Bændablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Svavar Halldórsson, fram-
kvæmda stjóri Landssamtaka
sauð fjárbænda (LS), skrifaði
pistil í Bændablaðið 25. ágúst
síðas tliðinn undir fyrirsögninni
Sauðfjárbændur vilja banna
erfðabreytt fóður. Af hálfu LS er
stefnt að því að útrýma með öllu
erfðabreyttu fóðri úr greininni og
fyrir rúmu ári síðan var leitað eftir
samstarfi við fóðursala um það
verkefni.
Í grein Svavars kemur fram að
ímynd helstu fyrirtækja heimsins í
framleiðslu á erfðabreyttu fóðri sé í
meira lagi vafasöm. Aðgangsharka
í hagsmunagæslu og einokunartil-
burðir varðandi verslun með fræ,
eru taldar vera helstu ástæður fyrir
slæma orðsporinu. Þá sé það alls
ekki óumdeilt að erfðabreyttur matur
sé skaðlaus.
Haft var samband við fóðursala
á Íslandi og staðan könnuð hjá þeim
varðandi framboð, eftirspurn og verð
á óerfðabreyttu fóðri.
Óerfðabreytt fyrir sauðfé, fugla
og fiska hjá Fóðurblöndunni
Úlfur Blandon hjá Fóðurblöndunni
segir að óerfðabreytt fóður hafi verið
framleitt hjá þeim í töluverðan tíma.
Það hafi komið til vegna aukinn-
ar eftirspurnar. Hann segir að allt
fóður fyrir sauðfé sé óerfðabreytt
hjá Fóðurblöndunni í dag – og hafi
verið á annað ár.
Varðandi aðrar búgreinar segir
Úlfur að fuglafóðrið hjá þeim sé líka
allt óerfðabreytt, eins og fiskafóðrið.
Í nautgripafóðri hjá Fóðurblöndunni
séu tvær blöndur í boði; ein sér-
blanda sem nokkrir aðilar kaupa
en flestir taki fóður sem inniheldur
erfðabreytt sojamjöl.
Hann segir töluverðan mun á því
óerfðabreyttu fóðri sem er í boði
hjá þeim, því óerfðabreytt sojamjöl
sé talsvert dýrari í innkaupum.
Gæðalega sé óerfðabreytt og erfða-
breytt fóður svipað.
Eingöngu óerfðabreytt fyrir
sauðfé hjá Bústólpa
Hólmgeir Karlsson, fram kvæmda-
stjóri Bústólpa, segir að allt það
fóður sem framleitt er sérstaklega
fyrir sauðfjárræktina sé úr óerfða-
breyttu hráefni – og svo hafi lengi
verið. „Kraftblanda heitir sauðfjár-
fóðrið okkar, en þar er aðal prótein-
gjafinn kolmunna- og síldarmjöl.
Umræða um erfðabreytt eða
ekki erfðabreytt hráefni hefur verið
tekin hjá okkur og við lítum svo á
að þetta sé mál sem landbúnaður-
inn sem atvinnugrein þurfi að taka
ákvörðun um. Við hjá Bústólpa erum
hlynnt því að einungis verði unnið
með óerfðabreytt hráefni. Hér á landi
snýst þetta fyrst og fremst um notk-
un á sojamjöli, sem ekki er allt af
óerfðabreyttum uppruna. Sojamjöl
sem ekki er vottað óerfðabreytt er
ódýrari próteingjafi og það að taka
það út eða skaffa eingöngu vottað
óerfðabreytt sojamjöl leiðir til hækk-
unar á kostnaði og hærra fóðurverðs.
Á þessu þarf að vera skilningur og
ljóst að allir fóðursalar þyrftu að vera
með ef slík ákvörðun yrði tekin fyrir
landbúnaðinn.
Þá erum við einnig að framleiða
fóður fyrir ungkálfa sem er óerfða-
breytt og heitir Kálfakögglar.
Við áætluðum það fyrir um tveim-
ur árum, að það að hætta allri notkun
á erfðabreyttu soja myndi leiða til
þriggja til fimm prósenta hækkunar
á fóðri að jafnaði,“ segir Hólmgeir.
Eingöngu kjarnfóður fyrir
nautgripi hjá Landstólpa
Hjá Landstólpa hefur hingað til ekki
verið boðið upp á óerfðabreytt fóður,
en sá möguleiki er til skoðunar hjá
fyrirtækinu. Sævar Örn Gíslason,
sölustjóri á mannvirkjasviði, segir að
þeir séu reiðubúnir til þess að bjóða
upp á þetta fóður, óski markaðurinn
eftir því. „Við höfum heldur ekki
boðið upp á sérstakar ærblöndur hing-
að til, þótt vissulega gætum við það
einnig – hvort heldur sé um óerfða-
breytt hráefni að ræða eða ekki. Þetta
er allt í skoðun og í raun stanslaust frá
öllum sjónarhornum.
Við höfum einbeitt okkur að
kúabændum og við að fínpússa
fóðurblöndur og þjónustu við þá.
Við teljum okkur að sjálfsögðu vera
kyndilbera lækkaðs verðlags á kjarn-
fóðurblöndum á Íslandi og aukinni
þjónustu við bændur og aldrei að vita
nema við látum sauðfjárbændur njóta
þess einnig innan tíðar.
Fóður úr óerfðabreyttum hráefnum
yrði vissulega eitthvað dýrara en eftir
lauslega skoðun ætti það ekki að vera
neitt ógnvænlegt. Það ætti heldur ekki
að koma niður á gæðum fóðursins,
en það þarf einfaldlega meira hrá-
efni og meira landsvæði í heiminum
til þess að rækta í slíkt fóður. Það
útskýrir verðmuninn að hluta. Hins
vegar höfum við úr ansi fjölbreyttum
hráefnum að velja sem mætti nota,
eins og til dæmis erfðabreytt soja.
En við getum að sjálfsögðu boðið
upp á óerfðabreytt soja líka,“ segir
Sævar Örn.
Lífland framleiðir það sem
markaðurinn kallar á
Á fundi nefndar, sem skipuð var á
Búnaðarþingi til þess að fjalla um
erfðabreytt hráefni í fóðurvörum,
lýstum við hjá Líflandi því viðhorfi,
sem er í raun rauður þráður í okkar
sjónarmiðum, að við munum fram-
leiða það sem markaðurinn kallar
á og erum tilbúnir að bregðast við
ákalli um óerfðabreytt fóður – þegar
og ef það kemur. Við höfum hins
vegar ekki orðið varir við mikinn
áhuga á slíkum vörum af hálfu við-
skiptavina okkar,“ segir Jóhannes
Baldvin Jónsson.
Lífland býður upp á tvær kjarn-
fóðurblöndur fyrir sauðfé, Ærblöndu
og Ærblöndu Líf, og eru þær báðar
með erfðabreytt innihaldsefni.
Lífland býður hins vegar upp á
tvær tegundir af óerfðabreyttu kjarn-
fóðri fyrir kýr, auk þess að framleiða
óerfðabreytt eldisfóður fyrir kjúkling
– og hefur gert í nokkur ár. Að sögn
Jóhannesar er eftirspurn eftir þessum
vörum sáralítil í dag.
„Varðandi áhrif óerfðabreytts
sojamjöls á verð fóðurs þá er það
þannig að ef sojamjöl er í óerfða-
breyttum fóðuruppskriftum, þá er
óhjákvæmilegt að verð fóðursins
verði hærra. Ef mikið repjumjöl
er í uppskriftum, þá er auðveldara
að halda verði niðri, því stærstur
partur af repjumjöli í Evrópu er
óerfðabreyttur. Helsta hindrunin
þarna snýr að sojamjölinu. Aðeins
tæplega 10 prósent af framleiddum
sojabaunum í heiminum í dag eru
óerfðabreyttar og í þær er talsverð
ásókn. Verðið á óerfðabreyttu soja-
mjöli er fyrir vikið allnokkru hærra
en á því erfðabreytta. Munurinn er
aðeins breytilegur eftir framboði, en
almennt má segja að verðmunurinn
liggi á milli 20 og 40 prósent, sem
óerfðabreytta sojamjölið er dýrara
en það erfðabreytta. Lífland leggur á
það áherslu að eiga alltaf til óerfða-
breytt sojamjöl þannig að hægt sé
að framleiða óerfðabreytt fóður með
engum eða litlum fyrirvara. Í ein-
hverjum mæli má skipta sojamjöli
út fyrir repjumjöl sem próteingjafa,
en það er flutt inn frá Evrópu og
er í öllum tilfellum óerfðabreytt. Í
fóðri fyrir jórturdýr má auka hlut
repjumjöls á kostnað sojamjöls að
talsverðu leyti, en það er erfiðara
í fóðri fyrir til dæmis alifugla og
óerfðabreytt fóður myndi alltaf
hækka um einhver prósent í tilfell-
um þeirrar búgreinar.
Hvað hráefnin varðar þá er soja-
mjöl eina erfðabreytta hráefnið sem
notað er í fóðurframleiðslu Líflands.
Önnur algeng hráefni hjá okkur
eru fyrir löngu síðan komin með
þá kröfu af hálfu Líflands að vera
óerfðabreytt. Á það til dæmis við
um maís, hveiti, bygg, sykurrófur
og sojaolíu – svo einhver dæmi séu
tekin. Öll þessu hráefni eru eingöngu
keypt óerfðabreytt til Líflands.
Þess má geta að Lífland flytur inn
nokkuð af lífrænt vottuðu kúafóðri
auk þess að flytja inn lífrænt vottað
varpfóður og í því eru engin erfða-
breytt hráefni. Annað kjarnfóður er
framleitt í fóðurverksmiðju Líflands
hér á landi, en hráefnin eru meira
og minna innflutt,“ segir Jóhannes.
SS með úrval kjarnfóðursblandna
sem eru óerfðabreyttar
Sláturfélag Suðurlands er eini fóður-
salinn sem er eingöngu með óerfða-
breyttar kjarnfóðurblöndur í boði fyrir
mjólkurkýr, nautgripaeldi og sauðfjár-
blöndur. Elías Hartmann Hreinsson,
deildarstjóri búvörudeildar, segir að
frá byrjun árs 2013 hafi allt kúafóður
verið óerfðabreytt og árið 2014 hafi
sala á óerfðabreyttu kjarnfóðri fyrir
sauðfé hafist.
„Umhverfisstefna Sláturfélags
Suðurlands felur meðal annars í sér að
bjóða bændum óerfðabreytt fóður og
umhverfisvottaða áburðinn frá Yara.
Frá ársbyrjun 2013 hóf búvöru-
deild SS fyrstir allra að bjóða bænd-
um óerfðabreytt fóður á sambærilegu
verði og er á hefðbundnum blöndum
með erfðabreyttum hráefnum sem er
hér á markaði.
Í kúafóðrinu erum við með tvær
tegundir, SS 16 og SS 20. Einnig erum
við með á boðstólum óerfðabreytt
nautaeldisfóður. Okkar viðskipta-
aðilar eru bændur í mjólkur- og
nautakjötframleiðslu á Suður- og
Vesturlandi.
Haustið 2014 létum við hefja
framleiðslu á óerfðabreyttu kjarn-
fóðri fyrir sauðfé og höfum fengið
mikil og jákvæð viðbrögð sauðfjár-
bænda um allt land.
Varðandi innkaupsverð á óerfða-
breyttu fóðri þá er það umtalsvert
dýrara í innkaupum heldur en ef
blöndurnar innihéldu erfðabreytt
hráefni,“ segir Elías. /smh
fyrirtækjafánar hátíðarfánar
þjóðfána borðfána bannerar
BÚKOLLA ER
HÆTTULEGRI EN
ÞÚ HELDUR
Mörg slys í landbúnaði tengjast
meðhöndlun með stórgripi.
Það er nauðsynlegt að þekkja
viðbrögð skepna við ólíkar aðstæður
og taka tilllit til þeirra. Gætum varúðar
og förum rétt að dýrunum.
ER ÞITT BÚ
ÖRUGGUR
OG GÓÐUR
VINNUSTAÐUR?
PO
RT
h
ön
nu
n
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
Flestir fóðursalar bjóða upp á
óerfðabreyttar fóðurblöndur
– Þrír af þeim fjórum sem þjónusta sauðfjárbændur eru eingöngu með óerfðabreytt fóður
Sojabaunir. Óerfðabreytt sojamjöl er dýrara en það erfðabreytta. Wikimedia / H. Zell