Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Sviðaveisla Sauðfjársetursins var haldin
í Sævangi síðasta vetrardag við mikinn
fögnuð viðstaddra. Þetta er í sjötta skipti
sem sviðaveisla er haldin og var húsfyllir á
skemmtuninni.
Gestir gæddu sér á nýjum, reyktum
og söltuðum sviðum, rjúkandi heitum
sviðalöppum og nýrri og reyktri sviðasultu. Í
eftirrétt var síðan Sherry-frómas, ávaxtagrautur
og hinn sívinsæli blóðgrautur sem er jafnan á
boðstólum. Reyktu og söltuðu sviðin koma
frá Húsavíkurbúinu við Steingrímsfjörð og
það eru Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías
Lýðsson sem verka þau.
Margir leggja hönd á plóg
Að venju sáu heimamenn um veislustjórn og
skemmtiatriði, Jón Jónsson, þjóðfræðingur á
Kirkjubóli, var veislustjóri og Skagfirðingurinn
og Strandamaðurinn Eiríkur Valdimarsson á
Hólmavík var ræðumaður kvöldsins. Kristín
Einarsdóttir og Gunnar Jóhannsson í Hveravík
sáu um tónlistaratriði og skemmtisögur.
Allt var það ljóm-
andi vel heppnað og
b r á ð s k e m m t i l e g t .
Margir leggja hönd á
plóginn við undirbúning
veislunnar. Öll sú
fyrirhöfn er unnin í
sjálfboðavinnu og
sama gildir um þá
sem troða upp. Fyrir
það eru forsvarsmenn
Sauðfjárseturs ins
þakklátir. /MÞÞ
Sviðaveisla Sauðfjársetursins haldin í Sævangi í Steingrímsfirði:
Ný, reykt og söltuð svið
og rjúkandi sviðalappir
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Gunnar Veltan fékk í síðasta vísnaþætti birta hugsmíð sína um Höskuld Einarsson frá Vatnshorni
í Skorradal. Nýverið rak á fjörur mínar ein
afbragðs vísa Höskuldar ort til Húnvetninga.
Í þessum þætti er alltaf rúm fyrir slíkar:
Þó ég leiti um stormastorð
stærstu hugrenninga,
finn ég bara engin orð
yfir Húnvetninga.
Þrátt fyrir ylinn sem ofangreind vísa færir,
þá eru andleg samskipti okkar Einars
Kolbeinssonar drjúgum mikil. Fyrr
hefur verið vikið að ósérhlífni Einars við
fæðuöflun bæði til lands og sjávar:
Lömbin heimti tröllstór tvö;
-á tuginn þriðja fallið,
þegar kindur sótti sjö
sjáðu til, í fjallið.
Ennþá er ég að finna féð;
er fráleitt þó ég spyrji,
hvort hafir þú nokkurn svartfugl séð
svamla á Eyjafirði?
Og litlu síðar sendir Einar vísu:
Veit ég enn af vin í stað
varða ævigötu;
hefurðu nokkuð aðgang að
afbragðs síld í fötu?
Nýverið sendi Einar stöðuskýrslu úr búri
sínu í Bólstaðarhlíð:
Síst í fleti ligg í leti
lengi getur batnað tíð,
hangiket í nýju neti
nú má éta senn í Hlíð.
Meðfram því að klóra saman efni í þennan
vísnaþátt þá hlýði ég á útvarpsmessu. Þá
verður mér fyrir að fletta í einni af þeim
ljóðabókum sem blessaður maðurinn hann
Björn Ingólfsson á Grenivík gaf mér.
Ljóðakverið, sem er eftir Pál Vatnsdal, og
hann gaf út sjálfur,var einungis ljósprentað
í 200 eintökum. Kverið kallaði Páll Glettur.
Það sýnist réttnefni, því vísurnar eru
kátlegar mjög. Fyrir verður bragur sem
Páll nefnir „Götumessa“ og hefur yfir
sér nokkuð annan brag en útvarpsmessan
tilvitnuð:
Þú stendur á strætis-horni
og stóryrðum þeytir í kring,
og vísar öllum og öllu
í eilífa fordæming.
Og hjarta þitt skelfist og hrærist
af hugsuninni um það,
að allt eigi eftir að lenda
í eilífum kvalastað.
Þú telur þinn trúmálavefur
sé toglaus og skínandi hreinn,
-þó uppistaðan sé eldur
og ívafið brennisteinn.
Þú hamast og hrópandi lemur
höfðinu steininn við,
-og segist feta í fótspor hans
sem frelsaði mannkynið.
En hver skyldi komast lengra
í að kenna‘ okkur sanna trú:
Kristur af hásæti kærleikans
-eða úr kvölum helvítis þú.
Miðlungi málvör var hún Gunna sem Páll
yrkir um vísu og nefnir „Ég sel ekki dýrara
en ég keypti“:
Þó dýrtíðin klónum kræki
og kreppan að sumum herði,
sögurnar sínar hún Gunna
selur með innkaupsverði.
Í vísnabók annarrar stúlku setti Páll þessa
fallegu vísu:
Settu stefnu sólu mót
sjáirðu hana ljóma.
Telfdu djarft og hirtu ei hót
um heimsins sleggjudóma.
190
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
Sviðaveisla Sauðfjársetursins var haldin í Sævangi á síðasta vetrardag við mikinn fögnuð viðstaddra. Myndir / Jón Jónsson
LÍF&STARF
Gestir gæddu sér á
nýjum, reyktum og
söltuðum sviðum,
rjúkandi heitum
sviðalöppum og
nýrri og reyktri
sviðasultu.