Bændablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. september 2016
Bandarísku hjónin Russ Sims Jr.
og kona hans, JoAnne Sims, komu
til Íslands í septemberbyrjun með
minningarskjöld í farteskinu. Eftir
tveggja vikna ferðalag um landið
komu þau á Langanes, þangað sem
ferðinni var heitið. Við fyrrum flug-
völlinn á Sauðanesi á Langanesi er
nefnilega flugvélarflak af banda-
rískri flugvél sem flugmannin-
um Russel Sims Jr., föður Russ,
mistókst að lenda.
Þann 25. júlí 1969 var birgða-
vél á vegum US Navy á leið frá
Keflavík til Þórshafnar. Vélin var
af gerðinni Douglas R4D-S og var
flugstjóri Russel W. Sims Jr., en hann
átti að baki langan feril í bandaríska
sjóhernum. Aðstoðarflugstjóri var
Daniel A. Blycker. Fjórir farþegar
voru um borð. Sauðanesflugvöllur
var 1.140 metrar á lengd og 40 metrar
á breidd. Flugvöllurinn var ekki með
neinn flugumferðarturn en flugstjórar
höfðu samband við flugvallarvörðinn
í gegnum talstöð. Þegar flugvélin
nálgast flugvöllinn hefur flugstjór-
inn samband við flugvallarvörðinn
og fær upplýsingar um veður, vind
og flugbraut.
Það var heiðskírt þennan dag og
2–5 metrar á sekúndu. Þegar hann
flaug yfir völlinn sá hann vindsokkinn
og sýndist hann sýna sömu vindátt og
hafði verið gefin upp í talstöðinni en
fannst hann blása töluvert meira. Á
þessum tímapunkti ákvað flugstjórinn
að fljúga rúma 24 kílómetra í norður
til að komast yfir heimskautsbaug,
bæði sér og farþegum til ánægju. Það
liðu því um 15–20 mínútur frá því að
hann fær upplýsingar um veður og þar
til hann lendir flugvélinni.
Þegar vélin lendir bendir ekk-
ert til þess að eitthvað muni gerast.
Flugstjórinn byrjar að bremsa og vitni
taka eftir því að nefið á vélinni rís upp
og niður og þegar bremsað er í þriðja
sinn tekur vélin að leita til hægri og
hann missir vald á stýrinu. Reikar
vélin enn meira til hægri næstu 360
metrana, fer út af flugbrautinni og
fer í gegnum háan stafla af rekavið.
Hélt vélin áfram um tíu metra þar til
springur á vinstra dekkinu og hún
stöðvast.
Enginn slasaðist og enginn eldur
braust út. Samkvæmt tjónaskýrslu
á flugvélinni og vegna fjarlægðar
flugvallarins frá Keflavík, þótti ekki
hentugt að reyna að gera við vélina.
Var hún því dregin í burtu og skilin
eftir sunnan megin við flugbrautina.
Einnig kemur fram í skýrslunni að
slysið sé að mestu flugstjóranum
Russel W. Sims Jr. að kenna og er
ástæðunum listað í skýrslunni.
Heiðraði minningu föður síns
Mynd / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
Mynd / Úr einkasafni
Mynd / Úr einkasafni
Mynd / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir