástæða sé til að velta fyrir
sér áherslum á þennan eiginleika
í ræktunarstarfinu. Ég hef orðið
meira og meira sannfærður um að
fyrir meginþorra bænda hér á landi
hefur þessi eiginleiki ákveðið kjör-
gildi. Bændum hentar ær með tvö
lömb, fleiri lömb krefjast aukinnar
vinnu og til að hagnaður skili sér
verður að skipuleggja framleiðsl-
una á annan hátt en flestir hafa gert
til þessa. Í sambandi við fund um
áðurnefnt verkefni um hagrænt gildi
eiginleika varpaði ég því fram þeirri
hugmynd að áhersla á frjósemi væri
fall að því hve langt búið ætti í þetta
mark. Þannig vill síðan til að fyrir
um mánuði þá birta helstu kynbóta-
fræðingar Nýja-Sjálands, meðal
annars Amer sem mest hefur skrifað í
heiminum síðasta áratuginn um ýmis
efni tengd hagrænu vægi eiginleika,
grein þar sem þeir rannsaka mismun-
andi möguleika á að leggja hagrænt
vægi á frjósemi í ræktunarstarfinu.
Þeir skoða m.a. þá hugmynd sem ég
ræddi að framan og niðurstaða þeirra
er að þetta sé langsamlega árangurs-
ríkasta leiðin við aðstæður þar í landi
og er því það sem nú verður notað
í nýsjálenskri sauðfjárrækt á næstu
árum. Þannig held ég líka að við
eigum að vinna. Í framkvæmd þýðir
þetta að á búum þar sem frjósemin
hjá ánum er komin um eða yfir tvö
lömb er engin ástæða lengur til að
leggja þriðjungsvægi á frjósemina
við val ásetningslambanna. Við það
skapast svigrúm fyrir aukið vægi á
aðra eiginleika í staðinn eins og ég
ræddi í sambandi við fituna.
Annað vandamál sem ég hef oft
rætt tengist tilveru stórvirku erfða-
vísanna fyrir frjósemi í stofninum.
Vandamálin sem tengjast kynbóta-
matinu þar eru því eingöngu bundin
búum þar sem eitthvað er um þetta
fé. Í vetur skrifaði ég grein þar sem
ég skýrði sum þessi vandamál og
verður það ekki endurtekið. Fljótlega
eftir að þessir erfðavísar fóru að upp-
götvast á níunda áratugnum var gerð
skýr fræðileg grein fyrir því hvernig
leysa ætti þessi mál varðandi BLUP
kynbótamatið. Vandamálið er aðeins
það að forsendubrestur er gagnvart
framkvæmd því að gert er ráð fyrir
að þekkja alla einstaklinga sem bera
genið. Það gerist ekki fyrr en með
erfðagreiningu sem langt er í að
verði það almenn í sauðfé og þess
vegna er þessu hvergi beitt í reynd.
Annað atriði sem rétt er að benda á
er að einstaklingar undan arfblendn-
um hrútum sem ekki fá genið verða
alltaf ofmetnir í BLUP útreikningum
og skekkja í því mati er því meiri en
hjá öðrum einstaklingum. Eins og
við Eyjólfur Bjarnason höfum bent
á í greinum á síðustu misserum er í
framtíðinni langskynsamlegasta og
hagnýtasta leiðin til að nýta þessi
gen að sækja þau aðeins í gegnum
arfhreina hrúta á stöðvunum. Þannig
er stjórnin á notkuninni að öllu leyti í
höndum hvers og eins bónda fyrir sitt
bú. Þennan ærstofn er skynsamlegast
að halda aðeins sem framleiðslustofn
en virkja ekki í almenna ræktunar-
starfinu á búinu.
Mjólkurlagni ánna
Þá er aðeins eftir að fjalla um mjólk-
urlagni eða móðureiginleika ánna. Á
grunni þess sem þegar er sagt þá ættu
hjá mörgum bændum að gefa þess-
um eiginleika meira svigrúm í vali
ásetningslambanna en verið hefur.
Það er einnig áreiðanlegt að þetta er
eiginleiki sem getur skilað miklu ef
mögulegt er að bæta hann sem er full
vissa fyrir að er hægt. Mælingarnar
sem við höfum til að byggja valið á er
kynbótamatið fyrir þennan eiginleika.
Þar eru hins vegar að mínu viti mörg
ljón í veginum sem við þurfum að
læra meira um hegðun hjá.
Fyrsta vandamálið er augljós-
lega þetta að við höfum enga beina
mælingu fyrir eiginleikann og alls
ekki mögulegt að mæla hann hjá
ásetningslömbunum sjálfum. Ærnar
metum við í dag með útreikningi á
afurðastigi. Á því eru líklega jafn
margar skoðanir og sauðfjárbændur
eru í landinu. Þrátt fyrir áratuga rann-
sóknir höfum við samt ekki fundið
neina betri leið til að mæla þennan
eiginleika. Það er samt ekki mjólkur-
lagnin ein sem við teljum okkur mæla
í þunga lambanna hjá ánni sem skiptir
máli. Einni er það fjölmargir aðrir
þættir hjá ánni sem skipta máli þegar
móðureiginleikar þeirra eru metnir
t.d. umhyggja þeirra fyrir lömbun-
um. Ekki vitum við neitt um hvort
þessir þættir mögulega endurspeglist
að einhverju leyti í afurðastiginu.
Sumstaðar erlendis hafa verið farnar
þær leiðir að meta mjólkurlagnina á
grunni þunga lambanna í sauðburðar-
lok eða við fjallaferð lambanna. Að
hluta sýnist mér að flestum virðist
yfirsjást að það er ekki sami eiginleiki
varðandi mjólkurlagni sem verið er
að mæla að vori og hausti í vænleika
lambanna á mismunandi tíma.
Hvort sem um er að ræða mjólk-
urlagni ánna eða eigin vaxtarhraða
lambanna þá reiknum við með að
þetta skili sér í vænni lömbum. Svör
markaðarins eða sláturleyfishafa hér
á landi hafa aftur á móti ávallt verið
óljós um hvaða áherslur eigi að leggja
um vænleika lambanna. Svarið við
auknum vexti lambanna en óbreytt-
um meðalfallþunga getur þá falist í
að ná að slátra dilkunum yngri en
almenn gerist nú. Með því erum við
mögulega líka að breyta gæðaþáttum
hjá kjötinu sem lömbin skila. Einnig
sýnist mér ljóst að við framleiðslu-
aðstæður hér á landi þá munu menn
vilja halda sig við sláturaldur á bil-
inu 120–150 daga hjá lömbunum.
Hér getur að sjálfsögðu breytingar í
burðar- og sláturtíma einnig komið
til sem hliðrunarþættir.
Þessi atriði sem hér eru nefnd sýna
að fjölmarga þætti er ástæða fyrir
okkur að skoða betur og skilgreina
nákvæmar en við höfum gert.
Eftir stendur að ræktunar-
möguleikarnir eru áfram miklir. Val
ásetningslambanna verður aldrei
vandað um of, sérstaklega ásetn-
ingshrútanna.
Hugleiddu aðeins þau atriði sem
ég ræði um breytilegar ræktun-
aráherslur á milli búa og metið hvað
eigi best við í þínu tilviki.
Notið sömu hjálpartæki og skil-
að hafa ykkur mestu. Handfjötlun
lambanna, stigun og ómsjármælingar
þeirra sem koma til greina sem ásetn-
ingslömb. Síðan þurfið þið að nota
miklu betur en almennt er þá gull-
kistu sem Fjárvís getur verið í þessu
sambandi. Þar finnið þið kynbótamat
eða kynbótaspá allra gripa og einnig í
haustbókinni. Með því notendavæna
umhverfi sem Eyjólfur Bjarnason
hefur haft forystu um að þróa fyrir
ykkur á síðustu misserum í Fjárvís
hafa ykkur verið skapaðir möguleikar
til að skoða hvern grip frá mörgum
mismunandi hliðum.
Vönduð og skipuleg vinnubrögð
við val ásetningslambanna munu
ávallt skila sér í betri og meiri afurð-
um á búinu á komandi árum.
/ Jón Viðar Jónmundsson
Fé í Þingvallasveit. Vönduð og skipuleg vinnubrögð við val ásetnings-
lamba munu ávallt skila sér í betri og meiri afurðum á búinu. Mynd / SH