Bændablaðið - 16.11.2017, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi:
Bjórböðin, Gauksmýri og Ólöf í
Vogafjósi hlutu viðurkenningar
Uppskeruhátíð ferða þjón-
ustunnar á Norðurlandi fór fram
í Mývatnssveit nýverið og tókst í
alla staði ákaflega vel.
Mývetningar tóku vel á móti
sínum kollegum í ferðaþjónustu
og farið var í heimsóknir í ýmis
fyrirtæki á svæðinu, áður en boðið
var upp á kvöldmat og skemmtun í
Skjólbrekku.
Venju samkvæmt voru þrjár
viðurkenningar veittar, Sproti
ársins, Fyrirtæki ársins og
viðurkenning fyrir störf í þágu
ferðaþjónustunnar.
Bjórböðin Sproti ársins
Viðurkenningin Sproti ársins er
veitt ungu fyrirtæki sem hefur
skapað eftirtektarverða nýjung
í ferðaþjónustu á Norðurlandi.
Að þessu sinni kom hún í hlut
Bjórbaðanna á Árskógsströnd,
en þau komu með hvelli inn í
ferðaþjónustu fyrr á þessu ári.
Böðin voru opnuð í júní og
vöktu strax mikla athygli bæði
hérlendis sem erlendis. Reyndar
hafði hugmyndin um byggingu
baðanna vakið athygli löngu áður
en ráðist var í framkvæmdir, enda
slík böð ekki að finna hvar sem er í
heiminum. Fyrirtækið kom því ekki
aðeins nýtt inn á markaðinn, heldur
kom það inn með glænýja upplifun.
Bjórböðin hafa skapað sér
ákveðna sérstöðu í ferðaþjónustu
og ferðaskrifstofur verið fljótar að
taka við sér með því að bjóða upp á
ferðir þar sem viðkoma í böðunum
er innifalin.
Ferðaþjónusta á Norðurlandi
nýtur góðs af þessari nýjung
þar sem þarna er komin
eftirsóknarverð þjónusta sem önnur
ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt
sér. Það er reyndar ekki bara vegna
sjálfra bjórbaðanna, heldur einnig
veitingastaðarins og barsins sem
hafa notið vinsælda. Fyrirtækið er
þegar orðið mikilvægur hlekkur
í uppbyggingu ferðaþjónustu á
Norðurlandi.
Bjórböðin eru rekin af Ragnhildi
Viðurkenningin Sproti ársins er veitt ungu fyrirtæki sem hefur skapað eftirtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Það fyrirtæki sem fékk verðlaunin í ár er Bjórböðin sem komu
með hvelli inn í ferðaþjónustu fyrr á þessu ári. Frá vinstri er Halldór Óli Kjartansson hjá Markaðsskrifstofu Norðurlands, Ragnheiður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Bjórbaðanna, Agnes
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bruggsmiðjunnar, sem er einn eigenda Bjórbaðanna, og börn hennar, Ester Líf Ólafsdóttir og Sigurður Bragi Ólafsson bruggmeistari. Viðurkenningin Fyrirtæki
ársins er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. Að þessu sinni hlaut ferðaþjónustan að Gauksmýri viðurkenninguna Fyrirtæki ársins. Þá er
Ólöf Hallgrímsdóttir í Vogafjósi sem hlaut viðurkenninguna fyrir Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi. Lengst til hægri er svo Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu
Norðurlands. Myndir / Rögnvaldur Már Helgason/Markaðsskrifstofa Norðurlands
Landsbankinn býður fyrirtækjum alhliða lausnir
fyrir ármál þeirra. Hjá okkur starfa tugir sérfræðinga
um land allt sem sérhæfa sig í þjónustu við fyrirtæki
í öllum helstu greinum atvinnulífsins.
Sérfræðiþekking
á ölbreyttum
þörfum fyrirtækja