Bændablaðið - 22.09.2016, Side 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Nú er kynbótasýningum lokið á
Íslandi árið 2016. Þessa árs verð-
ur minnst meðal annars fyrir öfl-
uga þátttöku í kynbótasýningum,
marga nýja stóðhesta sem komu
fram á sjónarsviðið með afkvæmi
til dóms og vel heppnað Landsmót
að Hólum í Hjaltadal.
Alls voru kveðnir upp 1619
dómar á árinu og tæplega 1200 hross
mættu til dóms. Þetta er því með öfl-
ugri árum hvað mætingu til dóms
varðar. Haldnar voru 16 kynbóta-
sýningar á árinu, að Landsmóti með-
töldu, sú minnsta var á Iðavöllum á
Fljótsdalshéraði með 16 hrossum og
sú stærsta var vorsýning á Hólum
með 175 hrossum. Sýningar í Spretti
í Kópavogi og á Gaddstaðaflötum
spönnuðu tvær vikur, í Spretti voru
sýnd alls 265 hross og 222 hross á
Gaddstaðaflötum.
Meðaltöl og dreifing einkunna
má sjá í meðfylgjandi töflum fyrir
eiginleika sköpulags og hæfileika.
Meðaltöl allra eiginleika í ár eru á
afar svipuðu róli og þau voru í fyrra,
þó má merkja hækkun í eiginleikun-
um: háls, herðar og bógar, bak og
lend, skeið og hægt tölt en lækkun
í eiginleikunum prúðleiki og fet.
Dreifing einkunna er nánast sú sama
í ár og þau fyrri en þó er hún held-
ur meiri í nánast öllum eiginleikum
samanborið við árið í fyrra. Dreifingu
aðaleinkunnar má sjá á myndinni hér
að neðan en um 54% sýndra hrossa
fengu 8.00 eða hærra í aðaleinkunn
en þetta hlutfall hefur aldrei verið
hærra. Skýrist þetta væntanlega af
sífellt stærri hópi góðra hrossa sem
koma til dóms vegna framfara í rækt-
un en einnig vegna aukins forvals á
hrossum til dóms.
200 knapar og 19 dómarar
Tvö hundruð knapar sýndu hross
á árinu, þar af voru 78 knapar sem
sýndu 5 eða fleiri sýningar og 43 sem
sýndu 10 sýningar eða fleiri.
Sífellt fleiri knapar eru að koma
öflugir til leiks og er það afar verð-
mæt þróun. Þá komu 19 dómarar að
dómum á Íslandi í ár en þeir dæmdu
frá 50 hrossum upp í 677 hross en
meðaltalið var um 250 hross.
Merkt var við eistnagalla hjá 13
stóðhestum á árinu. Í lang flestum
tilvikum var um að ræða að heildar-
breidd eista var undir 8.0 cm sem er
lágmarksviðmið. Einnig var um að
ræða að bæði eistun snéru ekki rétt
eða að meira en 50% munur væri á
rúmmáli eistanna. Ef meðaltal og
breytileiki er skoðaður kemur í ljós
að meðalbreidd á báðum eistum
(TSW) er 10 cm og eitt staðalfrávik
er 1.0 cm. Stefnan er að setja leið-
beiningar inn í WorldFeng við hesta
sem eru með eistnagalla og einnig
spatt en þessir hestar eru að sjálf-
sögðu ekki æskilegir til ræktunar.
Landsmót
Í ár var tekin upp ný aðferð við val
á kynbótahrossum inn á Landsmót;
horfið frá einkunnalágmörkum sem
hafa ákvarðað þátttökurétt á mótinu
en þess í stað var ákveðin fjöldi efstu
hrossa í hverjum flokki valinn inn
á mótið.
Alls var stefnt að 165 hrossum.
Þótti þessi nýbreytni takast vel í
heildina. Mun auðveldara reyndist
að skipuleggja mótið og átti sinn þátt
í því hve vel allar tímasetningar í
dagskrá stóðust. Einnig fékk hvert
og eitt kynbótahross meiri athygli á
mótinu og hægt að hafa alla nánast
alla hápunkta í dagskrá sem snéru að
kynbótahrossunum á ákjósanlegum
tímum.
Þetta fyrirkomulag er vonandi
komið til með að vera þótt alltaf
megi endurskoða ákveðna þætti,
t.d. fjölda hrossa í hverjum flokki.
Lágmarkseinkunnir sem þurfti til
að komast inn á mótið, sérstaklega á
meðal yngstu og elstu stóðhestana,
voru afar háar. Einnig þurfum við
áfram að velta fyrir okkur leiðum
til að hygla okkar bestu klárhrossum
með tölti. Í ár var bætt 10 stigum við
aðaleinkunn þeirra til að auðvelda
þeim þátttökurétt á mótinu en við
viljum klárlega vekja athygli á þess-
um hrossum á Landsmótum enda
verðmætir ræktunargripir.
Í heild voru í ár 23% sýndra
hrossa klárhross með tölti (einkunn
fyrir skeið = 5,0) og á landsmóti var
þetta hlutfall 18%. Þegar tíðni endur-
sýninga á hrossum innan vorsins
2016 var skoðuð kom í ljós að 13%
þeirra var sýnt oftar en einu sinni,
þetta er nákvæmlega sama hlutfall
og á landsmótsárinu 2014 en þetta
hlutfall var 9% innan vorsins 2015.
Þegar skoðað var hversu oft hross
á landsmóti 2016 höfðu verið sýnd
um vorið kom í ljós að þau höfðu
verið sýnd 1.2 sinnum að meðaltali
en þetta er sama meðaltal og var
á þeim hrossum sem voru sýnd á
landsmóti 2014. Þannig má sjá að hið
nýja fyrirkomulag við val á hrossum
inn á Landsmót hafði ekki nein áhrif
á tíðni endursýninga.
Þá var eitt sýningaratriði á mótinu
sem hægt er að þróa áfram en það
var úrvalssýning á kynbótahrossum.
Þangað máttu koma hross með ein-
hverja afburðaeiginleika og höfðu
hlotið 9.5-10 í einkunn fyrir tölt,
brokk, skeið, stökk eða fegurð í reið
á vorsýningum eða á Landsmótinu,
óháð þátttökurétti í einstaklingssýn-
ingum á mótinu. Það náðist að hafa
þetta sýningaratriði á afar góðum
tíma í dagskránni og hvert og eitt
hross hlaut góða athygli. Þetta atriði
getum við þróað skemmtilega áfram,
sýnt fram á fjölhæfni hestsins og
skapað frábært tækifæri til að vekja
athygli á mismunandi hestgerðum.
Efstu kynbótahross á árinu
Mörg afar góð hross voru sýnd á
árinu og er fjöldi þeirra að aukast ár
frá ári. Þetta kemur í sjálfu sér ekki
á óvart, enda er hryssustofn íslenskra
ræktenda sífellt að magnast og eru
um 1.400 fyrstu verðlauna hryssur í
ræktun þessi misserin.
Ef litið er yfir þá stóðhesta sem
sýndir voru í ár kemur í ljós hversu
margar ólíkar, frambærilegar hest-
gerðir standa ræktendum til boða og
er það afar jákvætt merki. Í ár voru
sýndir 100 fjögurra vetra hestar og
99 hryssur.
Margir athyglisverðir fjögurra
vetra hestar voru sýndir á árinu sem
áhugavert verður að fylgjast með
áfram. Efsti fjögurra vetra stóð-
hesturinn á Íslandi í ár var Sirkus frá
Garðshorni á Þelamörk. Þetta er létt-
viljugur og skrefmikill rýmishestur,
undan Fáfni frá Hvolsvelli og Sveiflu
frá Lambanesi. Efsta fjögurra vetra
hryssan var Stefna frá Torfunesi,
undan Vita frá Kagaðarhóli og
Bylgju frá Torfunesi, Baldursdóttur
frá Bakka. Stefna er afar vel gerð
hryssa að mörgu leyti með verðmæta
hálsgerð, afar hátt settan háls, rétt
lagaðan og aðskilinn frá bógum.
Þá er hryssan náttúrubarn á skeiði,
fádæma jafnvægisgóð og sniðföst.
Í fimm vetra flokki voru sýndir
118 hestar og 202 hryssur. Draupnir
frá Stuðlum var hæst dæmdi fimm
vetra folinn í ár og hafa íslenskir
hrossaræktendur nú eignast að nýju
hátt dæmdan og efnilega kynbóta-
hest, leirljósan að lit. Draupnir er
undan Kiljan frá Steinnesi og góð-
hestamóðurinni Þernu frá Arnarhóli.
Þetta er afar framfallegur og fóta-
hár hestur, með hátt frambak, sterka
yfirlínu og öflugar gangtegundir.
Hann á eflaust eftir að eflast enn
með auknum vöðvastyrk. Sá hestur
sem stóð efstur í fimm vetra flokki
á Landsmóti var aftur á móti Forkur
frá Breiðabólsstað undan Fláka frá
Blesastöðum og Orku frá Tungufelli,
Kolfinnsdóttur. Forkur er glæsileg-
ur hestur í byggingu, með mikinn
léttleika í hreyfingum og er sérstak-
ur útgeislunarhestur, enda með 9.5
fyrir fegurð í reið og vilja og geðslag.
Þá varð efsta hryssan í þessum
flokki Elja frá Sauðholti 2, undan
Brimni frá Ketilsstöðum og Góu
frá Leirulæk. Elja er jafnvíg alhliða
hryssa, skeiðið best. Efsta hryssan
í þessum flokki á Landsmóti varð
aftur á móti Viðja frá Hvolsvelli,
undan Frakk frá Langholti og Vordísi
frá Hvolsvelli. Viðja er mjúkvaxinn
og jafnbyggð hryssa, á afar auðvelt
með að ganga í réttri líkamsbeitingu,
með fallega hvelfingu í hálsi og er í
raun hestagull.
Í sex vetra flokki voru 83 hestar
og 217 hryssur. Organisti frá Horni
var hæst dæmdi hesturinn í þess-
um flokki í ár og var einnig efstur
á Landsmóti, undan Ágústínusi frá
Melaleiti og Flautu Spunadóttur frá
Horni. Organisti er afar vel gerður
hestur; með hátt settan og mjúkan
háls og sterka yfirlínu í baki, enda á
hann auðvelt með burð og heldur vel
á sér á öllum gangtegundum. Þetta
er mikill fas- og viljahestur með 9.0
fyrir allar gangtegundir, nema fetið
sem er síst. Efsta hryssan í þessum
flokki og efst á Landsmóti var Jörð
frá Kolturey. Þetta er afar fríð og vel
gerð hryssa, með mikla skrokkmýkt,
undan Óðni frá Eystra-Fróðholti og
Flugu frá Sauðárkróki. Óðinn er
byrjaður að skila afkvæmum til dóms
og átti tvær dætur á Landsmóti, hann
er undan Sæ frá Bakkakoti en hann
er að verða einn af helstu ættfeðrum
stofnsins og á líklega eftir að auka
erfðahlutdeild sína á næstu árum,
enda stóðhestafaðir.
Í flokki hrossa sjö vetra og eldri
voru sýndir 84 hestar og 294 hryssur.
Efsti hesturinn í ár varð Hrafn frá
Efri-Rauðalæk á sýningu í Spretti í
vor. Hrafn er afar fríður, framfallegur
og jafnvígur, mjúkur, alhliða hestur,
undan Markúsi frá Langholtsparti
og Hind frá Vatnsleysu. Efstur á
Landsmóti í þessum flokki var
aftur á móti Ölnir frá Akranesi.
Ölnir er einnig útaf Markúsi frá
Langholtsparti en móðirin, Örk frá
Akranesi, er undan Markúsi og faðir-
inn er Glotti frá Sveinatungu. Ölnir
er jafnvígur á allar gangtegundir og
einkennist af lipurð og léttleika og
hefur eflst mikið á skeiði í seinni
tíð. Efsta hryssan í þessum flokki
í ár og einnig á Landsmóti varð
Þota frá Prestsbæ, undan Orra frá
Þúfu og Þoku frá Hólum. Hún lék
því eftir árangur alsystur sinnar,
Þóru frá Prestsbæ, sem varð efst í
þessum flokki á Landsmóti 2011 á
Vindheimamelum og einnig móður
sinnar sem stóð efst á Landsmóti
2002. Þota er afar falleg og fínleg
hryssa í byggingu og þá sópar að
henni í reið með mikla skreflengd
á öllum gangi og virkjamikla fram-
göngu.
Afkvæmahestar á Landsmóti
Alls voru sýndir sjö hestar á
Landsmóti til afkvæmaverðlauna,
tveir til heiðursverðlauna og 5 til
fyrstu verðlauna. Tókust þessar
sýningar afar vel.
Arður frá Brautarholti stóð efstur
til heiðursverðlauna og hlaut því
Sleipnisbikarinn, enda afar farsæll
kynbótagripur, undan Orra frá Þúfu
og Öskju frá Miðsitju. Þá hlaut
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu einnig
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, með
hóp margra afrekshrossa með sér
en hann er undan Orra frá Þúfu og
Hildi frá Garðabæ. Þá hlaut Spuni
frá Vesturkoti fyrstu verðlaun fyrir
afkvæmi og efsta sætið. Hann er að
gefa bráðger og mjúkgeng ganghross
og er nú búið að sýna 24 afkvæmi
undan honum, flest fjögurra vetra.
Annar í röð til fyrstu verðlauna fyrir
afkvæmi stóð Álffinnur frá Syðri-
Gegnishólum með 123 stig og 23
dæmd afkvæmi. Álffinnur náði
lágmörkum til fyrstu verðlauna
fyrir afkvæmi í fyrra, þá einungis
átta vetra gamall sem er einsdæmi
og frábær árangur. Í þriðja sæti
varð Grunur frá Oddhóli með 119
stig og 17 dæmd afkvæmi. Raðast
Grunur ofar næsta hesti á aukastöf-
Þorvaldur Kristjánsson
ábyrgðarmaður í
hrossarækt
thk@rml.is
Sýningararárið 2016:
Margir nýir stóðhestar og vel heppnað Landsmót
Aðaleinkunn
HÖFUÐ HÁLS/HERÐAR/BOGAR BAK/LEND SAMRÆMI FÓTAGERÐ RÉTTLEIKI HÓFAR PRÚÐLEIKI SKÖPULAG
Meðaltal 7,85 8,30 8,11 8,22 7,96 7,64 8,15 7,58 8,09
TÖLT BROKK SKEIÐ STÖKK VILJI/GEÐSLAG FEGURÐ I REIÐ FET HÆGT TÖLT HÆGT STÖKK HÆFILEIKAR AÐALEINKUNN
Meðaltal 8,26 7,96 7,12 8,06 8,39 8,20 7,61 8,00 7,70 7,98 8,03
Sköpulag:
Hæfileikar:
Mynd / Kolbrún Grétarsdóttir