Bændablaðið - 16.11.2017, Page 53

Bændablaðið - 16.11.2017, Page 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Til upprifjunar er rétt að minna á að haustið 2016 voru tekin upp árleg skil á skýrsluhaldi í hrossarækt í gegnum heimarétt WorldFengs. Þessi skil eiga að fara fram fyrir 20. nóvember ár hvert. Þetta er sama dagsetning og er á skilum á haustskýrslu í Bústofn sem áður kölluðust forðagæsluskýrslur. Þar sem óðum styttist í þessi skil er rétt að rifja upp helstu atriði. Áður en gengið er frá skýrsluskilum í „Heimaréttinni“ þarf að fara í gegnum nokkur skref og hér á eftir verður leitast við að útskýra þá flipa sem þarf að fara í gegnum. Þetta eru fliparnir Hrossin mín, Fyljanaskráning, Fang- og folaldaskýrsla, Umráðamaður og Skýrsluhaldsskil. „Fang- og folaldaskráning“. Hér fer fram skráning á folöldunum og hvað um þau verður. Þarna birtast eftirfarandi möguleikar: • Afrakstur, þar koma upp eftirfarandi valkostir; eitt folald, tvö folöld, dauðfætt, hryssan fórst. • Geld/Lét, ef hryssa er geld eða lét er gerð grein fyrir því undir þessum flipa. • Folaldi slátrað • Skrá folald, hér er folaldið grunnskráð. • Tvífyl, hér opnast tveir gluggar þar sem hægt er að skrá bæði folöldin. Það skal tekið fram að ekki er hægt að skrá folald nema ræktandi sé skráður fyrir ræktunarnúmerum (þrír öftustu stafirnir í fæðingarnúmeri) og að fyrir liggi fangskráning frá síðasta ári. Til að fá úthlutað ræktunarnúmeri er hægt að senda t-póst á RML. „Umráðamaður“. Samkvæmt nýlegum reglum Evrópusambandsins um hestahald er nauðsynlegt að öll hross hafi skráðan umráðamann, vegna þess að WorldFengur virkar sem rafrænt hestavegabréf. Umráðamaður er í flestum tilfellum sami aðili og skráður eigandi en vegna eftirfarandi þátta þarf að skerpa á þessu: • Ef hross er skráð á marga eigendur þá þarf að velja einhvern einn sem umráðamann þess. • Ef skráður eigandi er undir lögaldri, þarf að skrá einhvern eldri sem umráðamann. • Ef eigandi er ekki staðsettur í sama landi og hrossið, t.d. útlendingar sem eiga hross hér á landi, þá þarf að skrá þau á umráðamann sem búsettur er hérlendis. Eigandi getur breytt umráðamanni þegar honum hentar, t.d. ef hann lánar einhverjum hross í lengri tíma. Í flipanum „um mig“ eru persónulegar upplýsingar, s.s. heimilisfang, sími og netfang. Þarna er hægt að leiðrétta upplýsingar ef þörf er á. Endilega að yfirfara netföng og símanúmer reglulega. „Skýrsluhaldsskil“. Hér fara fram árleg skil á skýrslum þegar búið er að skrá allar nauðsynlegar upplýsingar í fyrri flipum. Þessi skil þarf að framkvæma fyrir 20. nóvember. Ekki er hægt að skila skýrsluhaldinu nema búið sé að gera grein fyrir fyljanaskráningu ársins og ástæðum förgunar fyrir þau hross sem voru felld/slátrað á árinu. Til hagræðis fyrir hesteigendur er hér einnig yfirlit yfir fullorðin hross sem ekki eru örmerkt og listi yfir þau hross sem búið er að taka DNA-sýni úr en hafa ekki fengið staðfestingu á ætterni. Þar sem ekki fæst staðfesting á ætterni ættu menn að skoða hvers vegna svo er. Oft eru eðlilegar skýringar á því, s.s. að ekki sé til DNA-sýni úr móður eða föður. Mistök geta líka hafa átt sér stað við sýnatöku eða greiningu og því full ástæða til að fylgja þeim málum eftir. Allir þeir sem eru félagsmenn í hestamannafélagi eða Félagi hrossabænda eiga að hafa frían aðgang að WorldFeng og þar með heimarétt. Þeir sem hafa ekki látið virkja fyrir sig aðgang að WF ættu að setja sig í samband við gjaldkera eða formann í viðkomandi félagi og óska eftir að það verði gert. Munum að skila skýrslum fyrir 20. nóvember næstkomandi og tökum þátt í því að WorldFengur gefi sem raunsannasta mynd af stofninum hverju sinni. Halla Eygló Sveinsdóttir ráðunautur í hrossarækt hjá RML halla@rml.is Skýrsluhaldsskil og skráning á fyljun

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.