Bændablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
FRÉTTIR
Austfirðingar hafa eflaust
rekið upp stór augu þegar
þeir flettu síðasta Bændablaði.
Með frétt um tillögu að
sameiningu Breiðdalshrepps
og Fjarðabyggðar á bls. 12
birtist mynd af Djúpavogi í stað
Breiðdalsvíkur sem þar átti að
vera samkvæmt myndatexta.
Nærtækast væri auðvitað að
kenna um landsþekktum aulahætti
utansveitarmanna, en skýringin
er einfaldlega klaufaskapur
undirritaðs við innsetningu
myndar þegar verið var að senda
blaðið í prentun. Búið var að
setja inn réttu myndina eins og
hún er í vefútgáfu blaðsins, en á
skjáborðinu var líka mynd af þeim
fallega stað Djúpavogi, sem var í
fljótfærni sett inn á síðuna.
Mér er bæði ljúft og skylt að
biðja Austfirðinga, og þá sér í lagi
íbúa Breiðdalsvíkur, velvirðingar á
þessum klaufaskap, því fátt er jafn
pirrandi fyrir landsbyggðarmann
og rangar myndbirtingar af
fallegum stöðum á Íslandi.
Kær kveðja,
Hörður Kristjánsson,
ritstjóri Bændablaðsins
Breiðdalsvík i Breiðdalshreppi. Mynd / HKr.
Röng myndbirting Fjölskyldu og landbúnaðar-
sýningin „Hey bóndi 2017“ var
haldin á Hvolsvelli laugardaginn
4. nóvember.
Hátíðin sló heldur betur í
gegn því þar var mikið fjölmenni
saman komið og stemningin
með allra besta móti. Boðið var
upp á tækjasýningu, kynningu
á fyrirtækjum, barnadagskrá,
fyrirlestra og fleira og fleira. Það
var Fóðurblandan sem hafði veg og
vanda af deginum. Magnús Hlynur
Hreiðarsson var á staðnum og tók
meðfylgjandi ljósmyndir.
Eftirherman og orginallinn anna vart eftirspurn
Guðni Th. Jóhannesson. forseti Íslands, orginallinn Guðni Ágústsson, Jóhannes Kristjánsson eftirherma og Margrét
Japanir eru hrifnir af hráu hrossakjöti:
Verð fyrir hrossakjöt á
Japansmarkað hækkar
Kaupfélag Skagfirðinga og
Sláturhúsið á Hellu hafa hækkað
skilaverð fyrir hrossakjöt úr
105 krónum fyrir kílóið í 126
krónur fyrir hross sem flokkast á
Japansmarkað.
Sveinn Steinarsson, formaður
Félags hrossabænda, fagnar því
að hærra verð fáist fyrir hrossakjöt
og að það sé í gangi vöruþróun við
vinnslu á kjötinu. „Japanirnir geta
og eru tilbúnir til að taka við talsvert
meiru af hrossakjöti en þeir gera í
dag. Viðskiptin eru enn í þróun og
Kaupfélag Skagfirðinga hefur verið
þar í fararbroddi.“
Japanskir kjötskurðarmenn
„Hér voru japanskir kjötskurðarmenn
á ferð fyrir skömmu og þeir hafa
reyndar komið hér áður. Þannig
að það er verið að vinna í þessu og
ganga lengra í viðskiptunum.
Okkur er mjög umhugað um að
hrossaskrokkurinn verði nýttur sem
allra best og betur en gert hefur
verið fram til þessa. Japanirnir nýta
skrokkinn mun betur en við og kaupa
alla fitu, tungur, lifur og alla vöðva
af hrossum sem flokkast inn á þann
markað og við flytjum allt saman
út frosið.“
Betri nýting fyrir Japansmarkað
Sveinn segir að á sama tíma í fyrra
hafi skilaverð fyrir hrossakjöt verið
65 krónur fyrir kílóið og engin
úrvinnsla að ráði á kaupinu. „Á þeim
tíma voru aðeins notaðir vöðvar
eins og lundir og file sem fóru á
veitingahúsamarkaðinn. Í Japan er
aftur á móti mun meira af hrossinu
nýtt sem hingað til hefur verið hent
og nýting sláturhrossa því mun betri.
/VH
Japanir eru hrifnir af hrossakjöti og borða góða vöðva hráa.
Sveinn Steinarsson.
Hrossakjöt í kæli í Sláturhúsinu á
Hellu. Mynd / HKr.
Fjölmenni á „Hey bóndi 2017“ á Hvolsvelli
Finnbogi Magnússon hjá Jötunn Vél-
um var ánægður með daginn og gaf
sér góðan tíma til að tala við gesti
og gangandi.
Adrian Packington, sérfræðingur í
fóðrun nautgripa hjá DSM, var einn
af þeim sem hélt áhugavert erindi á
sýningunni.
Gestur Einarsson, útvarpsmaður frá
Hæli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi,
sendi beint út frá deginum á Útvarpi
Suðurlands.
Félagarnir Jóhannes Kristjáns-
son og Guðni Ágústsson, eða
eftirherman og orginallinn,
hafa verið á þönum um landið
undanfarna mánuði og verið
glatt á hjalla hvar sem þeir hafa
komið. Þeir eru með óskir um að
koma aftur í sum pláss.
Guðni segir að á dögunum
hafi þeir verið í Valaskjálf á
Egilsstöðum. Þar hafi verið fullur
salur, eða 200 manns, og þannig
sé þetta gríðarleg aðsókn.
„Við erum í mikilli eftirspurn
og fólk vill fá okkur í héruðin, enda
á Jóhannes 40 ára leiklistarafmæli.
Hann hefur skemmt með
eftirhermum og gamansögum í
hverju einasta félagsheimili. Nú
förum við saman eins og bræður og
segjum sögur og Jóhannes hermir
eftir þjóðþekktum mönnum. Hann
er magnaður og auðvitað einstakur
skemmtikraftur að þessu leyti,
hann nánast holdgervist, verður
eins og karakterinn sem hann hefur
tekið að sér, þetta kemur vel fram
á sýningunum hjá okkur,“ segir
Guðni.
„Við erum búnir að vera í
Bæjarbíói í Hafnarfirði þar sem
forseti vor, Guðni Th. Jóhannesson,
kom með móður sinni og skemmti
sér konunglega. Svo erum við
komnir í Iðnó, en höldum líka
áfram að sinna landsbyggðinni.
Fram undan er Græni hatturinn á
Akureyri í annað sinn, Miðgarður í
Skagafirði, Logaland í Borgar firði,
Félagsgarður í Kjós og Hótel Sel-
foss 1. desember.
Guðna finnst Alþingi Íslendinga
ekki vera á eins góðum stað og
áður fyrr hvað bæði virðingu og
jafnframt skemmtilegheit varðar.
Gömlu stjórnmálamennirnir voru
frægir fyrir hnyttin tilsvör og
framboðsfundir loguðu af húmor
og glettni, það jaðraði við að sumir
væru þá með uppistand í sínum
alvarlegu ræðum og kannski er það
listin til að fá fólk til að sækja fundi
og messur. Jafnframt var alltaf
mikið af góðum hagyrðingum á
Alþingi sem séra Hjálmar Jónsson
virkjaði svo vel með frægum
kvæðamannakvöldum. /HKr.
Móðir forseta Íslands, Margrét Thorlacius, og Guðni Th. Jóhannesson forseti
skemmtu sér greinilega konunglega ásamt fjölda gesta á uppistandi þeirra
Guðna og Jóhannesar í Bæjarbíói fyrir skömmu.
Sýningin var haldin í Félagsheimil-
inu Hvoli, tækjasýning var á planinu
fyrir utan þar sem mátti sjá stór og
lítil tæki og allt þar á milli.