Bændablaðið - 16.11.2017, Síða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
er steinturn sem byggður er utan
í klettinn. Í turninum eru slitnar
hringlaga steintröppur sem leiða
gesti upp í látlausan og eilítið
villtan efri garðinn. Sagan segir
að vel hirtir villigarðar eins og
þessi hafi þótt tilvaldir fyrir
unga aðalsmenn og -meyjar
endurreisnartímabilsins til að
stunda í feluleiki, daðra og kyssast
á laun.
Malarstígur frá útgangi
turnsins í efri garðinum leiðir
gesti að svölum, með fallega
munstruðu handriði, sem bjóða
upp á stórkostlegt útsýni yfir
Verona og að virða garðinn fyrir
sér frá sjónarhorni fuglsins. Í efri
garðinum eru líka bekkir þar sem
hægt er að setjast niður í skugga
trjáa.
Sítrusarækt og útflutningur
Eystri hluti neðrigarðsins er ólíkur
aðalgarðinum að því leyti að í dag
er hann að mestu grasflöt en var
matjurtagarður fyrr á tímum. Við
austurvegg garðsins er að finna
orangerý, eða gróðurhús, sem
notað var til að rækta sítrónur og
appelsínur fyrir heimilið og voru
sítrusarnir einnig seldir aðalsfólki
í Evrópu og til hirðarinnar í
Rússlandi.
Í austurveggnum er einnig
innskot með myndarlegri
höggmynd af guði jurtagróðurs,
gleði og víns, Dionysos eða
Bakkusi, þar sem hann heldur á
vínberjaklasa og með lærisvein
sér við hlið.
Tignir gestir
Helsti hvatamaður að gerð garðsins
var Agostino Giusti sem uppi var
á árunum 1548 til 1615. Auk þess
að vera áhugasamur um garðlist
lét hann sér annt um mynd- og
tónlist og léku lútuleikarar iðulega
snemmbarrokk tónlist eða undirleik
fyrir castrato-söng í garðinum fyrir
tigna gesti.
Agostino var vel kynntur
háaðlinum um alla Evrópu og
gestkvæmt var í garðinum þegar
tignir gestir heimsóttu Verona.
Mikilmenni eins og Cosimo De
Medici, Jóseph II keisari og Fransis
I keisari af Austurríki og faðir
Maríu Lúísu, eiginkonu Napóleons.
Alexander I Rússakeisari, skáldin
Púskin og Goethe og tónskáldið
Mozart hafa einnig heimsótt garðinn
og heillast af honum. Alveg eins
og Vilmundur Hansen þegar hann
heimsótti garðinn í haust og varði
einni dagsstund til að njóta hans.
Við göngustíginn undir klettinum
er steinturn sem byggður er utan í
klettinn.
Kjaftur ufsagrýlunnar, undir svölum
efrigarðsins, átti það til að spúa eldi
sem magnaður var með fýsibelg.
Brugmansia 'Feingold', eða englalúður.
Aðkoman að garðinum er látlaus
og nánast ósýnileg í samfelldri og
þröngri götumyndinni.
Auðvelt er að villast í völundarhúsinu þrátt fyrir að hekkið sé ekki nema
tæpur metri að hæð.
Giusti-fjölskyldan reisti sér látlausa höll sem sneri að götunni og ræktaði
garð aftan við hana.