Bændablaðið - 16.11.2017, Qupperneq 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Til upprifjunar er rétt að minna
á að haustið 2016 voru tekin
upp árleg skil á skýrsluhaldi í
hrossarækt í gegnum heimarétt
WorldFengs. Þessi skil eiga að
fara fram fyrir 20. nóvember ár
hvert. Þetta er sama dagsetning
og er á skilum á haustskýrslu
í Bústofn sem áður kölluðust
forðagæsluskýrslur. Þar sem
óðum styttist í þessi skil er rétt
að rifja upp helstu atriði.
Áður en gengið er frá
skýrsluskilum í „Heimaréttinni“
þarf að fara í gegnum nokkur skref
og hér á eftir verður leitast við að
útskýra þá flipa sem þarf að fara í
gegnum. Þetta eru fliparnir Hrossin
mín, Fyljanaskráning, Fang- og
folaldaskýrsla, Umráðamaður og
Skýrsluhaldsskil.
„Fang- og folaldaskráning“. Hér
fer fram skráning á folöldunum og
hvað um þau verður. Þarna birtast
eftirfarandi möguleikar:
• Afrakstur, þar koma upp
eftirfarandi valkostir; eitt folald,
tvö folöld, dauðfætt, hryssan
fórst.
• Geld/Lét, ef hryssa er geld eða
lét er gerð grein fyrir því undir
þessum flipa.
• Folaldi slátrað
• Skrá folald, hér er folaldið
grunnskráð.
• Tvífyl, hér opnast tveir gluggar
þar sem hægt er að skrá bæði
folöldin.
Það skal tekið fram að ekki er hægt
að skrá folald nema ræktandi sé
skráður fyrir ræktunarnúmerum (þrír
öftustu stafirnir í fæðingarnúmeri)
og að fyrir liggi fangskráning
frá síðasta ári. Til að fá úthlutað
ræktunarnúmeri er hægt að senda
t-póst á RML.
„Umráðamaður“. Samkvæmt
nýlegum reglum Evrópusambandsins
um hestahald er nauðsynlegt að öll
hross hafi skráðan umráðamann,
vegna þess að WorldFengur
virkar sem rafrænt hestavegabréf.
Umráðamaður er í flestum tilfellum
sami aðili og skráður eigandi en
vegna eftirfarandi þátta þarf að
skerpa á þessu:
• Ef hross er skráð á marga
eigendur þá þarf að velja
einhvern einn sem umráðamann
þess.
• Ef skráður eigandi er undir
lögaldri, þarf að skrá einhvern
eldri sem umráðamann.
• Ef eigandi er ekki staðsettur
í sama landi og hrossið, t.d.
útlendingar sem eiga hross hér
á landi, þá þarf að skrá þau á
umráðamann sem búsettur er
hérlendis.
Eigandi getur breytt umráðamanni
þegar honum hentar, t.d. ef hann
lánar einhverjum hross í lengri tíma.
Í flipanum „um mig“ eru
persónulegar upplýsingar, s.s.
heimilisfang, sími og netfang. Þarna
er hægt að leiðrétta upplýsingar
ef þörf er á. Endilega að yfirfara
netföng og símanúmer reglulega.
„Skýrsluhaldsskil“. Hér fara
fram árleg skil á skýrslum þegar
búið er að skrá allar nauðsynlegar
upplýsingar í fyrri flipum. Þessi
skil þarf að framkvæma fyrir 20.
nóvember.
Ekki er hægt að skila
skýrsluhaldinu nema búið sé að gera
grein fyrir fyljanaskráningu ársins
og ástæðum förgunar fyrir þau hross
sem voru felld/slátrað á árinu.
Til hagræðis fyrir hesteigendur
er hér einnig yfirlit yfir fullorðin
hross sem ekki eru örmerkt og listi
yfir þau hross sem búið er að taka
DNA-sýni úr en hafa ekki fengið
staðfestingu á ætterni. Þar sem ekki
fæst staðfesting á ætterni ættu menn
að skoða hvers vegna svo er. Oft
eru eðlilegar skýringar á því, s.s.
að ekki sé til DNA-sýni úr móður
eða föður. Mistök geta líka hafa átt
sér stað við sýnatöku eða greiningu
og því full ástæða til að fylgja þeim
málum eftir.
Allir þeir sem eru félagsmenn
í hestamannafélagi eða Félagi
hrossabænda eiga að hafa frían
aðgang að WorldFeng og þar með
heimarétt. Þeir sem hafa ekki látið
virkja fyrir sig aðgang að WF ættu
að setja sig í samband við gjaldkera
eða formann í viðkomandi félagi og
óska eftir að það verði gert. Munum
að skila skýrslum fyrir 20. nóvember
næstkomandi og tökum þátt í því að
WorldFengur gefi sem raunsannasta
mynd af stofninum hverju sinni.
Halla Eygló Sveinsdóttir
ráðunautur í hrossarækt
hjá RML
halla@rml.is
Skýrsluhaldsskil og skráning á fyljun