Bændablaðið - 16.11.2017, Side 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. nóvember 2017
Kósísokkar
HANNYRÐAHORNIÐ
Nú þegar kólna fer er gott að
eiga kósísokka til að ylja köldum
fótum. Þessa sokka er skemmtilegt
að prjóna og verða klárlega í
jólapakka frá mér þessi jólin til
nokkurra ættingja. Nepal er á 30%
afslætti núna þegar Alpaca partí
stendur yfir hjá okkur.
DROPS Design: Mynstur ne-229
Stærðir: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 26 cm
Efni: DROPS NEPAL
200-200-250 gr
Prjónar: Sokkaprjónar eða 30 sm hringprjónn nr 4,5
og 5 – eða sú stærð sem þarf til að 17Lx22 umf í sléttu
prjóni verði 10x10 sm á prjóna nr 5mm
Kaðlaprjónn
MYNSTUR:
Sjá teikningar A.1 til A.7.
HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið þar til 7-7-8 L eru eftir, takið
1L óprjónaða, 1L sl, steypið óprjónuðu L yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið þar til 7-7-8 L eru eftir,
takið 1L óprjónaða, 1L br, steypið óprjónuðu L yfir,
snúið við.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið þar til 6-6-7 L eru eftir, takið
1L óprjónaða, 1L sl, steypið óprjónuðu L yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið þar til 6-6-7 L eru eftir,
takið 1L óprjónaða, 1L br, steypið óprjónuðu L yfir,
snúið við.
Haldið áfram alveg eins með því það fækki um 1L áður
en 1L er steypt yfir þar til 10-12-12 L eru eftir á prjóni.
ÚRTAKA:
Fækkið um 1L á undan prjónamerki þannig: Prjónið
þar til 2L eru eftir á undan prjónamerki, 2L slétt
saman.
Fækkið um 1L á eftir prjónamerki þannig: Prjónið
fyrstu 2L á eftir prjónamerki snúnar slétt saman.
SOKKUR:
Stykkið er prjónað í hring á frá miðju að aftan.
Fitjið upp 60-64-68 L á sokkaprjóna nr 4,5 með Nepal.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (2sl, 2br) þar
til stykkið mælist 4 sm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA
Prjónið *1 umf br, 1 umf sl *, endurtakið frá *-* 1
sinni til viðbótar, JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað
um 8Ll jafnt yfir = 52-56-60L. Skiptið yfir á prjóna
nr 5. Prjónið þannig: Prjónið A.6a (sjá mynstur fyrir
rétta stærð = 5-7-9 L), A.2 (= 7L), A.3 (= 6L), A.1
(= 16L), A.4 (= 6L), A.5 (= 7L), endið með A.7a (sjá
mynstur fyrir rétta stærð = 5-7-9 L). Haldið svona
áfram með mynstur. Þegar A.2 til A.5 hefur verið
prjónað 1 sinni á hæðina er A.2a endurtekið til A.5a
til loka. Mynstur A.6 og A.7 er síðan prjónað eftir
mismunandi stærðum þannig:
Stærð 35/37: Endurtakið A.6a/A.7a alls 4 sinnum,
A.6b/A.7b alls 1 sinni (= 2L færri), A.6c/A.7c alls 4
sinnum, A.6d/A.7d alls 1 sinni (= 2L færri), endurtakið
A.6e/A.7e þar til stykkið mælist 26 sm, stillið af eftir
eina heila mynstureiningu af mynstri á hæðina.
Stærð 38/40: Endurtakið A.6a/A.7a alls 1 sinni (= 2L
færri), A.6b/A.7b alls 2 sinnum, A.6c/A.7c alls 1 sinni
(= 2L færri), A.6d/A.7d alls 2 sinnum, A.6e/A.7e alls 1
sinni (= 2L færri), endurtakið A.6f/A.7f þar til stykkið
mælist 27 sm, stillið af eftir eina heila mynstureiningu
á hæðina.
Stærð 41/43: Endurtakið A.6a/A.7a alls 1 sinni (=
4L færri), A.6b/A.7b alls 2 sinnum, A.6c/A.7c alls 1
sinni (= 4L færri), endurtakið A.6d/A.7d þar til stykkið
mælist 28 sm, stillið af eftir eina heila mynstureiningu
af mynstri á hæðina.
ATH. Fækkið um 4 lykkjur í mynstri A.1 – sjá
teikningu. Þegar stykkið mælist 26-27-28 sm eru
44-46-48 lykkjur á prjóninum.
Haldið nú eftir fyrstu 10-11-12 L á prjóni (þ.e.a.s.
A.6 og A.2), setjið næstu 24L á 1 band (= miðja ofan
á fæti) og haldið eftir síðustu 10-11-12 L á prjóni
(þ.e.a.s. A.5 og A.7) = 20-22-24 L fyrir hæl. Stykkið
er nú prjónað fram og til baka. Í næstu umf er aukið
út um 1L á hvorri hlið á hælstykki með því að prjóna
2L í fyrstu og síðustu L = 22-24-26 L. Prjónið frá réttu
þannig: 1L br, A.2, sléttprjón yfir næstu 6-8-10 L,
A.5 og endið með 1L br. Haldið svona áfram fram
og til baka þar til hælstallur mælist 5½ sm. Setjið 1
prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Stillið af að
mynstrið endi fallega. Prjónið nú slétt prjón yfir allar
lykkjur og fellið af fyrir hæl – LESIÐ HÆLÚRTAKA
Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-11 L hvoru
megin við hæl og 24L af bandi eru settar til baka á
prjóninn = 54-56-58 L. Prjónið 5-6-6 L sl (= miðja
undir fæti) = byrjun á umf.
Setjið síðan 2 prjónamerki í stykkið og prjónið þannig:
Prjónið 14-15-16 L sl, setjið 1. prjónamerki, 1 L br,
haldið áfram með mynstur A.3, A.1, A.4, (þegar
A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.1a
endurtekið til loka), 1L br, setjið 2. prjónamerki,
14-15-16 L sl. Haldið svona áfram með mynstur
JAFNFRAMT er fækkað um 1L á undan 1. prjónamerki
og 1L á eftir 2. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, í
hverri umf alls 9 sinnum = 36-38-40 L (= 10-12-14
L sléttprjón undir il). Prjónið þar til stykkið mælist
19-21-23 sm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 3
sm). Prjónið nú sléttprjón yfir lykkjur í A.1a, stillið
af að endað sé á einni mynstureiningu af A.1a á
hæðina, e.t.v. er hægt að prjóna slétt prjón aðeins
fyrr. Mynstur A.3 og A.4 halda áfram til loka. Setjið
4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5-6-7 L sl,
setjið 1. prjónamerki, 1L br, prjónið A.3 og setjið 2.
prjónamerki á milli 5. og 6. L, prjónið sl yfir fótinn (=
12L), A.4 og setjið 3. prjónamerki á milli 1. og 2. L, 1L
br, setjið 4. prjónamerki, endið með 5-6-7 L sl (= 14L
ofan á rist, 10-12-14 L undir il og 6L á hvorri hlið).
Fellið síðan af fyrir tá í næstu umf þannig: Fækkið um
1L á eftir 2. prjónamerki ofan á rist og 1L á undan 3.
prjónamerki ofan á rist (= alls 2L færri), endurtakið
úrtöku í hverri umf alls 2-1-0 sinnum – LESIÐ
ÚRTAKA = 10-12-14 L ofan á rist og 10-12-14 L
undir il (= 32-36-40 L alls). Í næstu umf er L fækkað
þannig: Fækkið um 1L á undan 1. og 3. prjónamerki
og 1L á eftir 2. og 4. prjónamerki (= alls 4L færri).
Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 4-5-6 sinnum
JAFNFRAMT í síðustu umf eru kaðlalykkjur í A.3 og
A.4 þannig: Prjónið 2L snúnar slétt saman, 2L slétt
saman. Eftir alla úrtöku eru 12L á prjóni. Klippið frá
og dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru,
herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garnis .
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
4 7 1
8 6 1 5
2 6 8 3
2 4 1 9 7
5 3 9 6
1 3 7 8 4
7 3 4 2
5 9 4 6
1 5 2
Þyngst
4
2 6
8 6 1 4 2 5
4 9 7
7 2 3 8
2 8 4
1 9 5 3 8 7
9 6
3
9 5 1
8
5 4 8
1 2 6
7 5 9 8
6 8 3
4 9 3
7
2 7 4
3 8
9 5
7 1
8 6
2 7 1
5 9
3 4
9 6
3 2
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Ingvar Örn ætlar að
verða sauðfjárbóndi
Ingvar Örn er hress og góður
strákur sem hefur mikinn áhuga
á dýrum, stundar hestamennsku
á sumrin og hefur mikinn áhuga
á mótorsporti ýmiss konar og
íþróttum.
Nafn: Ingvar Örn Tryggvason.
Aldur: 11ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Bý á Kópaskeri og í Birkifelli,
Öxarfirði.
Skóli: Öxarfjarðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundar.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: AC/DC.
Uppáhaldskvikmynd: Change up.
Fyrsta minning þín? Þegar ég hitti
Baldvin Einarsson í fyrsta skipti í
leikskóla.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi á trommur.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Sauðfjárbóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég ákvað að stökkva
á fjórhjólinu mínu niður háa brekku.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Þegar ég fór í fjögurra daga
hestaferð.
Næst » Ingvar skorar á Erlu Bernharðsdóttur
í Ærlækjarseli að svara næst.