Bændablaðið - 16.11.2017, Side 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Í Verona er að finna eitt best
varðveitta dæmið á Ítalíu
um garð aðalsfjölskyldu frá
endurreisnartímanum. Þrátt
fyrir endurbætur á garðinum
í gegnum aldirnar er hann að
mestu í upprunalegri mynd og
hrein unum að heimsækja.
Fyrir, „introverta“, fólk sem
ekki er mikið fyrir fjölmenni, hafa
lystigarðar óneitanlega marga
kosti fram yfir listasöfn. Yfirleitt
eru fáir á ferli í görðunum andstætt
frægum og fallegum listasöfnum
sem iðulega eru sneisafull af
fólki sem líta vill helstu listaverk
sögunnar augum. Lystigarðar eru
opin rými þar sem draga má andann,
horfa til himins og finna angan
vel skipulagðrar, manngerðrar og
tilbúinnar náttúru.
Skammt austan við hring-
leikahúsið í Verona, eftir að farið er
yfir Adiga-ána sem rennur í gegnum
borgina, er að finna Giusti-garðinn
sem sagður er vera eitt besta dæmið
um lystigarð aðalsfjölskyldu frá
endurreisnartímanum á Ítalíu.
Aðkoman að garðinum er látlaus
og nánast ósýnileg í samfelldri og
þröngri götumyndinni en eftir að
gengið er inn um hliðið blasir við
stórkostlegt útsýni inn í garðinn sem
umkringdur er háum steinvegg á
allar hliðar.
Garður Guisti-fjölskyldunnar
Við lok fjórtándu aldar var
ullarvinnsla og ullarlitun ein
helsta tekjulind Verona og á þeim
tíma flutti Guisti-fjölskyldan
til borgarinnar og fjárfesti í
ullariðnaðinum og efnaðist vel.
Á þeim tíma var svæðið sem
garðurinn stendur í dag notað undir
verksmiðjur sem suðu og lituðu ull
í risastórum pottum og lögðu hana
út til þerris.
Þegar á fimmtándu öld viku
verksmiðjurnar og fjölskyldan
reisti sér látlausa höll sem sneri
að götunni og ræktaði garð á
verksmiðjusvæðinu aftan við hana.
Garðurinn er að hluta í
klassískum ítölskum stíl, skipt í níu
minni og symetríska garða. Í anda
þess tíma var sýprus- og ýviðartrjám
plantað meðfram göngustígum og í
bakgrunninn. Buxus eða fagumlim
var mótað í form, kúlur og limgerði
klippt eftir reglustiku. Í garðinum
eru vel snyrtar grasflatir, blómaker
og kryddjurtagarður, fjöldi
klassískra höggmynda, gosbrunnar
og manngerðra hella og var einn
þeirra í eina tíð alsettur speglum.
Þar eru einnig lítil sæluhús sem gott
er að skýla sér í fyrir sólinni og kæla
sig niður á heitum sumardögum.
Þrátt fyrir að garðurinn sé
að mestu í upprunalegri mynd
hefur hann verið endurnýjaður og
endurbættur á margan hátt. Árið
1786 var hannað í garðinn klassískt
völundarhús úr buxusrunnum sem
auðvelt er að villast í þrátt fyrir að
hekkið sé ekki nema tæpur metri að
hæð. Í seinni tíð hefur Brugmansia
'Feingold', eða englalúður, sem
er stórblómstrandi planta af
náttskuggaætt, verið plantað í
garðinn til skrauts. Í garðinum
eru líka sítrónuplöntur í pottum,
klifurplöntur og skuggþolnar
þekjuplöntur í beðum. Þar er einnig
tjörn við einn gosbrunninn með
skrautfiskum.
Vanræksla og órækt
Við upphaf þarsíðustu aldar var
garðurinn kominn í órækt og
niðurníðslu vegna vanrækslu.
Vel formaðir runnarnir og
völundarhúsið var vaxið úr sér
og illgresi hafði yfirtekið beðin,
blómakerin og grasflatirnar. Árið
1930 var svo komið að garðurinn
lá undir skemmdum og ráðist var í
miklar endurbætur á honum.
Garðurinn varð illa
úti í vitfirringu seinni
heimsstyrjaldarinnar. Tré lögðust
á hliðina í sprengjuárásum og
margar stytturnar bera þess
enn merki að hafa orðið fyrir
skemmdum. Ráðast þurfti í
gagngerar endurbætur á garðinum
í stríðslok, reisa við fallin tré og
planta nýjum og hefur garðinum
verið sýndur sá sómi sem honum
ber og vel við haldið síðan þá.
Garður á tveimur hæðum
Eitt af því sem kemur á óvart við
garðinn er að hann er á tveimur
hæðum. Neðri hluti hans og sá
formlegri liggur í eylítið aflíðandi
brekku frá innganginum upp að
talsvert háum en vart sjáanlegum
klettavegg.
Í miðjum garðinum, milli
há vax inna sýprustrjáa, eru breiðar
steintröppur sem liggja eftir honum
endilöngum en til beggja hliða
buxusar sem mynda fögur munstur
og þar eru líka höggmyndir af
grísku gyðjunum Díönu og Venus
og guðunum Appolo og Adónis.
Þegar innar dregur í garðinn,
meðfram sýprustrjáasúlunum
og framhjá gosbrunnunum, sjást
fagurlega skreyttar svalir efst á
klettaveggnum og undir þeim stór
ufsagrýla sem blásið gat eldi út
um munninn þegar mikið stóð til.
Við göngustíg undir klettinum
UTAN ÚR HEIMI
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Í anda þess tíma var sýprus- og ýviðartrjám plantað meðfram göngustígum og í bakgrunninn. Myndir / VH
Sveppur og litadýrð á gömlum ývið sem farinn er að láta á sjá.
Stytta af gleðiguðinum Bakkusi þar