Bændablaðið - 01.11.2018, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 201848
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Halldór og Halldóra Lilja keyptu
jörðina Ytri-Hofdali árið 1986
og fluttu úr Svarfaðardalnum
ásamt kettinum Pollý og tveimur
sonum, Þórarni og Bjarka, og hófu
blandaðan búskap. Ári seinna
bættist Þórdís við. Þau hafa unað
sér vel þar síðan.
Býli: Ytri-Hofdalir.
Staðsett í sveit: Í miðjum Skagafirði.
Ábúendur: Á neðri bænum búa
Halldór Jónasson, Halldóra Lilja
Þórarinsdóttir og Þórarinn Már
Halldórsson. Á efri bænum búa Þórdís
Halldórsdóttir, Herbert Hjálmarsson
og Hjálmar Herbertsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Þetta telur allt frá ellilífeyrisþega
niður í ungbarn og allt þar á milli.
Tveir vel virkir Border Collie
hundar, þeir Tappi og Krummi,
og tveir fjósakettir; Branda og
Panda.
Stærð jarðar? 187 ha, þar af tæp-
lega 50 ha ræktaðir.
Gerð bús? Blandað bú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 31
mjólkurkýr í gömlu fjósi með
brautarkerfi, 200 kindur í garða-
húsum. 50 geldneyti og slatti af
hrossum.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Byrjar og endar með mjöltum á
kúm, gjöfum hjá geldneytum og á
veturna þegar búið er að taka inn,
þá hjá sauðfé líka. Svo á milli eru
tækluð þau viðfangsefni sem falla til,
sem eru alltaf einhver, mismunandi
bara eftir árstíðum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast er
sauðburður, göngur og þegar fæðist
kvíga sem ekki er rauð á litinn (og
lifandi) og fallega flekkótt lamb.
Leiðinlegast er að velja úr á
sláturhús gimbrar og girðingarvinna.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Með svipuðu sniði bara tæknivæddari
mögulega.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Mætti vera kannski
fjölbreyttari en annars er þetta á góðri
leið.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði
vegna í framtíðinni? Við segjum
bara eins og Sigurgeir Sindri myndi
segja: „Framtíðin er björt“.
Hvar teljið þið að helstu tæki -
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Með vaxandi upplýsinga-
flæði til neytenda ættum við að
einbeita okkur að því að halda
okkar vörnum og halda okkar
framleiðslum öllum hreinum. Hér
er lítil lyfjanotkun og það er stórt
tromp til framtíðarinnar litið til
útflutnings. Ferskt innflutt kjöt inn
á markaðinn er grafalvarlegt mál.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Örnu mjólkurvörur, (elsti bóndinn
á bænum er með mjólkuróþol)
Lýsi, egg og rabarbarasulta.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Mikið steikt og vel
krydduð lambaslög og kjöt og
karrí.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar við fórum
vestur á Snæfellsnesið í Mávahlíð
fyrir mörgum árum að kaupa
gimbrar og hrúta, það snarbreytti
sauðfjárræktinni okkar. Og þegar
að farið var úr þurrheysverkun í
rúllurnar.
Hafragrautur og steiktur fiskur
Nú þegar íslenskt haframjöl er
farið að sjást í búðum ættum við
að skoða það nánar.
Hafrar geta verið frábær viðbót
við heilbrigt mataræði. Flestir
borða haframjöl heitt (í hafragraut)
í morgunmat, en það er líka hægt að
nota þá í bakstur og fleira góðgæti.
Hafra- eða chiagrautur
Hafrar eru ótrúlega nærandi matvara
sem eru fullir af mikilvægum
vítamínum, steinefnum og
andoxunarefnum. Að auki eru þeir
ríkir af trefjum og próteinum, í
samanburði við annað korn.
Hafrar hafa þá eiginleika að geta
stuðlað að lægri blóðsykri og
kólesterólgildi – auk þess að veita
vörn gegn ertingu í húð og vörn
við hægðatregðu. Að auki er góð
magafylling í þeim og því hafa þeir
marga eiginleika sem ættu að gera
þeim gott sem sækjast eftir því að
léttast.
Morgunverður er mikilvægasta máltíð
dagsins. Margir hafa tilhneigingu til
að ýta bara á „snooze“-takkann of oft
og drífa sig í vinnuna án þess að fá
hollan morgunmat. Ef það á við um
þig er þetta kannski uppskrift fyrir
þig.
Meginreglan er einföld; þú setur hafra
eða fræ í skál að kvöldi, áður en þú
ferð að sofa. Einhvers konar mjólk er
bætt við og uppáhalds bragðefni eftir
smekk. Allt er sett í eina skál eða glas
með loki og síðan inn í ísskápinn.
Mjólkin bleytir upp hafrana og fræin
þannig að næsta morgun eruð þið
komin með þennan dýrindis graut
til að borða á hlaupum.
Aðferð
Skref 1: Takið glas eða skál og setjið
gamaldags valsaða hafra ofan í.
Fyllið glasið eins mikið og þú heldur
að þú getir borðað næsta morgun.
Skref 2: Nú fyllið þið glasið eða
skálina með vökva þar til hafrarnir
eru vel blautir; mjólk, sojamjólk,
kókosmjólk, möndlumjólk,
hrísgrjónamjólk, haframjólk eða
jafnvel appelsínusafi.
Skref 3: Bæta smá mjólk á toppinn
ef fólk vill ásamt meðlæti eins og
musli, berjum, banana eða fræjum.
Hægt er að nota: möndlur,
hesli hnetur, valhnetur, cashew-
hnetur, hörfræ, chiafræ, rúsínur,
alls konar ber og ávexti; eins og
banana, kirsuber, epli eða perur,
sólblómafræ, graskersfræ, hnetu-
smjör, kókosflögur, bragðbætt
jógúrt, skyr og listinn heldur áfram
svo lengi sem hugmyndaflugið og
búrskápurinn leyfir.
Grunngrautur
› 1 hrein krukka með loki
› ½ bolli valsaðir hafrar (½ bolli = um
helmingur krukkunnar)
› 1 bolli mjólk (t.d. sojamjólk,
möndlumjólk)
› 2 msk. hnetur og/eða fræ
› 1 tsk. kanill (eða önnur krydd eins og
kardimommur eða vanilluþykkni)
› 1-2 tsk. uppáhalds sætuefnið þitt
Valfrjálst:
› 2 tsk. chiafræ
› Sumir sneiða hjá ávöxtum, en þá er
hægt að gera ósætan graut með
avókadó og/eða tómötum.
Hjúpaður stökkur fiskur
› 400 g kartöflur, skrældar, hakkað
› 1/2 bolli maískorn eða annað
meðlæti eins og avókadó
› 425 g þorskur eða annar hvítur fiskur
› 3 vorlaukar, saxaðir
› 100 g hveiti
› 2 eggjahvítur, léttþeyttar
› 1/2 bolli quinoa puffs (kínóa
morgunkúlur) og hafrar
› 2 matskeiðar af canola olíu
› 4 bollar blandað grænmeti eftir smekk
› Vinaigrette – gert með 1 matskeið
ólífuolíu og 2 matskeiðum edik eða
sítrónusafa
› 1 sítróna sem er búið að skera í báta
› 4 msk. smjör
Aðferð
Skref 1: Sjóðið kartöflur í potti á
miðlungshita í 22–35 mínútur þar til
þær eru soðnar. Bætið við maís eða
avókadó, síðustu tvær mínúturnar
af eldunartímanum. Hellið vatninu
og setjið kartöflurnar og maísinn/
avókadóið aftur í pottinn. Merjið
gróft. Setjið til hliðar og kælið í 15
mínútur. Setjið svo vorlauk og krydd
eftir smekk. Hrærið og blandið vel
saman.
Skref 2: Setjið eggjahvítu og kínóa
kúlur (quinoa puffs) hvort á sinn
diskinn. Veltið fisknum upp úr
hveiti, svo eggi og endið svo að
setja kínóa kúlur og hafra, svo er
gott að blanda saman við brauðrasp
og möndluspæni.
Skref 3: Hitið olíu í stórri pönnu
á miðlungshita. Steikið fiskinn á
pönnu, snúið honum yfir á hina
hliðina og steikið áfram í sjö til tíu
mínútur þar til hann er gullinn á lit
og stökkur. Berið fram með salati
(og/eða grænmeti) með edikolíunni,
sítrónubátum og bræddu smjöri.
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
Ytri-Hofdalir
Hjálmar og Komma eru ágætis vinir.