Bændablaðið - 01.11.2018, Qupperneq 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 2018 27
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Hljóðsokkar á stóla
Verð 862 kr. stykkið
(Þrír litir)
Leitið tilboða í stærri kaup
www.stalidjan.is
Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is
Dempar hljóð um allt að 18dB.
Minnkar slit á gólfi .
Má þvo í þvottavél.
Mjög létt að setja á og taka af.
Bráðnauðsynlegt í skóla, mötuneyti
og allstaðar þar sem að fjölmenni
kemur saman.
a gar ýg 0030365dB næ sinluA - -
fráa aH hf i
Sölufélag garðyrkjumanna og
Kolviður hafa undirritað samning
sem felur í sér að flutningur á
grænmeti frá grænmetisbændum
í Sölufélagi garðyrkjumanna í
verslanir verður kolefnisjafnaður
að fullu. Íslenskt grænmeti er
því orðið enn grænna en áður
og neytendur fá tryggingu fyrir
því að kolefnisfótspor á flutningi
grænmetisins eru jöfnuð að fullu
af vottuðum aðilum.
Samningurinn felur m.a. í sér að
haldið er sérstakt kolefnisbókhald
til að reikna út kolefnisfótspor
í flutningum frá bónda og
í verslanir. Út frá þeim
gögnum er trjám
plantað á tilgreindum
svæðum og eru
þau vernduð í 60
ár. Þannig er allur
akstur vörunnar
kolefnisjafnaður.
Kolviður er sjóður
sem starfar samkvæmt
skipulagsskrá samþykktri af
stjórnvöldum 2006 og lýtur eftirliti
Ríkisendurskoðunar. Stofnendur
sjóðsins eru Skógræktarfélag
Íslands og Landvernd með stuðningi
ríkisstjórnar Íslands, en markmið
hans er binding kolefnis í gróðri
og jarðvegi til að draga úr styrk
koltvíoxíðs (CO2) í andrúmslofti.
Samkvæmt mælingum á flutningi
grænmetis frá framleiðendum hefur
Kolviður gróðursett tré sem jafnar út
kolefnisfótsporin og sú vinna mun
halda áfram um ókomin ár.
„Við teljum afar mikilvægt að
halda áfram að vera eins vistvæn
og græn og við getum. Síðustu
ár höfum við tekið mörg stór og
mikilvæg skref í þá átt. Þannig er
yfir áratugur liðinn frá því að við
hættum allri notkun frauðplasts,
tæp 10 ár frá því að allri notkun á
plastbökkum var hætt og bakkar
úr endurvinnanlegum pappa teknir
upp í staðinn, fljótlega koma á
markað jarðgerðanlegar umbúðir
unnar úr jurtasterkju og einnig eru
væntanlegir kartöflubréfpokar fyrir
okkar kartöflur. Að kolefnisjafna nú
akstur grænmetisins er eðlilegt
næsta skref. Íslendingar
vita hvaðan íslenskt
grænmeti kemur og nú
að það komi í verslanir
ko le fn i s j a fnað ,“
segir Gunnlaugur
K a r l s s o n ,
framkvæmdastjóri
Sölufélags garðyrkju-
manna.
„Kolviðarskógar eru
nú þegar á Geitasandi á
Rangárvöllum og á Úlfljótsvatni
og unnið er að samningum um
uppbyggingu skógar við Skálholt.
Frá upphafi hefur um 600.000
trjám verið plantað í Kolviðarskóga
og þeim fyrirtækjum sem vilja
kolefnisjafna sig fjölgar jafnt og
þétt. Það er afar ánægjulegt að
Sölufélag garðyrkjumanna stígi
nú þetta skref og stækki enn
frekar Kolviðarskóga landsins
og geri grænmetið enn grænna,“
segir Reynir Kristinsson,
framkvæmdastjóri Kolviðs.
UMHVERFI&LOFTSLAGSMÁL
Sölufélag garðyrkjumanna og Kolviður:
Grænmetisflutningur
kolefnisjafnaður
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, tekur við viðurkenningunni sem
þær Hólmfríður Þorsteinsdóttir, sérfræðingur á sviði loftslagsmála og græns
samfélags, og Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri loftslagsmála og græns
Umhverfisvænt Alþingi
Forseti Alþingis, Steingrímur J.
Sigfússon, tók nýlega fyrir hönd
Alþingis við viðurkenningu frá
Umhverfisstofnun fyrir að hafa
tekið formlega fyrsta Græna
skrefið.
Hólmfríður Þorsteinsdóttir,
sérfræðingur á sviði loftslagsmála
og græns samfélags, afhenti
viðurkenninguna og sagði af því
tilefni að Alþingi sýndi mikilvægt
frumkvæði í málinu og að margt
smátt gerði eitt stórt.
Markvisst hefur verið unnið að því
að gera Alþingi að umhverfisvænum
vinnustað. Stórlega hefur dregið
úr pappírsnotkun með rafrænni
útgáfu þingskjala, prenturum hefur
verið fækkað, rusl er flokkað á
öllum starfsstöðvum, ekki eru
notuð plastglös eða annar einnota
borðbúnaður, ræstiefni eru
umhverfisvottuð, starfsmönnum
er boðið upp á samgöngusamninga
og margt fleira. „Tilgangur og
markmið verkefnisins Græn skref
ríkisstofnana er að efla vistvænan
rekstur ríkisins, skapa fordæmi
í að minnka umhverfisáhrif
vinnustaðarins og hafa þannig
jákvæð áhrif á umhverfið,“
segir Hólmfríður. Verkefnið er
fjármagnað af umhverfis- og
auðlindaráðuneyti og í umsjón
Umhverfisstofnunar. Steingrímur
lýsti því yfir eftir að hann hafði
tekið við viðurkenningunni að næsta
skref yrði að hefja undirbúning að
því að kolefnisjafna alla starfsemi
Alþingis. /MHH
Flutningur á grænmeti frá grænmetisbændum í Sölufélagi garðyrkjumanna
í verslanir verður kolefnisjafnaður að fullu.