Bændablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 52

Bændablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Nú er kynbótasýningum lokið á Íslandi árið 2016. Þessa árs verð- ur minnst meðal annars fyrir öfl- uga þátttöku í kynbótasýningum, marga nýja stóðhesta sem komu fram á sjónarsviðið með afkvæmi til dóms og vel heppnað Landsmót að Hólum í Hjaltadal. Alls voru kveðnir upp 1619 dómar á árinu og tæplega 1200 hross mættu til dóms. Þetta er því með öfl- ugri árum hvað mætingu til dóms varðar. Haldnar voru 16 kynbóta- sýningar á árinu, að Landsmóti með- töldu, sú minnsta var á Iðavöllum á Fljótsdalshéraði með 16 hrossum og sú stærsta var vorsýning á Hólum með 175 hrossum. Sýningar í Spretti í Kópavogi og á Gaddstaðaflötum spönnuðu tvær vikur, í Spretti voru sýnd alls 265 hross og 222 hross á Gaddstaðaflötum. Meðaltöl og dreifing einkunna má sjá í meðfylgjandi töflum fyrir eiginleika sköpulags og hæfileika. Meðaltöl allra eiginleika í ár eru á afar svipuðu róli og þau voru í fyrra, þó má merkja hækkun í eiginleikun- um: háls, herðar og bógar, bak og lend, skeið og hægt tölt en lækkun í eiginleikunum prúðleiki og fet. Dreifing einkunna er nánast sú sama í ár og þau fyrri en þó er hún held- ur meiri í nánast öllum eiginleikum samanborið við árið í fyrra. Dreifingu aðaleinkunnar má sjá á myndinni hér að neðan en um 54% sýndra hrossa fengu 8.00 eða hærra í aðaleinkunn en þetta hlutfall hefur aldrei verið hærra. Skýrist þetta væntanlega af sífellt stærri hópi góðra hrossa sem koma til dóms vegna framfara í rækt- un en einnig vegna aukins forvals á hrossum til dóms. 200 knapar og 19 dómarar Tvö hundruð knapar sýndu hross á árinu, þar af voru 78 knapar sem sýndu 5 eða fleiri sýningar og 43 sem sýndu 10 sýningar eða fleiri. Sífellt fleiri knapar eru að koma öflugir til leiks og er það afar verð- mæt þróun. Þá komu 19 dómarar að dómum á Íslandi í ár en þeir dæmdu frá 50 hrossum upp í 677 hross en meðaltalið var um 250 hross. Merkt var við eistnagalla hjá 13 stóðhestum á árinu. Í lang flestum tilvikum var um að ræða að heildar- breidd eista var undir 8.0 cm sem er lágmarksviðmið. Einnig var um að ræða að bæði eistun snéru ekki rétt eða að meira en 50% munur væri á rúmmáli eistanna. Ef meðaltal og breytileiki er skoðaður kemur í ljós að meðalbreidd á báðum eistum (TSW) er 10 cm og eitt staðalfrávik er 1.0 cm. Stefnan er að setja leið- beiningar inn í WorldFeng við hesta sem eru með eistnagalla og einnig spatt en þessir hestar eru að sjálf- sögðu ekki æskilegir til ræktunar. Landsmót Í ár var tekin upp ný aðferð við val á kynbótahrossum inn á Landsmót; horfið frá einkunnalágmörkum sem hafa ákvarðað þátttökurétt á mótinu en þess í stað var ákveðin fjöldi efstu hrossa í hverjum flokki valinn inn á mótið. Alls var stefnt að 165 hrossum. Þótti þessi nýbreytni takast vel í heildina. Mun auðveldara reyndist að skipuleggja mótið og átti sinn þátt í því hve vel allar tímasetningar í dagskrá stóðust. Einnig fékk hvert og eitt kynbótahross meiri athygli á mótinu og hægt að hafa alla nánast alla hápunkta í dagskrá sem snéru að kynbótahrossunum á ákjósanlegum tímum. Þetta fyrirkomulag er vonandi komið til með að vera þótt alltaf megi endurskoða ákveðna þætti, t.d. fjölda hrossa í hverjum flokki. Lágmarkseinkunnir sem þurfti til að komast inn á mótið, sérstaklega á meðal yngstu og elstu stóðhestana, voru afar háar. Einnig þurfum við áfram að velta fyrir okkur leiðum til að hygla okkar bestu klárhrossum með tölti. Í ár var bætt 10 stigum við aðaleinkunn þeirra til að auðvelda þeim þátttökurétt á mótinu en við viljum klárlega vekja athygli á þess- um hrossum á Landsmótum enda verðmætir ræktunargripir. Í heild voru í ár 23% sýndra hrossa klárhross með tölti (einkunn fyrir skeið = 5,0) og á landsmóti var þetta hlutfall 18%. Þegar tíðni endur- sýninga á hrossum innan vorsins 2016 var skoðuð kom í ljós að 13% þeirra var sýnt oftar en einu sinni, þetta er nákvæmlega sama hlutfall og á landsmótsárinu 2014 en þetta hlutfall var 9% innan vorsins 2015. Þegar skoðað var hversu oft hross á landsmóti 2016 höfðu verið sýnd um vorið kom í ljós að þau höfðu verið sýnd 1.2 sinnum að meðaltali en þetta er sama meðaltal og var á þeim hrossum sem voru sýnd á landsmóti 2014. Þannig má sjá að hið nýja fyrirkomulag við val á hrossum inn á Landsmót hafði ekki nein áhrif á tíðni endursýninga. Þá var eitt sýningaratriði á mótinu sem hægt er að þróa áfram en það var úrvalssýning á kynbótahrossum. Þangað máttu koma hross með ein- hverja afburðaeiginleika og höfðu hlotið 9.5-10 í einkunn fyrir tölt, brokk, skeið, stökk eða fegurð í reið á vorsýningum eða á Landsmótinu, óháð þátttökurétti í einstaklingssýn- ingum á mótinu. Það náðist að hafa þetta sýningaratriði á afar góðum tíma í dagskránni og hvert og eitt hross hlaut góða athygli. Þetta atriði getum við þróað skemmtilega áfram, sýnt fram á fjölhæfni hestsins og skapað frábært tækifæri til að vekja athygli á mismunandi hestgerðum. Efstu kynbótahross á árinu Mörg afar góð hross voru sýnd á árinu og er fjöldi þeirra að aukast ár frá ári. Þetta kemur í sjálfu sér ekki á óvart, enda er hryssustofn íslenskra ræktenda sífellt að magnast og eru um 1.400 fyrstu verðlauna hryssur í ræktun þessi misserin. Ef litið er yfir þá stóðhesta sem sýndir voru í ár kemur í ljós hversu margar ólíkar, frambærilegar hest- gerðir standa ræktendum til boða og er það afar jákvætt merki. Í ár voru sýndir 100 fjögurra vetra hestar og 99 hryssur. Margir athyglisverðir fjögurra vetra hestar voru sýndir á árinu sem áhugavert verður að fylgjast með áfram. Efsti fjögurra vetra stóð- hesturinn á Íslandi í ár var Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk. Þetta er létt- viljugur og skrefmikill rýmishestur, undan Fáfni frá Hvolsvelli og Sveiflu frá Lambanesi. Efsta fjögurra vetra hryssan var Stefna frá Torfunesi, undan Vita frá Kagaðarhóli og Bylgju frá Torfunesi, Baldursdóttur frá Bakka. Stefna er afar vel gerð hryssa að mörgu leyti með verðmæta hálsgerð, afar hátt settan háls, rétt lagaðan og aðskilinn frá bógum. Þá er hryssan náttúrubarn á skeiði, fádæma jafnvægisgóð og sniðföst. Í fimm vetra flokki voru sýndir 118 hestar og 202 hryssur. Draupnir frá Stuðlum var hæst dæmdi fimm vetra folinn í ár og hafa íslenskir hrossaræktendur nú eignast að nýju hátt dæmdan og efnilega kynbóta- hest, leirljósan að lit. Draupnir er undan Kiljan frá Steinnesi og góð- hestamóðurinni Þernu frá Arnarhóli. Þetta er afar framfallegur og fóta- hár hestur, með hátt frambak, sterka yfirlínu og öflugar gangtegundir. Hann á eflaust eftir að eflast enn með auknum vöðvastyrk. Sá hestur sem stóð efstur í fimm vetra flokki á Landsmóti var aftur á móti Forkur frá Breiðabólsstað undan Fláka frá Blesastöðum og Orku frá Tungufelli, Kolfinnsdóttur. Forkur er glæsileg- ur hestur í byggingu, með mikinn léttleika í hreyfingum og er sérstak- ur útgeislunarhestur, enda með 9.5 fyrir fegurð í reið og vilja og geðslag. Þá varð efsta hryssan í þessum flokki Elja frá Sauðholti 2, undan Brimni frá Ketilsstöðum og Góu frá Leirulæk. Elja er jafnvíg alhliða hryssa, skeiðið best. Efsta hryssan í þessum flokki á Landsmóti varð aftur á móti Viðja frá Hvolsvelli, undan Frakk frá Langholti og Vordísi frá Hvolsvelli. Viðja er mjúkvaxinn og jafnbyggð hryssa, á afar auðvelt með að ganga í réttri líkamsbeitingu, með fallega hvelfingu í hálsi og er í raun hestagull. Í sex vetra flokki voru 83 hestar og 217 hryssur. Organisti frá Horni var hæst dæmdi hesturinn í þess- um flokki í ár og var einnig efstur á Landsmóti, undan Ágústínusi frá Melaleiti og Flautu Spunadóttur frá Horni. Organisti er afar vel gerður hestur; með hátt settan og mjúkan háls og sterka yfirlínu í baki, enda á hann auðvelt með burð og heldur vel á sér á öllum gangtegundum. Þetta er mikill fas- og viljahestur með 9.0 fyrir allar gangtegundir, nema fetið sem er síst. Efsta hryssan í þessum flokki og efst á Landsmóti var Jörð frá Kolturey. Þetta er afar fríð og vel gerð hryssa, með mikla skrokkmýkt, undan Óðni frá Eystra-Fróðholti og Flugu frá Sauðárkróki. Óðinn er byrjaður að skila afkvæmum til dóms og átti tvær dætur á Landsmóti, hann er undan Sæ frá Bakkakoti en hann er að verða einn af helstu ættfeðrum stofnsins og á líklega eftir að auka erfðahlutdeild sína á næstu árum, enda stóðhestafaðir. Í flokki hrossa sjö vetra og eldri voru sýndir 84 hestar og 294 hryssur. Efsti hesturinn í ár varð Hrafn frá Efri-Rauðalæk á sýningu í Spretti í vor. Hrafn er afar fríður, framfallegur og jafnvígur, mjúkur, alhliða hestur, undan Markúsi frá Langholtsparti og Hind frá Vatnsleysu. Efstur á Landsmóti í þessum flokki var aftur á móti Ölnir frá Akranesi. Ölnir er einnig útaf Markúsi frá Langholtsparti en móðirin, Örk frá Akranesi, er undan Markúsi og faðir- inn er Glotti frá Sveinatungu. Ölnir er jafnvígur á allar gangtegundir og einkennist af lipurð og léttleika og hefur eflst mikið á skeiði í seinni tíð. Efsta hryssan í þessum flokki í ár og einnig á Landsmóti varð Þota frá Prestsbæ, undan Orra frá Þúfu og Þoku frá Hólum. Hún lék því eftir árangur alsystur sinnar, Þóru frá Prestsbæ, sem varð efst í þessum flokki á Landsmóti 2011 á Vindheimamelum og einnig móður sinnar sem stóð efst á Landsmóti 2002. Þota er afar falleg og fínleg hryssa í byggingu og þá sópar að henni í reið með mikla skreflengd á öllum gangi og virkjamikla fram- göngu. Afkvæmahestar á Landsmóti Alls voru sýndir sjö hestar á Landsmóti til afkvæmaverðlauna, tveir til heiðursverðlauna og 5 til fyrstu verðlauna. Tókust þessar sýningar afar vel. Arður frá Brautarholti stóð efstur til heiðursverðlauna og hlaut því Sleipnisbikarinn, enda afar farsæll kynbótagripur, undan Orra frá Þúfu og Öskju frá Miðsitju. Þá hlaut Gaumur frá Auðsholtshjáleigu einnig heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, með hóp margra afrekshrossa með sér en hann er undan Orra frá Þúfu og Hildi frá Garðabæ. Þá hlaut Spuni frá Vesturkoti fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og efsta sætið. Hann er að gefa bráðger og mjúkgeng ganghross og er nú búið að sýna 24 afkvæmi undan honum, flest fjögurra vetra. Annar í röð til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi stóð Álffinnur frá Syðri- Gegnishólum með 123 stig og 23 dæmd afkvæmi. Álffinnur náði lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi í fyrra, þá einungis átta vetra gamall sem er einsdæmi og frábær árangur. Í þriðja sæti varð Grunur frá Oddhóli með 119 stig og 17 dæmd afkvæmi. Raðast Grunur ofar næsta hesti á aukastöf- Þorvaldur Kristjánsson ábyrgðarmaður í hrossarækt thk@rml.is Sýningararárið 2016: Margir nýir stóðhestar og vel heppnað Landsmót Aðaleinkunn HÖFUÐ HÁLS/HERÐAR/BOGAR BAK/LEND SAMRÆMI FÓTAGERÐ RÉTTLEIKI HÓFAR PRÚÐLEIKI SKÖPULAG Meðaltal 7,85 8,30 8,11 8,22 7,96 7,64 8,15 7,58 8,09 TÖLT BROKK SKEIÐ STÖKK VILJI/GEÐSLAG FEGURÐ I REIÐ FET HÆGT TÖLT HÆGT STÖKK HÆFILEIKAR AÐALEINKUNN Meðaltal 8,26 7,96 7,12 8,06 8,39 8,20 7,61 8,00 7,70 7,98 8,03 Sköpulag: Hæfileikar: Mynd / Kolbrún Grétarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.