Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 11.08.2016, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 11. ágúst 2016 Skútuvogi 11 www.neyd.is s: 510 8888 Opið alla virka daga 8-18 laugardaga 10-14 Vantar Hurðapumpur 54 54 300 SMIÐJUVEGUR 7 KÓPAVOGUR vottuð framleiðlsa GRILLAÐU Í SKJÓLI GLER Í SKJÓLVEGGI Fóðurefnagreiningar – Forsenda þess að fóðra rétt er að þekkja gróffóðurgæðin Gróffóður er meginundirstaða búvöruframleiðslu af nautgripum og sauðfé hér á landi. Skynsamleg og markviss framleiðsla þessara búgreina m.t.t. afurða og heilbrigðis byggir öðru fremur á því að við þekkjum gæði gróffóðursins, hvort heldur sem er orkuinnihald / meltanleiki, próteingæði eða steinefni. Í ár var vorkoman og gróandinn með því hagstæðasta sem gerist, nánast um allt land og grasþrosk- inn því óvenju snemma á ferðinni. Helstu vaxtarþættir jarðargróðurs, – s.s. jarðraki, varmi og plöntunær- ing voru með ákjósanlegasta móti. Klassíska viðmiðið um heppilegan sláttutíma túngrasa; - við byrjun skriðs á vallarfoxgrasi – til þess að ná hámarks fóðurgæðum kann því að hafa verið eilítið seinna á ferðinni en hinn raunverulegi grasþroski. Þrátt fyrir þessar jákvæðu ytri aðstæður og hagstæða heyskapar- tíð á stórum hluta landsins er samt sem áður rík ástæða til þess að afla upplýsinga um gæði gróffóðursins – og alls ekki ástæða til að draga úr eða sleppa því að taka heysýni til efnagreininga. Samningur RML við BLGG í Hollandi Undanfarin þrjú ár hefur Ráðgjafar- miðstöð landbúnaðarins, RML boðið bændum um allt land að taka heysýni og senda til efnagreininga, gegnum sérstakan þjónustusamn- ing við hollenska efnagreininga- og rannsóknafyrirtækið BLGG AgroXpertus AB. Nú hafa nýir eigendur (EUROFINS Agro) yfir- tekið rekstur þess – en þrátt fyrir það verða engar teljandi breytingar á þjónustunni. Almenn ánægja hefur verið meðal bænda með þessa þjónustu, en þjónustusamningur- inn tryggir mjög víðtæka og einkar hraðvirka efnagreiningaþjónustu á hagstæðu verði. Samskiptaaðili RML um þjónustuna er sérstök umboðsskrifstofa; - Eurofins Agro Testing Sweden AB, sem staðsett er í Kristianstad í Svíþjóð. Þessa dagana er verið að ganga frá framlengingu hliðstæðs samnings og verið hefur í gildi og mun hann gilda frá ágúst 2016. RML leggur áherslu á að taka fóðursýni úr verkuðu fóðri, – rúllu- böggum eða heystæðum eftir a.m.k. 5 til 6 vikna verkun. Ráðunautar RML víðsvegar um land munu annast heysýnatökuna með þar til gerðum sýnatökubúnaði og sjá um að safna sýnunum saman til sendingar. Þeir munu einnig sjá um að túlka niðurstöðurnar fyrir þá bændur sem þess óska. RML annast og ábyrgist greiðslu á greiningarkostnaði og innheimtir síðan kostnaðinn hjá bændum. Fjölþættar og greinargóðar upplýsingar um heyfóðrið geta einnig nýst til markvissari áburðarnotkunar og áburðaráætlanagerðar og ekki síður til þess að meta og skipuleggja endurræktun túna. Afhendingartími niðurstaðna Samkvæmt nýja samningnum er stefnt að því að skila niðurstöðum 95% sýna innan 10 vinnudaga frá því sýni berst til greiningar. Ef til viðbótar venjulegri fóðurefnagreiningu eru greind bæði snefilefni (samtals 14 efni) og að auki rokgjarnar, lífrænar sýrur (mjólkur- edik- og smjörsýra) er afhendingarfresturinn hins vegar eitthvað lengri. Bóndinn getur síðan valið um hvort niðurstöðurnar berist honum á rafrænu formi (með tölvupóstur) eða fá þær sendar með landpósti. Niðurstöðurnar eru einnig lesnar beint inn í norræna fóðurmatskerfið NorFor (FAS) um leið og þær liggja fyrir og eru þá þegar aðgengilegar til áætlanagerðar í ráðgjafarverkfærinu; TINEOptifor- Island. Sauðfjárbændur eru sérstaklega hvattir til að láta efnagreina sín hey! Eins og á liðnu ári er ástæða til að hvetja sauðfjárbændur til að láta efnagreina sín hey. Markviss fóðrun búfjár byggist á upplýsingum um efnainnihald fóðursins sem gefið er. Verð á efnagreiningum Upplýsingar um greiningarkostnað liggja fyrir í sænskum krónum (SEK) en endanlegt verð í íslenskum krónum er að sjálfsögðu háð gengis- breytingum. Sem dæmi má gera ráð fyrir eftirtöldum kostnaði á sýni eftir því hvað greint er (verðdæmin miðast við gengi SEK í lok júlí og eru án virðisauka). 1. Gras- og hirðingarsýni, fóðurefnagreining, án steinefna kr. 6.600–7.000 2. Gras- og hirðingarsýni, fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 9.300–9.500 3. Vothey, fóðurefnagreining án steinefna kr. 9.300–9.500 4. Vothey, fóðurefnagreining, + 10 stein- og snefilefni kr. 11.300–11.600 5. Vothey, fóðurefnagreining, + 14 stein- og snefilefni kr. 17.200–17.500 / Gunnar Guðmundsson, RML Hvert geta bændur snúið sér? Við hvetjum alla bændur; kúabændur, sauðfjárbændur, hrossabændur, til þess að kynna sér þessa mikilvægu þjónustu og nýta sér hana. Þær upplýsingar sem fást gegnum fóðurefnagreiningar nýtast ekki eingöngu varðandi fóðrun heldur ekki síður við ákvörðun á áburðargjöf. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í fóðuráætlanagerð fyrir mjólkurkýr með NorFor kerfinu, eða fóðurráðgjöf / fóðuráætlanagerð fyrir sauðfé og jafnframt nýta sér efnagreingarþjónustu samkvæmt samningi RML og Eurofins / BLGG, vinsamlega hafi samband við einhvern af eftirtöldum ráðgjöfum RML. Lena Reiheer S: 516 5034 Netfang: lr@rml.is Eiríkur Loftsson S: 516 5012 Netfang: el@rml.is Berglind Ósk Óðinsdóttir S: 516 5009 Netfang: boo@rml.is Elín Nolae Grethardsdottir S: 516 5066 Netfang: elin@rml.is Guðfinna Lára Hávarðardóttir S: 516 5017 Netfang: glh@rml.is Jóna Þórunn Ragnarsdóttir S: 516 5029 Netfang: jona@rml.is Baldur Örn Samúelsson S: 516 5020 Netfang: baldur@rml.is Gunnar Ríkharðsson S: 516 5072 Netfang: gr@rml.is Anna Lóa Sveinsdóttir S: 516 5006 Netfang: els@rml.is Guðný Harðardóttir S: 516 5021 Netfang: gudnyh@rml.is Borgar Páll Bragason S: 516 5010 Netfang: bpb@rml.is Gunnar Guðmundsson S: 516 5022 Netfang: gg@rml.is Einnig er hægt að hafa samband við skiptiborð á starfsstöðvum RML (sími 516 5000) til að óska eftir heysýnatöku eða til að óska eftir fóðurráðgjöf / fóðuráætlangerð. Nú þegar er hægt að panta heysýnatöku og í framhaldinu fóðurráðgjöf / fóðuráætlanagerð á heimasíðu RML www. rml.is. Ráðunautar RML stefna að því að hefja sýnatöku hjá bæn- dum í ágúst. Eins og greint er frá í 13. tölublaði Bændablaðsins munu Efnagreiningar ehf. á Hvanneyri sinna efna greiningaþjónustu fyrir bændur. RML mun liðsinna bændum með sýnatöku og túlkun niðurstaðna, hvar svo sem þeir kjósa að láta efnagreina sitt fóður. RML hefur boðið bændum um allt land að taka heysýni og senda til efnagreininga. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.