Bændablaðið - 01.11.2018, Síða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 1. nóvember 201854
Fréttir hafa borist um að bændur
á bænum Birkihlíð í Skagafirði
hefðu slátrað lömbum heima í lok
september sl. Forstjóri Matís hafi
síðan selt kjötafurðir af lömbunum
á bændamarkaði á Hofsósi 30.
september, þrátt fyrir að vitað sé
að óheimilt sé að selja afurðir af
heimaslátruðum gripum.
Það vekur sérstaka athygli að
forstjóri ríkisstofnunar skuli með
opinberum hætti fremja slíkt meint
lögbrot, þar sem Matís hefur það
sem eitt af sínum helstu markmiðum
og hlutverkum að stuðla að öryggi
matvæla.
Lagafyrirmæli
Þau lagafyrirmæli sem gilda um
slátrun búfjár er að finna í lögum nr.
96/1997 um slátrun og sláturafurðir.
Í 1. grein segir m.a. að tilgangur
laganna sé að tryggja svo sem
kostur er gæði, heilnæmi og hollustu
sláturafurða, að þær séu ómengaðar
og framleiddar við fullnægjandi
hreinlætisaðstæður.
Í 1. málsgrein 5. greinar er skýrt
tekið fram að sláturdýrum, sem
slátra á til að flytja afurðirnar á
erlendan markað eða til dreifingar
og neyslu innan lands, skal slátra í
löggiltum sláturhúsum.
Í 11. gr. segir m.a. að heilbrigðis-
skoðun skuli fara fram á öllum
sláturdýrum áður en slátrað er
og að heilbrigðisskoðun á öllum
sláturafurðum skuli fara fram í
sláturhúsinu áður en frekari vinnsla
fer fram eða þær eru afhentar til
dreifingar.
Það er síðan í lok 5. greinar sem
heimildin til heimaslátrunar er að
finna, en þar segir að eigendum
lögbýla sé heimilt að slátra búfé
sínu á sjálfu býlinu til eigin neyslu.
Ofangreind lagafyrirmæli
eru því afar skýr og heimildin til
heimaslátrunar mjög þröng. Aðeins
eigandi lögbýlis má slátra sínu eigin
búfé heima á sjálfu lögbýlinu og
afurðanna má aðeins neyta á bænum.
Það er því óheimilt að selja þessar
afurðir eða dreifa þeim á annan hátt
frá lögbýlinu, svo sem til gjafa,
vinnslu, söltunar eða frystingar.
Hér skal vakin athygli á
reglugerð nr. 856/2016 um lítil
matvælafyrirtæki og hefðbundin
matvæli, sem sett er með stoð
í þremur lögum, um matvæli,
um dýrasjúkdóma og um velferð
dýra og einnig eru ákvæðin í
samræmi við Evrópureglugerðir
þar að lútandi. Markmið með
setningu reglugerðarinnar var m.a.
að auðvelda litlum sláturhúsum
og matvælafyrirtækjum að
uppfylla kröfur í hollustuhátta- og
eftirlitsreglugerðum, en þó þannig
að ekki væri slegið af lámarks
kröfum um matvælaöryggi og
neytendavernd.
Neytendavernd er höfuðmarkmið
ofangreindra fyrirmæla
Við slátrun í sláturhúsum er lögð
gífurleg áhersla á að tryggja eins
og framast er unnt að kjöti og
öðrum sláturafurðum sé skilað
í dreifingu, vinnslu og sölu eins
hreinum og heilnæmum og kostur
er. Allur sláturferillinn er undir
eftirliti dýralækna, bæði hvað
varðar sjúkdómaeftirlit og almennt
hreinlæti varðandi starfsfólk og
búnað hússins.
Ferillinn hefst með því að
dýralæknir skal fylgjast með að
flutningur sláturfjár hafi verið
samkvæmt reglum um dýravelferð.
Hann skoðar síðan fé í sláturrétt og
tryggir að aðeins heilbrigðu fé sé
slátrað til manneldis og að dýravernd
sé í heiðri höfð við aflífunina.
Fylgst er með upplýsingum um
hugsanlega lyfjameðhöndlun
sláturdýranna og að útskolunartími
lyfjanna sé liðinn, til að tryggja að
ekki finnist lyfjaleifar í afurðunum.
Hreinlætiseftirlit er í auknum
mæli framkvæmt með sýnatökum
og gerlarannsóknum, t.d. hvað
varðar vinnsluvatnið og hvernig
sótthreinsun vinnslutækja hafi til
tekist. Þá skal heilbrigðisskoðun
á öllum sláturafurðum fara
fram í sláturhúsinu áður en
frekari vinnsla fer fram eða
þær eru afhentar til dreifingar.
Að skoðun lokinni skal merkja
allar sláturafurðirnar samkvæmt
reglugerð þar að lútandi, t.d. með
sérstökum heilbrigðisstimpli. Þá skal
sláturleyfishafi einnig starfrækja
innra eftirlit með framleiðslunni,
samkvæmt sérstökum reglum,
sem dýralæknar fylgjast með að
séu uppfylltar. Í sláturhúsum
er einnig framkvæmd ákveðin
sjúkdómavöktun, t.d. vegna
búfjársjúkdóma eins og garnaveiki
og riðuveiki. Sérstaka áhættuvefi
vegna riðuveiki þarf að fjarlægja
og koma í viðeigandi förgun. Komi
fé ekki til slátrunar í sláturhúsum,
þar sem hægt er að fjarlægja
áhættuvefi og taka sýni úr fénu, þá
eru búfjáreigendur að vinna gegn
því markmiði að útrýma þessum
sjúkdómum. Það er einnig eitt af
hlutverkum kjötskoðunarlækna að
fylgjast með að förgun sláturúrgangs
fari fram samkvæmt settum reglum.
Það segir sig því sjálft að kjöt
sem kemur frá heimaslátrun,
við ófullkomnar aðstæður og án
skoðunar á lifandi sláturfé og síðan
á afurðunum, getur aldrei orðið
söluvara né til annarrar dreifingar.
Neytendur sem kaupa slíkt kjöt
hafa enga tryggingu fyrir hvaða
meðhöndlun dýrin fengu fyrir slátrun
og við hvaða aðstæður var slátrað.
Kjötið getur verið hættulegt til
neyslu, m.a. valdið matareitrunum.
Fari slíkt kjöt í dreifingu og
vinnslu, getur það mengað önnur
matvæli í kjötvinnslum, verslunum,
mötuneytum eða eldhúsum
veitingastaða og þannig valdið
stórfelldum matareitrunum og
matarsýkingum.
Heimaslátrun getur líka verið
óæskileg út frá markaðssjónarmiðum,
samanber yfirlýsingu þáverandi
framkvæmdastjóra Landssamtaka
sauðfjárbænda sem birtist með
grein minni í Bændablaðinu þann
16. október 2001:
„Landssamtök sauðfjár-
bænda taka undir með yfirdýra-
læknisembættinu og vilja einnig
benda á það að heimaslátrun getur
aldrei uppfyllt sömu kröfur og eftirlit
með sláturafurðum eins og tíðkast í
sláturhúsum. Þar af leiðandi býður
heimaslátrun upp á stóraukna hættu á
alls konar sýkingum í kjöti sem geta
haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir
kindakjötsmarkaðinn í heild sinni.
Það er ekki forsvaranlegt að nokkrir
aðilar stefni afkomu sauðfjárbænda
í hættu með slíku athæfi. Einnig er
það fé sem slátrað er heima hvergi til
á pappírum í formi birgða eða sölu
sem gerir allt eftirlit með birgðum
erfiðara og allt sölu- og markaðsstarf
ómarkvissara.“
Nýlega komu fregnir um að sala
á kindakjöti hafi dregist verulega
saman í sumar, sem nemi um 256
tonnum. Matareitrun vegna neyslu
á heimaslátruðu kjöti myndi gera
erfiða stöðu sauðfjárbænda enn verri
vegna áhrifa á sölu á öllu kindakjöti.
Er neytendavernd í molum?
Það vekur athygli að það tók
Matvælastofnun (MAST) 11 daga
að krefjast þess að hið heimaslátraða
kjöt yrði innkallað, þar sem sala þess
hafi verið brot á 1. mgr. 5.gr. laga nr.
96/1997 og ekki hafa borist fréttir af
að málið hafi verið kært til lögreglu.
Einnig vekur furðu að
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands
vestra, sem fer með eftirlit með sölu
matvæla á svæðinu, skuli ekki vera
búið að kæra þessa ólöglegu sölu.
Ekki verður annað séð en að
lögbrot hafi verið framin í þessu
máli og ef viðkomandi eftirlitsaðilar
gera ekkert í málinu, þá má búast við
að heimaslátrun geti aukist í stórum
stíl gagngert til að selja neytendum
án alls heilbrigðiseftirlits.
Neytendavernd virðist því að
engu höfð í þessu máli.
Halldór Runólfsson
Höfundur er fyrrverandi
yfirdýralæknir og fyrrverandi
skrifstofustjóri landbúnaðar- og
matvælamála í atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu.
ÚTSALA
NEUMEIER NB30 - 152 kg
Verð áður 498.000 + vsk.
Verð nú 398.000 + vsk.
NEUMEIER ND250 hjólbörur
Verð áður 289.000 + vsk.
Verð nú 220.000 + vsk.
Fliegl Profi-Combi baggakló
Verð áður 285.000 + vsk.
Verð nú 195.000 + vsk.
Fliegl afrúllari
Verð áður 530.000 + vsk.
Verð nú 330.000 + vsk.
Fliegl BIG RUN ASW 248
PUSH-OFF
Er á staðnum.
565 2727 - 892 7502
Smáauglýsinga-
síminn er:
563 0300
Eldri blöð má
finna hér á PDF:
Árni Björn Pálsson var kjörinn knapi ársins á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin var laugardaginn 27. október sl. Árni Björn átti viðburðarríkt ár á
keppnisvellinum, en hæst ber sigur hans í töltkeppni Landsmóts í þriðja sinn í röð. Þá stóð hann uppi sem sigurvegari Meistaradeildarinnar. Árni var
auk þess valinn gæðingaknapi ársins. Fleiri knapar voru heiðraðir á hátíðinni: Jakob Svavar Sigurðsson var kjörinn íþróttaknapi ársins, Konráð Valur
Sveinsson skeiðknapi ársins, Teitur Árnason er gæðingaknapi ársins og efnilegasti knapinn var Arnór Dan Kristinsson. Védís Huld Sigurðardóttir hlaut
sérstaka viðurkenningu frá Landssambandi hestamannafélaga sem jafnframt sæmdi Hermann Árnason með heiðursverðlaunum. Félag hrossabænda
færði Sólveigu Stefánsdóttur heiðursverðlaun félagsins í ár. Þá hlaut hrossaræktarbúið Ketilsstaðir / Syðri Gegnishólar titilinn Ræktunarbú ársins hjá
Félagi hrossabænda og var auk þess valið besta ræktunarbú keppnishrossa að mati LH. Mynd/LH hestar
Heimaslátrun
LESENDABÁS
Halldór Runólfsson.