Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 16.11.2017, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017 Í Verona er að finna eitt best varðveitta dæmið á Ítalíu um garð aðalsfjölskyldu frá endurreisnartímanum. Þrátt fyrir endurbætur á garðinum í gegnum aldirnar er hann að mestu í upprunalegri mynd og hrein unum að heimsækja. Fyrir, „introverta“, fólk sem ekki er mikið fyrir fjölmenni, hafa lystigarðar óneitanlega marga kosti fram yfir listasöfn. Yfirleitt eru fáir á ferli í görðunum andstætt frægum og fallegum listasöfnum sem iðulega eru sneisafull af fólki sem líta vill helstu listaverk sögunnar augum. Lystigarðar eru opin rými þar sem draga má andann, horfa til himins og finna angan vel skipulagðrar, manngerðrar og tilbúinnar náttúru. Skammt austan við hring- leikahúsið í Verona, eftir að farið er yfir Adiga-ána sem rennur í gegnum borgina, er að finna Giusti-garðinn sem sagður er vera eitt besta dæmið um lystigarð aðalsfjölskyldu frá endurreisnartímanum á Ítalíu. Aðkoman að garðinum er látlaus og nánast ósýnileg í samfelldri og þröngri götumyndinni en eftir að gengið er inn um hliðið blasir við stórkostlegt útsýni inn í garðinn sem umkringdur er háum steinvegg á allar hliðar. Garður Guisti-fjölskyldunnar Við lok fjórtándu aldar var ullarvinnsla og ullarlitun ein helsta tekjulind Verona og á þeim tíma flutti Guisti-fjölskyldan til borgarinnar og fjárfesti í ullariðnaðinum og efnaðist vel. Á þeim tíma var svæðið sem garðurinn stendur í dag notað undir verksmiðjur sem suðu og lituðu ull í risastórum pottum og lögðu hana út til þerris. Þegar á fimmtándu öld viku verksmiðjurnar og fjölskyldan reisti sér látlausa höll sem sneri að götunni og ræktaði garð á verksmiðjusvæðinu aftan við hana. Garðurinn er að hluta í klassískum ítölskum stíl, skipt í níu minni og symetríska garða. Í anda þess tíma var sýprus- og ýviðartrjám plantað meðfram göngustígum og í bakgrunninn. Buxus eða fagumlim var mótað í form, kúlur og limgerði klippt eftir reglustiku. Í garðinum eru vel snyrtar grasflatir, blómaker og kryddjurtagarður, fjöldi klassískra höggmynda, gosbrunnar og manngerðra hella og var einn þeirra í eina tíð alsettur speglum. Þar eru einnig lítil sæluhús sem gott er að skýla sér í fyrir sólinni og kæla sig niður á heitum sumardögum. Þrátt fyrir að garðurinn sé að mestu í upprunalegri mynd hefur hann verið endurnýjaður og endurbættur á margan hátt. Árið 1786 var hannað í garðinn klassískt völundarhús úr buxusrunnum sem auðvelt er að villast í þrátt fyrir að hekkið sé ekki nema tæpur metri að hæð. Í seinni tíð hefur Brugmansia 'Feingold', eða englalúður, sem er stórblómstrandi planta af náttskuggaætt, verið plantað í garðinn til skrauts. Í garðinum eru líka sítrónuplöntur í pottum, klifurplöntur og skuggþolnar þekjuplöntur í beðum. Þar er einnig tjörn við einn gosbrunninn með skrautfiskum. Vanræksla og órækt Við upphaf þarsíðustu aldar var garðurinn kominn í órækt og niðurníðslu vegna vanrækslu. Vel formaðir runnarnir og völundarhúsið var vaxið úr sér og illgresi hafði yfirtekið beðin, blómakerin og grasflatirnar. Árið 1930 var svo komið að garðurinn lá undir skemmdum og ráðist var í miklar endurbætur á honum. Garðurinn varð illa úti í vitfirringu seinni heimsstyrjaldarinnar. Tré lögðust á hliðina í sprengjuárásum og margar stytturnar bera þess enn merki að hafa orðið fyrir skemmdum. Ráðast þurfti í gagngerar endurbætur á garðinum í stríðslok, reisa við fallin tré og planta nýjum og hefur garðinum verið sýndur sá sómi sem honum ber og vel við haldið síðan þá. Garður á tveimur hæðum Eitt af því sem kemur á óvart við garðinn er að hann er á tveimur hæðum. Neðri hluti hans og sá formlegri liggur í eylítið aflíðandi brekku frá innganginum upp að talsvert háum en vart sjáanlegum klettavegg. Í miðjum garðinum, milli há vax inna sýprustrjáa, eru breiðar steintröppur sem liggja eftir honum endilöngum en til beggja hliða buxusar sem mynda fögur munstur og þar eru líka höggmyndir af grísku gyðjunum Díönu og Venus og guðunum Appolo og Adónis. Þegar innar dregur í garðinn, meðfram sýprustrjáasúlunum og framhjá gosbrunnunum, sjást fagurlega skreyttar svalir efst á klettaveggnum og undir þeim stór ufsagrýla sem blásið gat eldi út um munninn þegar mikið stóð til. Við göngustíg undir klettinum UTAN ÚR HEIMI Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Í anda þess tíma var sýprus- og ýviðartrjám plantað meðfram göngustígum og í bakgrunninn. Myndir / VH Sveppur og litadýrð á gömlum ývið sem farinn er að láta á sjá. Stytta af gleðiguðinum Bakkusi þar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.